Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

Stein­grímur Ingi Björns­son, raf­virkja­meist­ari, versl­un­ar­maður og fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu, lést á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Hlíð á Akureyri þriðju­dag­inn 13. októ­ber, 85 ára að aldri. Hann lést í faðmi fjöl­skyldu sinnar. Akureyri.net sagði frá and­lát­inu.

Stein­grímur fædd­ist í Lyng­holti í Gler­ár­þorpi 26. júní 1941. Hann var einn af öfl­ugum knatt­spyrnu­mönnum Akur­eyrar á sínum tíma og varð fyrsti leik­maður Þórs sem val­inn var í íslenska A-lands­liðið.

Stein­grímur stund­aði knatt­spyrnu frá unga aldri og lék með Þór og Íþrótta­banda­lagi Akur­eyrar (ÍBA). Hann var þekktur fyrir hraða sinn sem fram­herji og lék með ÍBA í efstu deild á árunum 1958 til 1969. Á þeim tíma skor­aði hann 41 mark í 73 leikjum.

Hann lék fjóra A-lands­leiki fyrir Íslands hönd á árunum 1960 til 1962 og skor­aði eitt mark. Það kom í 4:1 sigri Íslands á Hollandi á Laug­ar­dals­velli árið 1961.

Eftir að leik­manna­ferl­inum lauk lét Stein­grímur áfram til sín taka í knatt­spyrn­unni, meðal ann­ars við þjálfun, dóm­gæslu og ýmis félags­störf.

Stein­grímur lærði raf­virkjun við Iðn­skól­ann á Akureyri og lauk námi með meist­ara­bréfi. Hann starf­aði lengi við raf­virkjun en sinnti versl­un­ar­störfum lengst af starfsæv­innar.

Eig­in­kona Stein­gríms var Gunnur Gunn­ars­dóttir, fædd 1944. Þau gengu í hjóna­band 10. sept­em­ber 1961 og eign­uð­ust fimm börn: Rúnar, Höllu, Hörpu, Heiðu og Huldu. Barna­börnin eru fjórtán.

For­eldrar Stein­gríms voru Björn Árni Björns­son og Kristín Aðal­steins­dóttir. Systkini hans voru Krist­björg, Jóhanna Kristín B. Aust­fjörð, Aðal­steinn og Krist­björn, sem öll eru látin.

Útför Stein­gríms Inga fór fram frá Gler­ár­kirkju í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Minning

Séra Hjalti Þor­kels­son er fall­inn frá

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

„Guðjón var með ótrú­lega áru og per­sónu­töfra“

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá