Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Einar Kárason: „Ekki lausn að sniðganga lönd eins og Qatar“

Einar Kárason rithöfundur segist ekki skilja í þeirri hugmynda­fræði að vilja banna gömul listaverk, bækur og kvik­myndir. Einar, sem er einn farsælasti rithöfundur Íslands er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar. Hann fékk sjálfur yfir sig holskeflu af reiði eftir að hafa tekið upp hanskann fyrir J.K Rowling, höfund Harry Potter bókanna:

„Mér finnst það í stuttu máli algjör­lega ömurleg þróun sem hefur verið í gangi, þar sem fólk er farið að taka bæði nútíma­listaverk og klassísk listaverk og ráðast gegn þeim, útbreiðslu þeirra, sölu og útgáfu. Þetta er herfileg þróun. Það merkilega er að það eru vissir hópar sem standa fyrir því að vilja banna hluti sem eru mjög ólíkir innbyrðis. Fyrsta bylgjan kom frá kristnum strangrúarmönnum í Banda­ríkjunum sem vildu láta banna allan fjandann, af því að það væri ekki nægur kristilegur andi í verkum eða andkristilegur andi. Síðan koma ofur­frjáls­lyndir og fólk af vinstri kantinum, orðið „woke“ nær að einhverju leyti yfir þetta. Það fer að gera aðsúg að bókum og lista­verkum af því að því líkar ekki eitthvað í titlinum eða frásögninni. Ég held að það hafi verið teknar nærri 3 þúsund bækur af markaði í Banda­ríkjunum í fyrra vegna þrýstings frá ólíkum hópum og þessi frjáls­lyndi og víðsýni hópur er í raun orðinn afkasta­meiri í þessu. Svo eru útgefendur mjög viðkvæmir fyrir árásum frá hópum af þessu tagi, af því að það gengur allt út á ímyndina,“ segir Einar og heldur áfram:

„Eitt er þegar verið er að gera aðsúg að styttum, sem manni finnst reyndar líka gengið út í öfgar, en svo er þetta farið að ná yfir í tónlist, ljóðlist og bókmenntir frá mönnum sem höfðu vitlausa afstöðu fyrir mörg hundruð árum. Þetta er algjör­lega ömurleg þróun af því að listir eiga að vera vettvangur frjálsrar hugsunar. Þetta er farið að ganga gegn því dýrmætasta í okkar menningar­arfi eins og Passíu­sálmunum.“

„Ég ætla nú ekki að fara mikið út í þetta með J.K Rowling þegar ég tók upp hanskann fyrir hana, en til að byrja með var upphaf­punkturinn að konur ættu ekki að þurfa að koma inn í sturtu­klefa þar sem einhver væri með slátrið milli fótanna. En svo fór hún á Twitter og sagði hluti sem ég er ekki endilega sammála. En þetta er einn af mikil­vægustu rithöfundum okkar samtíma. Það eru heilu kynslóðirnar sem eru orðnar að bókafólki út af Harry Potter bókunum. Það var mjög skrýtið fyrir mig að átta mig á því að það væri upp til hópa fólk úr mínum eigin flokki, Samfylkingunni og fólk úr rithöfunda­sambandinu sem var að ráðast á það sem ég sagði. Ef að eitthvað á að vera múrbrjótur á móti fasisma og miðalda­hugsun, þá eru það frjáls­lyndar stjórnmála­hreyfingar og höfunda­sambönd.“

Undan­farið hefur farið fram mikil umræða um mann­réttindi í Qatar, þar sem heims­meistara­mótið í knatt­spyrnu fer nú fram. Einar segir ömurlegt að sjá allar tegundir af kven­fyrirlitningu og mismunun á fólki, en hins vegar verðum við að velta því upp hvort hægt sé að halda stórmót eingöngu í löndum sem okkur á vestur­löndum séu þóknanleg:

„Þessi ömurlega kven­fyrir­litning á þessum slóðum og umburðar­leysi gagnvart öllum frávikum er ekkert annað en viðbjóður. En þessir hlutir hafa ekki orðið verri við að halda mótið í Qatar og meira að segja hefur mögulega eitthvað skánað. Það hafa verið haldin heims­meistaramót í Argentínu þegar þar var ömurleg herforingja­stjórn og líka mótið í Rússlandi og Ólympíu­leikar í Kína, þar sem mann­réttinda­brot eru mjög algeng. Ef við myndum bara sætta okkur við að stórmót sem þetta væri haldið í löndum sem falla að okkar hugmyndum um lýðræði og kerfi eins og við viljum hafa það, væri ansi lítið eftir. Það að sniðganga alveg lönd er ekki nein lausn í mínum huga,“ segir Einar og heldur áfram:

„Við verðum líka að muna að þessir strákar sem eru mættir þarna til að spila fótbolta hafa ekkert gert af sér og virka nú bara upp til hópa góðir drengir. Við höfum séð það sem Íranirnir gerðu til að mótmæla ástandinu heima fyrir og aðrir hafa virst allir af vilja gerðir til að sýna hinsegin samfélaginu stuðning. En þeir eru búnir að undirbúa sig undir þetta mót í áraraðir og eiga ekki skilið neina fyrirlitningu eða leiðindi.“

Hann segir þetta áhuga­verða siðferði­lega umræðu og segist til dæmis sjálfur í þeirri stöðu að bækur hans séu gefnar út í löndum þar sem honum mislíkar stjórnar­farið:

„Ég skrifa og gef út bækur sem hafa verið gefnar út víða um lönd og þá kemur upp spurningin hvort ég eigi að skoða mann­réttindamál í öllum löndum sem vilja gefa út bækur eftir mig áður en ég ákveð hvort það megi gefa hana út. Það er líklega fólk sem vill lesa bækurnar mínar í þessum löndum sem er ekki endilega hrifið af eigin stjórn­völdum. Bókin mín, Storm­fuglar var til dæmis gefin út á arabísku og hebresku, en það þýðir ekki að ég sé að leggja blessun mína yfir meðferð Ísraela á Palestínu eða meðferð á konum í Mið-Austur­löndum. Maður er ekki að leggja blessun sína yfir mann­réttindamál í Kína þó að bókin mín sé gefin út þar. Á endanum verðum við að spyrja okkur hvert það leiðir okkur að slíta öll tengsl við ákveðin lönd.“

Einar fer í þættinum yfir ferilinn og segir að hann hafi ákveðið að verða rithöfundur strax sem barn:

„Ég ákvað 9 ára að verða rithöfundur og þetta var alltaf það sem ég vildi gera. Þegar ég var krakki var ég að skrifa sögur um Tarzan og fleira, meðal annars af því að ég vildi lesa fleiri sögur um ákveðna karaktera og varð þá bara að skrifa þær sjálfur. Fyrst þegar ég byrjaði að skrifa bækur var ég oft mjög óviss um það sem ég var að gera, en svo byrjar maður að treysta ferlinu með reynslunni. Rétt eins og múrari eða pípari sem kann sitt fag, þá veit maður hvað maður er að gera þegar maður er búinn að vera lengi í faginu og veit hvernig bækur maður vill skrifa. Oft seljast alveg frábærar bækur með mikið bókmnenntagildi ekkert sérstak­lega vel, þannig að maður lærir líka að það er ekki samasemmerki á milli sölu og gæða. Bækur eftir Sjón og Gyrði Elíasson eiga ekki séns í spennu­sögur svo dæmi sé tekið.“

Nýjasta skáldsaga Einars, Opið Hafi, byggir á sönnum atburðum eins og tvö síðustu verk hans. Bókin fjallar um eitt rosalegasta afrek Íslands­sögunnar, þegar Guðlaugur Friðþórsson synti alla leið til lands eftir að hafa farið í sjóinn 7 kílómetra fyrir austan Vestmanna­eyjar:

„Þetta hefur leitað á mig alveg frá því að ég heyrði þetta fyrst, enda rosalegur atburður. Ég hafði hugsað um þetta í 30 ár, en fannst ég ekki geta troðið á einkalífi Guðlaugs. En svo gerist það fyrir algjöra tilviljun að hann bætir mér sem vini á Facebook og var mjög sammála einhverju sem ég hafði skrifað. Ég  sendi honum þá strax línu og sagði honum að ég væri búinn að hugsa um þetta allan þennan tíma en hafi ekki viljað snerta á því nema með samþykki hans. Hann sagðist hafa hugsað mikið um þetta og sagðist hafa hugsað mig sem þann sem ætti að skrifa þetta ef einhver myndi gera þetta. Þannig að það var eiginlega eins og þetta hafi verið skrifað í skýin. Þetta varð mér mikil uppörvun og ég hófst bara handa við að skrifa.“

https://www.youtube.com/watch?v=yJRUbm6f_PM&t=81s

Þáttinn með Einari og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning