Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Dominos sendi hótandi lögfræðinga á Fiskikónginn: „Ég varð alveg brjálaður!“

Fiskikóngurinn, Kristján Berg Ásgeirsson, stendur í ólgusjó.
Fiski­kóng­ur­inn, Kristján Berg Ásgeirs­son, stendur í ólgu­sjó.

Kristján Berg Ásgeirsson, sem rekur Fiskikónginn, vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar þrír jakkafata­klæddir lögmenn Dominos á Íslandi mættu til hans í fisk­búðina með hótanir. Þetta var þegar Kristján var að koma sér fyrir með fiskbúð sína á Höfða­bakka þar sem upp komu fljótlega árekstrar milli hans og skyndibita­keðjunnar.

Fiskikóngurinn ræðir opnun fiskbúðar sinnar á höfða­bakka árið 1994 við Morgun­blaðið, sem hann síðar seldi en keypti svo aftur árið 2012, þá af Skúla Sigfús­syni, kenndur við Subway á Íslandi. Hann eignaðist húsnæðið og stríðið við Dominos hófst.

„Ég lenti í því að viðskipta­vinir mínir á Höfða­bakka fengu ekki bílastæði þegar nágranni okkar Domino‘s, sem varáefri hæðinni, auglýsti megaviku. Fyrir vikið minnkaði salan í fiskinum og ég varð alveg brjálaður. Svo fór ég að hugsa málið. Það var alltaf brjálað að gera hjá Domino‘s í megaviku og ég fór að hugsa af hverju ég gerði ekki eitthvað svipað. Þannig að ég ákvað að sjá hvernig það myndi ganga að hafa mega-fiskiviku. Þannig að ég bjó til auglýsingar og keypti heilsíður í Frétta­blaðinu og Mogganum og síðan á mánudags­morgni var bilað að gera. Það var stærsti dagur fisk­búðarinnar frá upphafi,“ segir Kristján Fiskikóngur og heldur áfram:

„Nema hvað að korter yfir sex koma þrír jakkafata­klæddir gaurar inn í fiskbúð til mín. Ég sagði: „Blessaðir strákar. Það er allt að verða búið en hvað get ég gert fyrir ykkur?“ Mennirnir sögðust vera lögfræðingar frá Domino‘s og spurðu hvort ég væri að auglýsa mega-fiskiviku. Ég sagði svo vera og þá sögðu þeir Domino‘s eiga orðið mega og að ég yrði því að hætta að auglýsa mega. Ég gerði þeim ljóst hvaða afleiðingar það hefði fyrir mig en ég hafði planað auglýsingar í útvarpi út vikuna. Náði fram smá hefndum Ég var aðeins pínu­lítill fiskikarl í 40 fermetra húsnæði uppi á Höfða að selja fisk og þegar lögfræðingarnir frá Domino‘s stóðu fyrir framan mig hugsaði ég með mér: „Hver fjárinn“ og úr varð að ég hringdi í félaga minn og spurði hvort hann gæti ekki bara klippt auglýsinguna til og sett píphljóð yfir orðið mega. Það væri ódýrara og ég þyrfti ekki að mæta í stúdíó og tala aftur inn á auglýsingar. Þeir gerðu það og ég hef ekki heyrt í Domino‘s síðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning