Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Inga Sæland glímir við víðtækt vantraust – „Það dugar ekki að láta, eins og þetta sé smotterí“

Inga Sæland.
Inga Sæland. Mynd: Hallur Karlsson

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, glímir við víð­tækt van­traust i kjöl­far þess að hafa ólög­lega þegið styrki fyrir flokk sinn að upp­hæð 240 millj­ónir króna. Inga harð­neitar að end­ur­greiða styrk­ina og svarar ásök­unum með árásum á fjöl­miðla sem hún telur flytja fals­fréttir.

Til við­bótar styrkja­mál­inu er Inga sökuð um að hafa í hót­unum við skóla­meist­ara Borg­ar­holts­skóla og vísa til áhrifa sinna hjá lög­reglu og víðar. Hún hringdi sem amma í skóla­meist­ar­ann og skamm­að­ist vegna þess að barna­barn hennar týndi fok­dýrum skóm í skól­anum. Málið þykir lýsa miklum dóm­greind­ar­bresti for­manns­ins og að hún hafi ofmetn­ast við að kom­ast í rík­is­stjórn. Rík­is­stjórnin er í vanda vegna fram­göngu for­manns­ins.

Fáir treysta sér til að koma Ingu til varnar opin­ber­lega. Eiríkur Bergmann pró­fessor hefur sagt að Flokkur fólks­ins eigi varla annan kost en að end­ur­greiða styrk­ina. Inga hefur sagt að þá fari flokkur hennar í þrot sem Eiríkur segir að myndi ógna rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

Jón Viðar Jónsson, álits­gjafi og leik­hús­fræð­ingur, seg­ist á Facebook vera sam­mála Eiríki Bergmann um að Flokkur fólks­ins verði að end­ur­greiða það fé sem hann hefur fengið úr rikis­sjóði í blóra við gild­andi reglur.

„Það dugar ekki að láta, eins og þetta sé smott­erí sem þau lagi á næsta lands­fundi og svo gleymi menn þessu bara. Ef Flokkur fólks­ins ætlar að byrja setu sína í stjórn lands­ins þannig, á hann ekki heima þar,“ skrifar Jón Viðar og mælir fyrir munn margra.

Til við­bótar þessum tveimur hneykslisá­málum standa öll spjót á Flokki fólks­ins fyrir að svíkja kosn­inga­lof­orð og kok­gleypa. Þannig getur flokk­ur­inn ekki staðið við við það að tryggja öllum lág­marks­laun upp á 450 þús­und krónur eftir skatta og skerð­ingar. Þá hefur flokk­ur­inn kúvent í afstöðu sinni til sölu Íslands­banka og til Borg­ar­línu sem hann hafði áður verið algjör­lega verið and­vígur.

Sam­starfs­flokkar Flokks fólks­ins í rík­is­stjórn þegja þunnu hljóði um stöðu Ingu og axar­sköft. Takist Ingu Sæland ekki að stilla til friðs í kringum sig má reikna með að van­traustið til hennar nái inn í þing­sal með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Gréta María stýrði Prís frá opnun verslunarkeðjunnar í ágúst 2024 en hætti sem framkvæmdastjóri á síðasta ári.
Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Innlent

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Landsmenn verja nú að meðaltali 64 mínútum á dag í lestur og hlustun á bækur, fimm mínútum meira en í fyrra.
Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa