Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ísa­bella ekki lengur alein og vinalaus: „Ég ekki nógu stór orð yfir hversu þakklátar við erum“

Sædís Hrönn Samúels­dóttir, móðir Ísabellu Vonar, segir þær mæðgur hafi fundið fyrir ótrúlegum viðbrögðum frá samfélaginu eftir að þær stigu fram og greindu frá ofbeldinu sem Ísabella varð fyrir.

„Það hefur gefið okkur svo mikið að sjá hvað þetta hefur snert marga og best af öllu að sjá hvernig börnin bregðast við þessu,“ segir Sædís Hrönn í færslu í Facebook-hópnum Góða systir. „Margir krakkar hafa komið til okkar með gjafir, falleg kort, blóm, nammi, bangsa, orku­steina, falleg skilaboð, teiknað myndir, gefið knús, sýnt mikinn samhug og stuðning og vilja vera vinir hennar Ísabellu.“

Sjá einnig: Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir einelti í Hafnar­firði:„Hún er enn þá uppi á spítala“

Líkt og Mannlíf greindi frá dvaldi 12 ára dóttir Sædísar nýverið á sjúkra­húsi eftir að hafa reynt að svipta sig lífi. Ísabella Von hafði orðið fyrir lang­varandi einelti í Hafnar­firði og ofbeldi af hálfu jafnaldra sinna og hefur stúlkan unga ekki mætt í skólann lengi.

Gerendur í eineltinu voru bæði samnemendur Ísabellu í Hraun­vallaskóla í Hafnar­firði sem og krakkar úr öðrum skólum. Ísabella Von hefur ítrekað verið sagt að svipta sig lífi. Hún segir að eineltið hafi staðið yfir í rúmt ár en um þrjátíu krakkar hafa tekið þátt í því. Bæði er um að ræða samnemendur hennar í Hraun­vallaskóla í Hafnar­firði og krakka úr öðrum skólum.

„Mjög margir sem tóku þátt í eineltinu hafa beðist afsökunar á að hafa komið illa fram við hana, séð eftir öllu og vilja bæta henni það upp,“ segir Sædís, móðir Ísabellu Vonar. „Margir sættust og urðu vinir aftur og voru góð hvort við annað sem var æðislegt. Flottir krakkar sem eiga allt gott skilið.“

Sjá einnig: Netverjar æfir vegna fréttar RÚV: „Sagði enginn bara „Heyrðu er þetta ekki of langt gengið?“

Þær mæðgur segjast ótrúlega þakklátar Íslendingum sem margir hafi boðist til að aðstoða við að létta Ísabellu Von lífið með einhverjum hætti.

„Ég á ekki nógu stór orð yfir hversu þakklátar við erum öllu þessu frábæra fólki sem hefur stutt okkur mæðgur. Börn eru oft ekki að flækja hlutina og Ísabella Von sjálf segir einfald­lega „takk elskan““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning