Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Pólar Hestar -draumur og dýrðlegheit í hreinu sveitalofti

Pólar Hestar er fjölskyldu­fyrirtæki á Grýtu­bakka við Eyjafjörð, rekið af hjónunum Stebba, Júllu og syni þeirra Símoni. Þar er boðið upp á bæði stuttar og langar hesta­ferðir sem henta allri fjöl­skyldunni.

Á Grýtu­bakka er ekki einungis að finna hesta, heldur einnig kindur, hænur, hunda, ketti og kanínur. Þar má líka finna kaffihús, en kaffið rennur ljúft niður í fallegri nátt­úrunni. Dásamlegt útsýnið lætur mann finna fyrir smæð sinni þar sem fjall­garðurinn umlykur og minnir helst á ævintýra­mynd úr sjónvarpi.

Hér má sjá Símon gefa Binna góð ráð varð­andi reið­mennsku.

Símon mun hér eftir vera kallaður ljúflingurinn, því ljúfari manneskju hef ég ekki hitt. Hann er þolinmóður þegar hann kennir fólki hvernig skuli sitja hest og svo skín samkenndin úr öllu hans fasi þegar hann verður var við ótta hjá einhverju okkar. Þá má heyra hann segja með sinni blíðu rödd „engar áhyggjur“ og „ég er hérna ef þig vantar eitthvað“.
Símon býr í Reykjavík og lærir rússnesku. Hann segist vera heppinn að fá það besta af báðum stöðum; skemmtunina af því að búa í höfuð­borginni og gleðina við vinnuna að taka á móti ferða­fólki í ferða­þjónustunni heima hjá Pólar Hestum

Það er greinileg nánd sem finnst vel í öllu sem fjöl­skyldan gerir. Þau eru fyrst og fremst þau sjálf og elska að njóta þeirra forréttinda að fá að leyfa okkur að taka þátt í þeirra ástríðu.

Sjálf fékk ég á dögunum að njóta þess í eigin persónu að fara með þeim í reiðtúr og í kjölfarið bókaði ég þriggja daga ferð fyrir stór­fjöl­skylduna eftir þessa mögnuðu upplifun.

Hjá Pólar Hestum er passað vel upp á alla.

Vill hvergi annarsstaðar vera

Stebbi flutti með foreldrum sínum þegar hann var sex ára pjakkur að Grýtu­bakka 2, þar sem hann býr enn og lýsir því sem algjöru ævintýri. Hann segist hvergi annarstaðar vilja vera. Hér ól hann upp son sinn, hann þekkir hverja þúfu og hvern hól. „Hér er heima og hvergi annarstaðar.“

Hann og Júlla sýna þess merki að ástin minnkar ekki með árunum, heldur bara eykst. Þau eru stolt af því sem þau hafa byggt upp saman og það glyttir í stríðni á milli þeirra eins og þau séu nýbyrjuð saman og með fiðrildin í maganum.

Þau hjónin taka vel á móti þeim sem heimsækja þau og þau eru svo sannarlega höfðingjar heim að sækja. Eftir skemmtilega reið­túrinn okkar komum við inn í hús og þar beið okkar rjúkandi kaffi og heima­gerðar kökur. Hér er metnaður lagður í allt og allt gert af natni og nákvæmni.

Pólarhestar er staður sem allir verða að heimsækja allavega einu sinni á ári, því hér er eitthvað fyrir alla og vinalegt viðmótið lætur manni líða eins og maður sé í sinni heima­sveit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur