Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þorvaldur hótaði ítrekað að myrða lögreglumenn og börn þeirra

„The next time I get a long gun, I will kill every cop I can,“ og bætti síðar við: „Before I die I´m going to kill couple of you motherfuckers.“

Héraðsdómur Reykjavíkur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Þorvaldur Harry Þorvaldsson hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir ítrekaðar hótanir í garð lögreglu­manna á árunum 2023 til 2025. Meðal annars hótaði hann að skjóta lögreglu­menn, drepa börn þeirra og kýla tennurnar úr einum þeirra.

Dómur féll í Héraðs­dómi Reykja­víkur í dag, 17. september. Þorvaldur var ákærður fyrir þrjú brot gegn vald­stjórninni.

Í fyrsta tilvikinu hafði Þorvaldur verið hand­tekinn í Reykjavík og færður í lögreglu­bifreið. Þar hrækti hann á öxl lögreglu­manns með þeim afleiðingum að hrákinn kastaðist á hægri kinn hans.

Við flutning á lögreglu­stöðina við Hverfis­götu hótaði hann síðan þremur lögreglu­mönnum lífláti. Sagði hann meðal annars:

„The next time I get a long gun, I will kill every cop I can,“ og bætti síðar við: „Before I die I´m going to kill couple of you motherfuckers.“

Hótanirnar héldu áfram í fanga­móttöku lögreglu­stöðvarinnar. Þar sagðist Þorvaldur ætla að reyna að drepa alla lögreglu­menn sem hann fyndi næst þegar honum yrði sleppt úr haldi.

„Next time I get locked up, when you let me I am going to try to kill every fucking pig I find, I mean that seriously…get me a long gun,“ sagði hann samkvæmt ákærunni.

Þegar verið var að færa hann í fanga­klefa hótaði hann jafnframt að drepa lögreglu­menn og börn þeirra.

„When I get a long gun I gurantee you I am going to kill at least five of you motherfuckers,“ sagði Þorvaldur og bætti við: „No I am threatening to kill your children.“

Í öðru tilviki var Þorvaldur hand­tekinn í Austur­stræti. Við flutning á lögreglustöð hótaði hann lögreglu­manni líkams­meiðingum.

„Next when I see you and I am sober I am going to beat the shit out of you,“ sagði hann og bætti við: „I will take your teeth out.“

Í þriðja tilvikinu hótaði hann tveimur lögreglu­mönnum eftir handtöku. Sagði hann meðal annars: „I´m going to kill you.“

Þorvaldur mætti ekki við fyrirtöku málsins 8. september þrátt fyrir að ákæra og fyrirkall hefðu verið löglega birt.

Fram kemur í dómnum að Þorvaldur eigi nokkurn sakaferil að baki en eldri brot hafi ekki haft áhrif á refsingu þar sem langt sé um liðið. Hann hafði meðal annars árið 2016 hlotið fimm mánaða fangelsisdóm fyrir brot gegn vald­stjórninni.

Refsing Þorvaldar var ákveðin þriggja mánaða fangelsi. Fullnustu refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skilorð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning