Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Óttar upplifir ellismánun á Íslandi: „Umræðan á netinu er mjög hatrömm“

Óttar Guðmundsson á túni.
Óttar Guð­munds­son á túni. Mynd: Læknablaðið.

„Þeir sem hæst láta á netinu eiga það sammerkt að vilja þagga niður í “elliærum gamalmennum” með öllum ráðum,“ segir geðlæknirinn og pistla­höfundurinn Óttar Guðmundsson. Hann segir að umræðan í netheimum sé afar hatrömm og reglulega verði hann fyrir ellismánun. Þegar fólki mislíki eitthvað sem hann hefur skrifað í pistlum sínum er hann oft kallaður „elliær kall­fauskur“, „hálfviti“ eða „svokallaður geðlæknir“.

Óttar birti skoðun sína á vefnum Lífið er núna. Hér kemur pistill hans í heild sinni:

„Umhverfi pistla­höfunda hefur breyst mikið í áranna rás. Lesendur eru mun viðkvæmari en fyrr. Fólk á til að móðgast út í það óendanlega fyrir hönd annarra. Samfélags­umræðan  er full af hættu­legum jarð­sprengju­svæðum. Það úir og grúir af pólitískum varð­hundum á netinu sem gelta hátt ef einhver villist út af réttri braut. Netið viðheldur þannig ákveðinni skoðana­kúgun í nafni rétt­hugsunar.

Umræðan á Íslandi er því einhæf þar sem ákveðnir valinkunnir álits­gjafar gefa tóninn og kommenta­kerfið endurómar skoðanir þeirra. Fastur pistla­höfundur til margra ára verður að haga seglum eftir vindi. Það hefur þó ekki alltaf tekist og ég hef uppskorið mikinn reiði­lestur netverja vegna ógætilegra ummæla. En stundum hefur mér heppnast ágætlega og fengið mikið hrós í pottum sund­lauganna og frá fisk­salanum mínum.

Vinsælustu pistlarnir eru venjulega þeir sem fólk tengir við tilfinninga­lega. Ég skrifaði einu sinni pistil sem kallaðist “Ertu enn?” Hann höfðaði til fjölmargra sem í sífellu fá  spurninguna hvort þeir séu enn að vinna, enn í gamla húsinu eða enn að keyra bíl. Samfélagið gengur útfrá því að gamalt fólk eigi að leggja árar í bát á ákveðnum aldri og bíða dauða síns með golfkylfu í hendi.

Umræðan á netinu er mjög hatrömm og fæstir virðast óttast meiðyrða­löggjöfina. Þegar netinu mislíkar eitthvað sem ég hef skrifað er ég venjulega kallaður “elliær kall­fauskur,” “hálfviti” eða “svokallaður geðlæknir.” Það er lærdóms­ríkt fyrir eldri borgara hversu fljótir menn eru að grípa til ellismánunar þegar eldri maður á í hlut. Sömuleiðis er þess krafist að ég hætti að vinna enda eiga “karlæg gamalmenni” að halda sig innan veggja skilgreindra stofnana. Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju ummæli sem þessi gagnvart eldri borgurum eru ekki skilgreind sem haturs­orðræða eins og sams konar ummæli gagnvart öðrum samfélags­hópum.

Þeir sem hæst láta á netinu eiga það sammerkt að vilja þagga niður í “elliærum gamalmennum” með öllum ráðum. Þau eigi ekkert erindi inn í þjóðfélags­umræðuna. Það skiptir því miklu máli að láta ekki deigan síga heldur halda áfram að tjá sig og viðra skoðanir sínar þótt þær falli utan ramma hinnar viðurkenndu pólitísku rétt­hugsunar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Tíminn er að renna út
Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt