Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Þrettánda(ó)gleðin á Selfossi 1982: „Bensínsprengjur höfðu verið útbúnar og þrjár slíkar sprengdar“

Þrettánda­gleðin á Selfossi hafði árin á undan oft verið ansi lífleg en árið 1982 breyttist hún í algjörar óeirðir þegar um þrjátíu ungmenni tóku upp á því að loka götum bæjarins og ráðast á lögreglu­menn með bensín­sprengjum og grjóti. Engin meiðsl urðu á fólki en einn lögreglu­bíll var skemmdur í látunum. Þá var einni bensín­sprengju kastað á samkomu­húsi, fullu af fólki.

DV fjallaði um Þrettánda­gleðina daginn eftir:

Mikill æsingur á götum Selfoss í gærkvöld: Ráðizt að lögreglu með flösku- og grjót­kasti

Lögreglu­bíll skemmdur og 30 manns fékk að heimsækja fanga­geymslur

Mikill æsingur greip um sig á götum Selfoss í gærkvöldi og þurfti lögreglan aö fjarlægja um þrjátíu manns af þeim sökum. Hin árlega þrettánda­gleði fór fram á Selfossi í gærkvöldi en undan­farin ár hefur sú gleði kostað múgæsing. Lögreglan á Selfossi var því viðbúin látum að þessu sinni og hafði fengið aukalið frá Reykjavík sér til hjálpar. Strax er skemmtunin var að byrja þurfti lögreglan að byrja að fjarlægja fólk vegna óspekta. Æstist leikurinn til muna er leið á kvöldið en þá var haldinn dans­leikur í Selfoss­bíói. Nokkur ungmenni reyndu að loka götum bæjarins og er lögreglan reyndi að stöðva leikinn var hafizt handa gegn henni. Ungmennin köstuðu flöskum og grjóti að lögreglu­mönnum og hlutu nokkrir þeirra meiðsl. Þá var einn af lögreglu­bílum grýttur. Einnig var nokkuð um rúðubrot í bænum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var gífur­legur mann­fjöldi saman­kominn í bænum og margir komnir langt að. Það munu þó einungis hafa verið heimamenn sem í ólátunum stóðu. Þá sagði lögreglan að búizt hefði verið við átökum eftir reynslu fyrri ára. Ekki var vitað hvaða stefna yrði tekin í áfram­haldandi þrettánda­gleði á Selfossi. Margir munu þó telja að bezt væri að leggja gleðina niður. –

Nokkrum mánuðum síðar birti DV frétt um málið sem þá hafði verið rann­sakaði um nokkurt skeið. Kom þar í ljós að óeirðirnar hefðu verið vandlega skipulögð af nokkrum einstaklingum. Þó að einungis hafi þremur bensín­sprengjum verið kastað hafi verið búið að útbúa nokkra tugi þeirra.

Þettándaólætin á Selfossi voru vandlega undirbúin af nokkrum einstaklingum

Höfðu útbúið nokkra tugi bensín­sprengja —að því er fram hefur komið við rannsókn

Óeirðirnar sent urðu á Selfossi á þrettándanum hafa heldur belur dregið dilk á eftir sér, fyrir suma að minnsta kosti. Lögreglu­yfirvöld i Árnes­sýslu hafa rannsakað aðdrag­anda og aðild einstaklinga að ólátunum og voru 40 einstaklingar yfir­heyrðir vegna þessa, ýmist sem vitni eða sakborningar. Þar af voru 5 yngri en 16 ára. Ljóst virðist að ólætin voru vandlega undirbúin af nokkrum einstaklingum. Bensín­sprengjur höfðu verið útbúnar og þrjár slíkar sprengdar fyrir miðnætti þetta kvöld. Þar af var einni kastað í vegg samkomu­hússins um miðnætti, en þá voru milli 250 og 300 manns inni í húsinu. 32 bensín­flöskur voru gerðar upptækar úr bifreið einni um kl. 23. Eigendurnir höfðu ekki náð að sprengja neitt en viðurkenndu að slíkt hefði verið ætlunin. Skömmu áður höfðu 25 heima­tilbúnar púður­sprengjur verið teknar úr annarri bifreið. Hátt i 200 flöskum var safnað saman og stolið á dans­leiknum i Selfoss­bíói og voru þær ætlaðar til óspekta síðar. Eldur var kveiktur á Hafnar­planinu um kl. 22 og síðan, um það leyti er dans­leiknum var að ljúka, var ruslagámi ýtt út á Eyrarveg og kveikt í honum. Þegar lögreglan kom að var tekið á móti henni með flösku­kasti og var það upphaf ólátanna. Þá fyrst var lögreglu­flokkurinn kallaður út, segir í yfirliti frá rann­sókninni. Á meðan lögreglan reyndi að dreifa hópnum var kastað í hana flöskum, sumum fullum af bensíni og svo grjóti. Fyrirliði lögreglu­liðsins, sem frá Reykjavík kom, heimilaði mönnum sínum að beita kylfum til varnar, en til þess kom ekki. Engin slys urðu á fólki og ekkert teljandi eignatjón, utan skemmdir á lögreglu­bifreið og rúðubrot í barna­skólanum. Lögreglan í Árnes­sýslu hefur nú kært stóran hóp ungmenna lil sýslu­manns. Að sögn Karls F. Jóhanns­sonar fulltrúa er sumum þeim málum lokið með sektum og dómsátt. Öðrum og alvarlegri brotum verður vísað til rikissaksóknara á næstunni. Ekki liggur ljóst fyrir hversu margir það eru sem hljóta refsingu eða sektir fyrir þátttöku í óeirðunum. Engin kæra eða kvartanir hafa borizt sýslumanns­embættinu vegna framgöngu lögreglunnar þetta kvöld

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis