Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Breskur faðir lést úr salmonellu í fjölskyldufríi á Kanaríeyjum: „Einn af góðu strákunum“

Blessuð sé minning hans.
Blessuð sé minn­ing hans. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Leslie Green, 70 ára, naut fjöl­skyldu­frís á fjög­urra stjörnu dval­ar­stað á Kanarí­eyjum þegar hann veikt­ist af salmon­ellu og var fluttur á sjúkra­hús þar sem hann lést síðar.

Breskur faðir lést á hörmu­legan hátt eftir að hafa smit­ast af salmon­ellu í fríi með fjöl­skyldu sinni á Kanarí­eyjum í fyrra en breskir miðlar segja frá mál­inu í dag.

Þann 1. októ­ber 2024 komu Leslie Green og kona hans Julie á fjög­urra stjörnu dval­ar­stað­inn Occidental Jandia Playa á Fuer­teventura. Fríið var bókað til að halda upp á afmæli þeirra hjóna en aðeins átta dögum síðar, 9. októ­ber, veikt­ist Leslie.

Einkenni Leslie hófust með nið­ur­gangi sem leiddi til ofþorn­unar og ástand hans versn­aði hratt. Lækn­ir­inn á dval­ar­staðnum hitti hann 12. októ­ber og lét flytja hann með sjúkra­bíl á heilsu­gæslu­stöð á staðnum til að gefa honum vökva. Líðan hans batn­aði hins vegar ekki og var hann lagður inn á sjúkra­hús dag­inn eftir.

Þegar Leslie var á sjúkra­húsi, greindur með salmon­ellu, upp­lifði hann alvar­lega fylgi­kvilla, þar á meðal nýrna­bilun, lungna­bólgu og blóð­sýk­ingu en það er ástand þar sem við­brögð lík­am­ans við sýk­ingu valda því að hann ræðst á sjálfan sig. Þrátt fyrir að hafa verið haldið sof­andi, hélt heilsu hans áfram að versna og lækn­arnir urðu hjálp­ar­vana.

Leslie, sem hafði fagnað sjö­tugs­af­mæli sínu í júlí 2024, lést aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að slökkt var á önd­un­ar­vél­inni hans 4. nóv­em­ber. Dóttir þeirra, Becci, 35 ára, flaug út til að styðja for­eldra sína og var við­stödd þegar slökkt var á önd­un­ar­vél föður hennar. Elsta dóttir þeirra, Sarah, 38 ára, sem glímir við nýrna­bilun á loka­stigi, hafði nýlega verið sleppt af gjör­gæslu og var lík­am­lega óhæf til að ferð­ast.

Flogið var með lík hans aftur heim viku síðar og krufn­ing fór fram 18. nóv­em­ber, en enn er beðið eftir nið­ur­stöðum.

Julie, sem er opin­ber aðstoð­ar­hjúkr­un­ar­fræð­ingur á eft­ir­launum, lýsti áhyggjum af mat­væla­ör­yggi á dval­ar­staðnum, þar á meðal volgri carbonara sósu og van­eld­uðum kjúklingi. Hún benti enn­fremur á skort á hand­þvotti meðal starfs­fólks og þá venju að blanda ferskum réttum saman við rétti sem höfðu orðið afgangs.

Nið­ur­brotin Julie sagði: „Ég vissi fljót­lega að þetta var alvar­legt og að þetta væri ekki ein­hver sól­ar­hringspest. Nokkrum dögum síðar var hann á sjúkra­húsi og svo viku síðar var ég þar líka. Ég var heppin að því leyti, þó ég hafi verið illa farin, var ég ekki eins slæm og Leslie. Að sjá hann á sjúkra­húsi síð­ustu dag­ana var hræði­legt. Hann leit svo veik­burða út og mér leið svo bjarg­ar­lausri, ég gat ekki gert neitt fyrir hann. Að kveðja Leslie og sjá líf hans renna út er eitt­hvað sem ég held að ég kom­ist aldrei yfir.“

Julie minnt­ist Leslie sem „einum af góðu strák­unum“, góður og blíður maður sem elskaði fjöl­skyldu sína, naut þess að veiða, spila pílu­kast og pool og styðja fót­boltalið sitt, Bury FC. Hún sagði: „Ég get ekki enn skilið hvernig við fórum í frí saman, en Leslie kom aldrei heim. Ef það væri ekki fyrir sárs­auk­ann sem ég vakna með dag­lega, myndi það næstum ekki virð­ast raun­veru­legt. Við Leslie áttum svo mörg áform um það sem við ætl­uðum að gera þegar við værum hætt að vinna, en mér finnst ég svikin yfir því að þau hafi verið tekin frá okkur á hinn grimmi­leg­asta hátt. Það minnsta sem ég á skilið eru svör.“

Lög­mað­ur­inn Jennifer Hodgson, alþjóð­legur sér­fræð­ingur í alvar­legum meiðslum hjá Irwin Mitchell, sem er full­trúi Julie, tjáði sig um alvar­leika ástands­ins: „Þetta er mál veldur gríð­ar­legum áhyggjum þar sem frá­sagnir ann­arra við­skipta­vina okkar sem gistu á dval­ar­staðnum á sama tíma, lýsa svip­aðri reynslu.“

Hún hélt áfram að leggja áherslu á alvar­leika þessa sjúk­dóms: „Aldrei ætti að gera lítið úr áhrifum salmon­ellu og ann­arra maga­sjúk­dóma. Þeir geta leitt til alvar­legra fylgi­kvilla sem leiða til alvar­legra meiðsla og því miður dauða, eins og mál Leslie und­ir­strikar á hörmu­legan hátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Ingvar Þóroddsson hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og segist nú munu starfa í stjórnarandstöðu.
Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Heimur

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Í rannsókn sem birtist í JAMA Pediatrics var könnuð reynsla fólks sem hóf hormónameðferð á unga aldri. Langflestir töldu meðferðina rétta ákvörðun.
Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni