Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Guðlaugur Þór og kaupin á Swiss Life: „Einn versti díll sem nokkur maður hefur gert“

Guðlaugur Þór Þórðarson. Mynd / EPA
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son. Mynd / EPA

Þann 11. júní árið 2003 stofnaði Guðlaugur Þór Þórðarsson eignarhalds­félagið Bogmaðurinn. Tveimur dögum síðar, 13. júní fékk félagið greiddar tæpar 33. milljónir króna frá Lands­banka Íslands en var greiðslan sögð vera vegna sölu Guðlaugs Þórs á umboði fyrir Swiss Life trygginga­miðlunina svissnesku.„

Árið 2012 birtist eftir­farandi brot úr frétt á DV en hana skrifaði Ingi Freyr Vilhjálmsson:

Eignarhalds­félag í eigu Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar fékk greiddar tæpar 33 milljónir króna frá Lands­banka Íslands í júní 2003. Greiðslan var vegna sölu Guðlaugs Þórs á umboði fyrir trygginga­miðlun svissneska trygginga­félagsins Swiss Life sem hann seldi til Lands­bankans á þessum tíma. Peningarnir voru lagðir inn á reikning eignarhalds­félagsins Bogmannsins ehf., sem Guðlaugur Þór átti ásamt eiginkonu sinni, Ágústu Johnson. Þetta kemur fram á reiknings­yfirliti frá Lands­bankanum sem DV hefur undir höndum. Guðlaugur stað­festir, í samtali við DV, að viðskiptin hafi átt sér stað. Milli­færslan frá Lands­bankanum til eignarhalds­félags Guðlaugs Þórs var framkvæmd þann 13. júní 2003. Bogmaðurinn var stofnaður þann 11. júní 2003, samkvæmt samþykktum félagsins frá þeim degi, og virðist því hafa verið komið á laggirnar gagngert til að taka við greiðslunni frá Lands­bankanum. Tilgangur félagsins er sagður vera auglýsinga­miðlun.

Er sjálfur með Swiss Life

Mánuði áður, í kosningunum til Alþingis í maí 2003, komst Guðlaugur Þór inn á þing fyrir hönd Sjálfstæðis­flokksins. Áður en Guðlaugur Þór fór inn á þing hafði hann verið starfs­maður Búnaðar­bankans þar sem hann starfaði í trygginga­deildinni. Guðlaugur Þór var auk þess einnig borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins á árunum 1998 til 2006. Hann hætti í Búnaðar­bankanum um það leyti sem bankinn sameinaðist Kaupþingi og fór skömmu síðar inn á Alþingi Íslendinga þar sem hann hefur setið síðan. Guðlaugur Þór segir að viðskiptin með íslenska umboðið fyrir Swiss Life tengist starfs­lokum hans í Búnaðar­bankanum. Hann segist hafa varið í það miklum tíma, einu til tveimur árum, að tryggja Búnaðar­bankanum umboðið fyrir Swiss Life hér á landi í gegnum skrif­stofur félagsins í Liverpool á Englandi. Búnaðar­bankinn keypti svo þetta umboð fyrir tilstilli Guðlaugs Þórs. „Við erum með fyrstu Swiss Life-trygginguna sjálf, ég og Ágústa. Þessar tryggingar voru miklu hagstæðari og veittu miklu meiri trygginga­vernd,“ segir Guðlaugur Þór sem varð í kjölfarið tengi­liður Búnaðar­bankans við Swiss Life. „Ég stýrði þessu og seldi þessar vörur.“

Keypt með láni frá bankanum

Þegar Guðlaugur Þór hætti í Búnaðar­bankanum við sameininguna við Kaupþing varð niður­staðan sú að hinn sameinaði banki vildi ekki halda umboðinu fyrir Swiss Life. „Niður­staðan varð sú að ég keypti Swiss Life því ég hafði unnið mjög hart að því að ná þessum samningum og vildi að þetta héldi áfram hér á landi.“ Guðlaugur Þór segist aðspurður hafa keypt Swiss Life-umboðið með skammtíma­láni frá Búnaðar­bankanum. „Ég man það ekki alveg en ég held að ég hafi fengið skammtímalán, væntanlega frá Búnaðar­bankanum. Það leið mjög skammur tími frá því ég keypti umboðið þar til ég seldi það þannig að vaxta­gjöldin hafa ekki verið mjög mikil.“ Hann segist hafa selt umboðið til Lands­bankans á nokkurn veginn kostnaðar­verði. „Þetta er væntanlega einn versti díll sem nokkur maður hefur gert,“ segir Guðlaugur og bætir því við að sölu­verðið hafi rétt dugað til að greiða lánið til baka til Búnaðar­bankans og fyrir útlögðum kostnaði. Guðlaugur Þór segist því ekki hafa grætt mikið persónu­lega á viðskiptunum. Aðspurður hvort hann hafi grætt milljónir á viðskiptunum segir hann að svo hafi ekki verið.

Ekkert um greiðsluna í ársreikningnum

Í ársreikningi Bogmannsins fyrir árið 2003 kemur ekkert fram um þessa greiðslu frá Lands­bankanum. Eigið fé félagsins nam einungis rúmlega 2 milljónum króna og var hagnaður þess rúmlega 1.200 þúsund. Engar upphæðir eins og umræddar tæpu 33 milljónir virðast hafa runnið í gegnum Bogmanninum. Samt sýnir greiðslu­kvittunin fram á það að félagið tók við umræddri greiðslu frá Lands­bankanum. Sömu sögu er að segja um ársreikning félagsins árið á eftir: Ekkert í bókhaldi félagsins sýnir þetta tæplega 33 milljóna króna innlegg á reikning félagsins. Guðlaugur Þór segist ekki geta útskýrt af hverju söluverð umboðsins komi ekki fram í sjóð­streymis­yfirlitinu í ársreikningi Bogmannsins. „Ég bara hef ekki hugmynd um það. Var þetta ekki 2003. Er ársreikningurinn ekki undir­ritaður af endur­skoðanda? Ég man ekki nákvæmlega allt sem ég gerði árið 2003. Ég kann ekki að segja frá þessu. En við vorum í góðri trú í þessum viðskiptum.“

Kominn á þing og vildi út

Guðlaugur segir að hann hafi einfald­lega viljað hætta öllum viðskiptum áður en hann færi á þing: „Í örstuttu máli er þetta svona: Þetta var mál sem ég var búinn að vinna að ógeðslega lengi og loksins kominn með í land. Ég grátbað Kaupþing um að taka þessa vöru, þar sem Kaupþing faktískt tók yfir Búnaðar­bankann. Þeir skildu mín rök en vildu ekki halda þessu umboði. Ég tók því bara umboðið yfir. Aftur á móti hafði ég enga möguleika á því að fara að reka þetta, ég var kominn inn á þing og vildi bara koma mér út úr þessu og sel þetta nokkurn veginn á kostnaðar­verði inn í Lands­bankann. Ég bara tók þetta yfir og hafði ekki tíma eða tækifæri til að leika einhvern pókerleik með fjár­festingu upp á 30 milljónir og var því ekkert að bjóða þetta út eða bíða. Ég vildi bara vera „on the safe side“ og bara lokaði þessu dæmi,“ segir Guðlaugur Þór. Aðspurður af hverju hann seldi umboðið til Lands­bankans segir Guðlaugur Þór enga sérstaka ástæðu hafa verið fyrir því: „Ég vildi bara hreinsa borðið mitt. […] Lands­bankinn var algjör­lega „sure thing“. Þeir bara borguðu og ekkert vesen.“

Fyrr­verandi samstarfs­menn Guðlaugs

Þegar milli­færslan til eignarhalds­félagsins átti sér stað var Sigurjón Árnason, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri rekstrar­sviðs Búnaðar­bankans, nýorðinn banka­stjóri Lands­bankans. Á þriðja tug starfs­manna Búnaðar­bankans hætti í bankanum í apríl 2003 vegna fyrir­hugaðrar sameiningar bankans og Kaupþings. Bæði Lands­bankinn og Búnaðar­bankinn höfðu verið einka­væddir í lok árs 2002 eða byrjun árs 2003 og var sameining Búnaðar­bankans og Kaupþings kynnt í apríl þetta ár. Meðal annarra starfs­manna Búnaðar­bankans sem hættu um þetta leyti og fóru yfir til Lands­bankans voru Ingvi Örn Kristinsson, Elín Sigfús­dóttir og Steinþór Gunnarsson. Segja má að eiginlega allt yfirmanna­teymi Lands­bankans við hrun hafi komið úr Búnaðar­bankanum á þessum tíma. Guðlaugur þekkti því ágætlega til þeirra starfs­manna Búnaðar­bankans sem nú voru komnir til Lands­bankans. Miðað við svör Guðlaugs Þórs skiptu tengsl hans við þáverandi starfs­menn Lands­bankans þó ekki máli í þessu tilfelli. „Þetta er ekkert leyndarmál,“ segir Guðlaugur Þór um viðskiptin með trygginga­umboðið.

Í annarri frétt um málið sem skrifað var af sama blaða­manni á DV er talað við Sigurjón Árnason varðandi viðskiptin.

Hræringar eftir einka­væðinguna

Sigurjón segist aðspurður ekki hafa komið að því að selja Guðlaugi Þór umboðið út úr Búnaðar­bankanum, þetta hafi verið gert eftir að hann hætti þar. „Swiss Life er búið til inni í Búnaðar­bankanum. Þegar bankinn er tekinn yfir af Kaupþingi vildu þeir ekki lengur vera með þessa þjónustu af því þeir voru með sitt eigið trygginga­félag. Á sama tíma er Lands­bankinn að selja helminginn úr LÍFÍS út úr bankanum og til VÍS. Þar af leiðandi vantaði Lands­bankann trygginga­starfsemi og þess vegna verða viðskiptin. Þetta er framhald af einka­væðingunni. Þú manst að hluti af einka­væðingunni var að VÍS var selt út úr Lands­bankanum. Eftir sat hins vegar þessi hlutur í LÍFÍS sem VÍS vildi svo eignast, á sama tíma vildi Kaupþing losna við þessa trygginga­starfsemi sem hafði verið í Búnaðar­bankanum.“ Sigurjón segir að sölu­verðið á LÍFÍS hafi verið margfalt hærra en kaup­verðið á Swiss Life.

Selt í stuttan tíma

Sigurjón segir að trygginga­umboðið hafi verið rekið áfram inni í Lands­bankanum eftir þetta. Það hafi hins vegar ekki verið mjög lengi, eitt til tvö ár, þar sem Swiss Life í Sviss rifti samningum við millilið Lands­bankans í viðskiptunum, skrif­stofur Swiss Life í Bretlandi. „Þeir vildu loka bresku einingunni. Eftir það var ekki hægt að selja tryggingar þessa félags. Sá kúnna­grunnur sem var kominn var svo bara þjónustaður áfram. Það er ennþá fullt af fólki með þessar tryggingar. Okkur gekk mjög vel að selja þessar tryggingar. Þetta var ágætis bisness enda voru þetta frábærar tryggingar, frábærar tryggingar.“ Lands­bankinn var því aðeins söluaðili Swiss Life í skamman tíma eftir að Guðlaugur Þór seldi bankanum umboðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning