Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Helgi Seljan ávíttur af Siðanefnd Blaðamannafélagsins: „En nú tekur steininn úr“

Nýlega vakti úrskurður Siða­nefndar Blaðamanna­félags Íslands furðu margra er nefndin komst að þeirri niður­stöðu að Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, hefði gerst brotlegur við umfjöllun um Róbert Wessmann, vegna þess að hann hafði þegið laun fyrir bókar­skrif um milljarðamæringinn. En þetta er ekki í fyrsta skipti og sjálfsagt ekki í síðasta skiptið sem Siða­nefndin vekur furðu.

Árið 2007 var hinn þá ungi Helgi Seljan ávíttur fyrir Kastljós­viðtal við Jónínu Bjartmarz, þáverandi umhverfis­ráðherra Framsóknar­flokksins. Viðtalið tók Helgi vegna þess að sambýlis­kona sonar Jónínu hafði fengið að því er virtist, flýti­meðferð við umsókn á ríkis­borgara­rétti. Helgi gekk hart fram gegn Jónínu í viðtalinu og lét hana ekki komast upp með neitt múður. Fyrir vikið kærði Jónína Helga til Siða­nefndar Blaðamanna­félags Íslands sem tók málið fyrir og úrskurðaði að Helgi og Kastljós hefðu gengið of langt og það rétt fyrir kosningar. Síðan þá hefur Helgi vaxið heldur betur ásmeginn og er í dag þekktur sem allra harðasi spyrill og rannsóknar­blaðamaður landsins, þótt víða væri leitað.

Ungur Helgi Seljan og efni­legur

Blaðið (það hét bara það, Blaðið) fjallaði um úrskurðinn á sínum tíma:

Siðanefnd Blaðamanna­félags Íslands: Kastljós RÚV braut siða­reglur

Helgi Seljan, einn umsjónar­manna Kastljóss RÚV, og Ríkis­útvarpið brutu gegn siða­reglum Blaðamanna­félags íslands í umfjöllun um veitingu ríkis­borgara­rétts til sambýlis­konu sonar Jónínu Bjartmarz. Siðanefnd Blaðamanna­félagsins segir að brotið hafi verið gegn 3. grein siða­reglna en samkvæmt henni ber blaða­manni að vanda upplýsinga­öflun sína, úrvinnslu og fram­setningu svo sem kostur er og sýna fyllstu tillitssemi í vanda­sömum málum. Þá ber blaða­manni að forðast allt sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu.“

Blaða­maður Blaðsins flutti Jónínu fréttirnar í gær og þá hafði hún ekki ákveðið hvert næsta skref hennar yrði í málinu. Kastljós sendi í gær frá sér athuga­semdir vegna úrskurðar siða­nefndar. „Ekki verður annað séð en með þessum orðum sé siðanefnd BÍ að beina því til fjölmiðla að fjalla eigi öðruvísi um mál sem tengjast kjörnum fulltrúum rétt fyrir kosningar. Kastljós notar sömu viðmið í blaða­mennsku í öllum málum óháð árstíðum eða því hvort kosningar eru í nánd.“ Og síðar: „Hvers vegna kýs Siðanefnd að líta framhjá kjarnanum í þessari umfjöllun Kastljóss?

Illugi Jökulsson fjölmiðla­maður með meiru tók upp hanskann fyrir Helga og Kastljós með pistli í sama blaði, Blaðinu, þremur dögum eftir úrskurðinn:

Fárán­legur úrskurður um Kastljós

Siðanefnd Blaðamanna­félags íslands er orðin hættuleg almennilegri fjöl­miðlun í landinu. Endanleg sönnun þess fékkst um daginn þegar nefndin úrskurðaði að Helgi Seljan og Kast­ljósið hefðu framið „alvarlegt brot“ gegn góðum vinnu­reglum með umfjöllun sinni um Jónínu Bjartmarz og ríkis­borgararétt tengda­dóttur hennar. Þann úrskurð munu þeir helst vilja nota sér til fram­dráttar sem sjá sér hag í að kveða í kútinn allar tilraunir fjölmiðla til að rannsaka mál á eigin spýtur og jafnvel í beinni andstöðu við máttar­völdin.

Jónína Bjartmarz

Hinn eftir­sótti ríkis­borgara­réttur

Svo ég rifji málið upp í örstuttu máli, þá snerist það um að tengda­dóttir þáverandi umhverfis­ráðherra sótti um íslenskan ríkis­borgararétt til allsherjar­nefndar Alþingis. Og allsherjar­nefnd veitti henni ríkis­borgara­réttinn á mettíma þótt ekki væri séð að stúlkan hefði betri forsendur en aðrir til að fá hinn eftir­sótta rétt. Spurningin snerist altso um hvort ráðherra í ríkis­stjórn Íslands hefði beint eða óbeint beitt áhrifum sínum til að fjölskyldu­meðlimur fengi sérstaka fyrir­greiðslu sem fáum öðrum stóð til boða. Slíkt heitir spilling, sem kunnugt er. Kastljósi og Helga Seljan til ævarandi hróss var ákveðið að fjalla um málið enda þótt aðeins væru fáeinar vikur til kosninga. Flestir hinir „virðulegri“ fjöl­miðlar á íslandi hefðu kannski kosið að geyma málið. Af tillitssemi við stjórn­málamenn í kosninga­baráttu. Og hinn allra „virðulegasti“ hefði væntanlega kosið að fjalla alls ekki um málið. Það ætti ekki „erindi“ til pöpulsins. En Kastljós fór af stað. Þökk sé því.

Samtryggingakerfi

Til að byrja með gekk Kastljósi mjög illa að fá nokkrar upplýsingar um málið. Allar dyr lokuðust undir eins. Ég hugsa að Vilmundur heitinn Gylfason hefði dustað rykið af frasanum sínum um „samtrygginga­kerfi“ íslenskra stjórn­málamanna. Það leiddi aftur á móti til þess að í fyrstu fréttum Helga Seljan af málinu voru nokkur atriði ónákvæm um framgangs­mátann þegar ríkis­borgara­réttur er veittur. Og eitthvað missagt eins og gengur. Þessi atriði voru leiðrétt jafnóðum og tókst að draga upplýsingar fram í dags­ljósið og breyttu þó engu um grundvallar­spurningu málsins: Hafði Jónína Bjartmarz misbeitt valdi sínu eða aðrir sveigt og togað venjulegar reglur af því hér átti í hlut skjólstæðingur ráðherra? Því hafnaði Jónína mjög eindregið eins og við munum. Og ekki öll kurl komin til grafar um það enn þá. Koma kannski aldrei. En hitt má aldrei fara milli mála – að umfjöllunar­efni frétta Kast­ljóssins var ekki bara gott og gilt, heldur bæði nauðsynlegt og brýnt. Og því miður ekki algengt að gengið sé jafn skörulega á hólm við stjórnvalds­aðgerðir íslenskra ráðamanna og þarna var gert. Það væri samt afnógu að taka. Vinnu­brögð Helga Seljan voru líka svo vönduð og nákvæm sem kostur var miðað við aðstæður – sem sagt þá staðreynd að hann kom alls staðar að harðlæstum dyrum.

Að gæta siðprýði – ekki sann­leikans

Jónína Bjartmarz kærði til siða­nefndar Blaðamanna­félagsins og nú hefur sú nefnd sem sagt fellt sinn úrskurð. Þessi siðanefnd hefur lengi verið vandræða­gripur þar sem hún virðist líta svo á að það sé hlutverk fjölmiðla að gæta siðprýði í landinu en ekki leita sann­leikans. Flestir úrskurðir hennar undan­farin ár eru að engu hafandi – en nú tekur steininn úr. Nánast án rökstuðnings kveður nefndin upp úr með að vinnu­brögð Helga og Kastljóss séu „alvarlegt brot“ á siða­reglum af því þar hafi ekki allt verið hárnákvæmt frá byrjun. Gildir einu hvað við var að eiga. Og svo kemur nefndin endanlega upp um sig þegar hún nefnir í umfjöllun sinni að stutt hafi verið til kosninga þegar málið kom upp. Felst ekki í því að fjöl­miðlar eigi að fara með silki­hönskum um stjórn­málamenn rétt fyrir kosningar? Svo ekki falli hugsanlegt kusk á hvít­flibbann? Ég skil satt að segja ekki hversu lengi blaðamenn ætla að sætta sig við að halda sjálfir úti nefnd sem hvað eftir annað leggst eins og mara á eðlilega og jafnvel framsækna fjöl­miðlun í landinu – allt í nafni úreltra siða­reglna. Og fyrr­nefndrar siðprýði. En hefur þær einu afleiðingar að fjöl­miðlar sem gera tilraun til að fylgjast með og veita valdhöfum aðhald fá skömm í hattinn. Er það ekki hlutverk einhverra annarra en blaða­manna sjálfra að bæla niður opna fjöl­miðlun í landinu?

Hægt er að hlusta á viðtal Helga við jónínu hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning