Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Tómas segir Önnu Dóru hafa spilað Metoo-spjaldið þegar valdaránið mistókst

Tómas Guðbjartsson læknir segir að Anna Dóra Sæþórs­dóttir, prófessor við Háskóla Íslands og þar til nýlega forseti Ferða­félags Íslands, hafi misnotað Metoo-vitundar­vakningu síðari ára til að koma höggi á andstæðinga innan félagsins. Sú mynd sem Anna hefur málað upp, að henni hafi verið bolað út af feðra­veldi Ferða­félagsins sem þoldi ekki andstöðu hennar við kynferðis­brot, sé alröng. Hið rétta sé að Anna Dóra hafi reynt að ná völdum í félaginu og þegar það tókst ekki hafi hún spilað Metoo-spjaldið.

Allt þetta kemur fram í pistli Tómasar sem birtur er á Vísi en einnig má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Undan­farnar vikur hefur Ferða­félag Íslands verið mikið í fjöl­miðlum þar sem m.a. hafa komið fram alvarlegar ásakanir í garð stjórnar, og félagið jafnvel kallað „skjall­bandalag“ þar sem þöggun og meðvirkni ráði ríkjum”.

Um leið hefur verið gert lítið úr niður­stöðum eins fjölmennasta fundar í sögu félagsins sem haldinn var í síðustu viku. Staðreyndin er sú að á fundinum kom skýrt fram, stutt stað­reyndum, að kynferðis­ofbeldi innan félagsins hefur ekki verið þaggað niður af stjórn. Þótt vissulega geti Ferða­félagið, líkt og önnur félaga­samtök og fyrirtæki, gert betur í þessum mikilvæga mála­flokki, þá hefur þessum málum ávallt verið vísað í skilgreinda farvegi innan félagsins.

Á heimasíðu FÍ má nálgast framsögu­ræður fundarins þar sem vel á annan tug af 300 fundar­gestum tóku til máls. Á fundinum var rakið hvernig fyrr­verandi forseti og nánustu stuðnings­menn hennar reyndu að ná völdum í félaginu, með ólýðræðislegum og ómaklegum hætti þar sem nokkrum stjórnar­mönnum var m.a. hótað opinberum ærumeiðingum. Í fjöl­miðlum, þar á meðal í nýlegu helgar­viðtali, var stjórnar­fólki lögð ósönn orð í munn og það nafn­greint, jafnvel í tengslum við mál sem trúnaður á að ríkja um. Slíkt er algjör­lega á skjön við siða- og verklags­reglur slíkra mála, jafnt hjá félaga­samtökum sem fyrir­tækjum.

Það er ekkert sem rökstyður full­yrðingar um að hylmt hafi verið yfir kynferðis­ofbeldi af stjórn félagsins. Fyrir það fyrsta fær stjórnin ekki slík mál á sitt borð auk þess sem stjórnin stóð einhuga með fyrr­verandi forseta að því að innleiða nýjar og endur­bættar starfs­reglur varðandi einelti og kynferðis­ofbeldi í febrúar sl. Hefur öllum málum sem borist hafa félaginu síðan hefur verið vísað í þá farvegi sem þar eru tilgreindir. Um er að ræða tvö eineltismál og er annað þeirra kvörtun framkvæmda­stjóra félagsins um einelti af hálfu forseta í sinn garð. Var það meðhöndlað samkvæmt áður­nefndum verklags­reglum sem fyrr­verandi forseti hafði sjálf tekið þátt í að innleiða. Þar er m.a. kveðið á um að meintur gerandi stígi til hliðar tíma­bundið á meðan unnið er úr málinu. Allt tal um „þöggunar­samning“ stjórnar gagnvart henni á því ekki við, enda einfald­lega verið að fylgja verklags­reglum.

Eineltis­kvörtun framkvæmda­stjóra var samkvæmt sömu verklags­reglum send til utan­aðkomandi fagaðila, sem voru að vinna í málinu þegar fyrir­spurn barst í lok sumars frá lögfræðingi fyrr­verandi forseta. Sagðist hún þar vilja stíga til hliðar í sátt með hagsmuni FÍ að leiðar­ljósi og óskaði eftir að eineltis­ákæran væri felld niður. Þolandi ákvað eftir nokkra umhugsun að fella kæruna niður, en eins og flestum er ljóst efndi fyrr­verandi forseti ekki sinn hluta samkomu­lagsins.

Á félags­fundinum í sl. viku var lögð fram vantrauststillöga á stjórn FÍ en frávísunar­tillaga á hana var samþykkt með 85% greiddra atkvæða. Í kjölfarið var síðan borin upp og samþykkt trausts­yfirlýsing á stjórn félagsins með svipuðum fjölda atkvæða. Öllum var frjálst að tala á þessum fundi og það er útúr­snúningur að gera lítið úr því félags­fólki sem sótti fundinn og afdráttar­lausri niður­stöðu hans. Allir 11 þús. félagar FÍ áttu þess kost að mæta á fundinn, þ.m.t. stuðnings­menn fyrr­verandi forseta, en dagana fyrir fundinn höfðu þónokkrir þeirra skráð sig aftur í félagið til að taka þátt í honum.

Málflutningur af Ferða­félaginu hefur oft á tíðum undan­farið verið einhliða og byggir oftar en ekki á sögu­sögnum, t.d. að fyrr­verandi stjórnar­maður, sem sagði sig úr stjórn fyrir ári síðan, hafi eftir það verið aðstoðar­fararstjóri í ferðum félagsins. Þetta er ósatt líkt og sú full­yrðing að ég hafi barist fyrir endurkomu hans í stjórn félagsins, enda annar aðili kosinn í stjórn í hans stað á síðasta aðalfundi. Þessi fyrr­verandi stjórnar­maður hefur hins vegar tekið þátt í ferðum félagsins, enda hafði fyrr­verandi forseti sagt við hann og aðra að slíkt væri sjálfsagt og þau tvö m.a. tekið þátt í sömu skíðaferð um hálendið sl. vetur.

Ferða­félag Íslands er ekki hafið yfir gagnrýni og félagið getur klárlega gert betur í ofbeldis- og eineltis­málum. Gagnrýni verður þó að vera málefnaleg og byggja á stað­reyndum. Það er ömurlegt að þurfa sífellt að sitja undir röngum ásökunum, fals­fréttum sem fólk fer að trúa séu þær endur­teknar nógu oft. Afsögn fyrr­verandi forseta kom ekki til vegna aðgerða­leysis stjórnar í eineltis- og kynferðis­ofbeldis­málum, heldur var hún sorgleg afleiðing ólýðræðislegra stjórnar­hátta og eineltis­tilburða hennar sem aðrir í stjórn félagsins gátu engan veginn sætt sig við og bar að bregðast við.

Nú er mikilvægt að við félags­menn í FÍ snúum bökum saman og vinnum áfram af krafti að því að efla félagið okkar og gera það enn betra. Við vitum að með jákvæðu samtali og samvinnu okkar á milli okkar getum við fundið leiðir til að laga það sem þarf að laga og efla félagið enn frekar til framtíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning