Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild

Maður á hjóli
Maður á hjóli Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Nokkuð var um verkefni hjá lögreglu á höfuð­borgar­svæðinu samkvæmt dagbók lögreglu frá því í dag. Meðal annars bárust tilkynningar um heimilis­ofbeldi, innbrot og eld, auk þess sem nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum.

Tilkynnt var um eld í fyrirtæki í miðbænum í Reykjavík. Þegar viðbragðs­aðilar komu á vettvang var engan eld að sjá en töluverður reykur var í húsnæðinu. Reykurinn reyndist stafa af biluðum hárblásara.

Þá barst lögreglu tilkynning um heimilis­ofbeldi í Reykjavík og önnur sambærileg tilkynning barst úr Hafnar­firði. Einnig var tilkynnt um innbrot og þjófnað úr heimahúsi í Hafnar­firði.

Í miðborg Reykja­víkur var lögreglu gert viðvart vegna einstaklings sem olli ónæði við hús. Í Breið­holti var einstaklingur í mjög slæmu ástandi í heimahúsi og var hann vistaður í fanga­klefa vegna ástands síns. Þá fann lögregla sofandi einstakling í stigahúsi í Breið­holti. Hann var vakinn og hélt sína leið.

Nokkrir ökumenn komu við sögu lögreglu. Í Hafnar­firði var ökumaður tekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og annar ökumaður var stöðvaður vegna aksturs án ökuréttinda og gruns um fíkniefna­akstur. Í Reykja­nesbæ var ökumaður stöðvaður án ökuréttinda.

Annar ökumaður reyndist undir áhrifum áfengis og án ökuréttinda. Þá var ökumaður stöðvaður fyrir hrað­akstur í póst­númeri 108 eftir að hafa mælst á 114 kílómetra hraða þar sem hámarks­hraði er 80.

Loks féll einstaklingur af reiðhjóli og hlaut áverka á læri. Hann var fluttur á slysa­deild til aðhlynningar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning