Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Emilía Anna, VOGOR vol. I og Axel O & Co með ný lög

Brakandi fersk tónlist úr smiðju íslenskra lista­manna.

Nýklassískt prógressíft rokk fyrir hugsandi fólk
Hljóm­sveitin VOGOR vol. I hefur gefið út sína fyrsta plötu, en hún heitir einfald­lega VOGOR vol. Það eru þeir Árni Þór Árnason, Lárus Sigurðsson og Ólafur Josephsson sem skipa sveitina en þeir eru einnig meðlimir sveitarinnar Stafrænn Hákon, sem hefur starfað um árabil og gefið út fjölmargar hljóm­plötur. Sjálfir lýsa þeir nýju plötunni sem 21. aldar nýklassísku prógressífu rokki fyrir hinn hugsandi mann. Á plötunni gætir margs konar áhrifa sem mótað hafa þá félaga eins og tónlist franska 19. aldar tónskáldsins Debussy, Sonic Youth og Cocteau Twins svo fátt eitt sé nefnt. Platan var að mestu leyti unnin í Stúdíó Vogor í Norður­mýrinni í vetur þegar Árni, Lárus og Ólafur hófu að kasta á milli sín nokkrum hörpu­laglínum sem smám saman tóku á sig mynd „og urðu loks að kyndugum tónlistar­bræðingi sem dansar á milli hinnar mjúku klassísku áferðar þar sem melódían er í forgrunni og nýbylgju­rokks þar sem óheftum unggæðings­legum kraftinum er hleypt á skeið um lendur laganna,“ eins og þeir sjálfir orða það.

Hefð­bundið kántrí í bland við fleira
Hljóm­sveitin Axel O & Co hefur sent frá sér plötuna There are Days. Með þessari plötu leitar sveitin inn í Texas Red Dirt Country-stílinn sem einkennt hefur lög sveitarinnar til þessa, og svo „cross over“ þar sem hefð­bundið kántrí blandast öðrum stílum. Platan er nefnd eftir titillagi plötunnar og inni­heldur fjögur lög. Þetta er önnur plata sveitarinnar sem er skipuð þeim Axel O (söngur), Jóhanni Ásmunds (bassi), Sigur­geiri Sigmunds (gítarar), Magnúsi Kjartans (hljómborð) og Fúsa Óttars (trommur). Gesta­söngvari er Jónína G. Aradóttir og bakraddir skipa þau Drew Hall frá Texas og Hrafnhildur Víglunds. Platan var tekin upp í Stúdío Paradís í Reykjavík og að hluta í Rosewood Studios í Tyler, Texas. Pródúser var Jóhann Ásmundsson.

Sendir frá sér sitt fyrsta lag
Tónlistar­konan Emilía Anna var að senda frá sér sitt fyrsta lag en það ber heitið Aldrei snert mig. Lagið þykir grípandi og textinn skemmtilegur og greinilegt að Emilía Anna á fram­tíðina fyrir sér í tónlistinni, að mati Albumm. Sjálf segist Emilía vera með mörg lög í vinnslu um þessar mundir, en hún gerir allt sjálf; pródúsar, mixar og masterar. Tónleika­hald sé jafnvel á næsta leiti. Það er alla vega klárt mál að við á Albumm bíðum spennt eftir meira efni frá þessari ungu og efnilegu tónlistar­konu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt