Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Guðlaugur Þór bað um óskalag

Guðlaugur Þór Þórðarson Mynd / Alþingi
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Mynd / Alþingi

Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfis­ráðherra mun í dag lýsa því yfir formlega hvort hann muni taka slaginn við Bjarna Benediktsson fjármála­ráðherra um formanns­stólinn í flokknum. Guðlaugur Þór var búinn að segja sínum nánustu samherjum í Huldu­hernum frá því fyrir nokkru að hann væri ákveðinn að fara í slaginn, eins og Mannlíf greindi frá í síðustu viku. Undir­búingur hefur staðið um langt skeið og telja menn Guðlaugs sig ráða nógu stórum hluta landsfundar­fulltrúa til að leggja Bjarna að velli.

Reiknað var með yfir­lýsingu hans í um miðja seinustu viku. En svo virtist sem hann fengi skyndlega kalda fætur, stuðnings­mönnum sínum til undrunar. Hann lýsti ekki yfir framboði en sagðist vera hugsi. Þannig hafa dagarnir liðið áfram án þess að hann kveði upp úr um það hver áformin eru. Hann hefur lítið tjáð sig í fjöl­miðlum en var þó í stuttu viðtali í poppþætti á útvarps­stöðinni Bylgjunni í gær þar sem hann bað um óskalagið Bohemian Rhapshody með Queen. „Is this just fantasy …,“ er spurt í textanum og svo „I’m just a poor boy“.

Í dag mun þó draga til tíðinda. Guðlaugur Þór hefur boðað til fundar þar sem hann ætlar að upplýsa um áform sín Sumir telja það klókt hjá honum að segja ekkert en leyfa umræðunni að grassera. Bjarni ber þess merki að vera tauga­veiklaður og það kann að hjálpa.

Vandinn er hins vegar sá að Bjarni kann sitt fag. Þegar Hanna Birna Kristjáns­dóttir dómsmála­ráðherra fór gegn honum kom Bjarni með grátstafinn í kverkunum í sjónvarps­viðtal, sýndi mannlega hlið, og sópaði til sín fylgi sem dugði til að standast áhlaup ráðherrans sem seinna hætti með skömm vegna Leka­málsins.

Nú er staðan sú að Guðlaugur Þór hefur engu að tapa lengur. Líklegt er að Bjarni hendi honum út úr ríkis­stjórn við fyrsta tækifæri, hvort sem Guðlaugur Þór tekur slaginn eða ekki. Það er skollið á stríð í flokknum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Slúður