Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Soffía Karen segir sögu sína hjá Eddu Falak: „Þú ræður fokking engu!“

Mynd / Skjáskot Youtube.
Mynd / Skjáskot Youtube.

Nýjasti viðmælandi Eddu Falak í hlað­varpinu Eigin Konur er Soffía Karen Erlends­dóttir.

Soffía kærði mann fyrir nauðgun, en kæran var felld niður eftir tvö ár, þrátt fyrir áverka og afsökunar­beiðni frá gerandanum.

Í viðtalinu segir Soffía Karen að maðurinn sem hún fór heim með af djamminu hafi haldið sér í fimm klukku­tíma, og brotið á henni kynferðis­lega á meðan.

Hún lýsir fyrstu kynnum sínum af gerandanum:

„Ég og vinkonur mínar voru á dans­gólfinu. Ég sá hann og brosti til hans. Svo allt í einu tók hann mig hálstaki, ég sneri mér við og hann kyssti mig. Þetta var mjög spennandi en þetta var harkalegt. Og svo sagði hann að við værum að fara heim saman og leiddi mig út af dans­gólfinu,“ sagði Soffía Karen.

Soffía Karen gerði manninum ljóst að hún ætlaði ekki að sofa hjá honum; hún væri á blæðingum.

Maðurinn fékk hana fékk til að veita sér munnmök; þar sem hann var mjög harka­legur og fékk hún marblett í kokið. Maðurinn krafðist þess að Soffía myndi fjarlægja túrtappann og hafa við sig kynmök:

„Ég byrjaði að hugsa: Ef að ég myndi vilja hætta, gæti ég það? Og þá ákvað ég að testa það og sagði við hann, eigum við ekki bara að kúra? Hann hunsaði það og ég sagði það aftur, þá sagði hann: „Þú ræður fokking engu!“ Það var þá sem að ég áttaði mig á hvað var að gerast, og þá varð ég alveg stjörf og ég hætti að gera allt. Ég bara fraus og hann hélt áfram þó ég væri frosin. Hann setti fæturna mínar upp á axlirnar á sér og ég byrjaði að reyna taka þær af en hann setti þær alltaf aftur á.“

Eftir misnotkunina leitaði Soffía Karen til bráða­móttöku; lagði fram kæru einum mánuði eftir brotið.

Maðurinn sem braut á Soffíu Karen baðst afsökunar á hegðun sinni – á því að hafa verið „ógeðs­legur“ við hana.

Þrátt fyrir áverka var málið að lokum fellt niður, heilum tveimur árum síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning