Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Mál Bjarna Frímanns þolir enga bið: Sinfónían mun fela óháðum fagaðila að skoða málið í kjölinn

Árni Heimir Ingólfsson.
Árni Heimir Ing­ólfs­son.

Samkvæmt RÚV verður nú þegar ráðist í óháða rannsókn utan­aðkomandi aðila á viðbrögðum Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands við ásökunum tónskáldsins og hljóm­sveitar­stjórans Bjarna Frímanns Bjarna­sonar, um meint kynferðis­brot Árna Heimis Ingólfs­sonar, sem Bjarni Frímann greindi frá í færslu á Facebook-síðu sinni.

Bjarni Frímann Bjarna­son.

Ákváðu stjórn og framkvæmda­stjóri Sinfóníu­hljóm­sveitarinnar þetta í dag, en mikill þrýstingur hefur verið vegna málsins vegna viðbragða stjórnar Sinfóníunnar, sem þóttu ekki vera að öllu leyti til fyrir­myndar.

Eins og fram kom í frétt Mannlífs þá greindi Bjarni Frímann frá því á fimmtudag að Árni Heimir, fyrr­verandi listrænn stjórn­andi Sinfóníu­hljóm­sveitarinnar, hefði brotið kynferðis­lega gegn; og að stjórn­endur Sinfóníunnar hefðu hylmt yfir brotið í mörg ár.

Meint brot Árna Heimis var framið þegar Bjarni Frímann var einungis 17 ára gamall, en þá var Árni Heimir 35 ára gamall, og var Bjarni Frímann nemandi hans við Lista­háskóla Íslands.

Viðbrögð yfirmanna hjá Sinfóníunni hafa sætt mikilli gagnrýni, en hvorki framkvæmda­stjóri né stjórnar­menn sveitarinnar hafa gefið færi á viðtölum vegna málsins.

Lára Sóley Jóhanns­dóttir.

Í skriflegu svari til frétta­stofu RÚV sagði Lára Sóley Jóhanns­dóttir framkvæmda­stjóri Sinfóníunnar, á fimmtudag, að brugðist væri við málum í samræmi við óskir þolanda eftir fremsta megni.

„Vilji hann ekki að farið sé lengra með málið takmarki það möguleika stjórn­enda,“ svaraði Lára Sóley.

Svo virtist sem stjórn Sinfóníunnar ætlaði að bíða með að ræða málið fram á miðvikudag, en þá er stjórnar­fundur, en fráþví var fallið í dag, og ákveðið að málið þyldi alls enga bið.

Í skriflega svarinu segir Lára Sóley að ákveðið hafi verið að fela óháðum fagaðila til að skoða málið í kjölinn; fer sú vinna nú þegar af stað.

Langt er síðan Mannlíf fjallaði um hegðun og meint kynferðis­afbrot Árna Heimis, fyrst fjölmiðla.

Mannlíf birti fyrst fjölmiðla grein þar sem sagt er frá skila­boðum Árna Heimis, sem þá var fertugur, til 16 ára pilts.

Mannlíf mun áfram halda áfram að fjalla um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning