Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Labbi er dauðleiður á hátíðardagskrá RÚV: „Þessar eldgömlu döbbuðu jóla og hátíðarsjónvarpsmyndir“

Goðsögnin Labbi í Mánum.
Goð­sögnin Labbi í Mánum. Mynd: Facebook

Goð­sögnin Labbi í Mánum er dauð­leiður á síend­ur­sýndum jóla­myndum Rík­is­út­varps­ins. Útvarps­mað­ur­inn Ólafur Páll Gunn­ars­son er honum ósam­mála.

Ólafur Þór­ar­ins­son eða Labbi í Mánum eins og hann er yfir­leitt kall­aður, skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hann jós úr skálum pirr­ings­ins vegna sjón­varps­efn­is­ins sem RÚV bíður upp á um jóla­há­tíð­ina.

Í færsl­unni veltir Labbi því fyrir sér hvort ein­hver horfi á „þessar eld­gömlu döbbuðu jóla og hátíða­sjón­varps­myndir sem RUV býður upp á ára­tugi eftir ára­tugi“ og seg­ist ekki minn­ast þess að nokkur þeirra sem hann hefur eytt jól­unum með, hafi horft á þetta efni.

„Mig langar að varpa fram einni spurn­ingu fyrir for­vitn­issakir. Er ein­hver mann­vera sem horfir á þessar eld­gömlu döbbuðu jóla og hátíð­ar­sjón­varps­myndir sem RUV býður upp á ára­tugi eftir ára­tugi? Ég hef flest jól verið með fólki frá nokk­urra ára upp í elli­belgi eins og mig. Ekki minn­ist ég að neitt af þessu fólki, og kannski síst það yngra sem þetta virð­ist þó sniðið fyrir hafi stað­næmst yfir þessu myndefni svona tvo síð­ustu ára­tug­ina alla­vega. En fróð­legt að vita álit ann­ara.“

Við­brögðin við færsl­unni eru á ýmsa vegu en þó eru flestir á sama máli og tón­list­ar­mað­ur­inn. Einn starfs­maður RÚV tók þó upp hansk­ann fyrir rík­is­fjöl­mið­ill en það var útvarps­mað­ur­inn Ólafur Páll Gunn­ars­son, Óli Palli.

Eftir að hafa bent á dag­skrá sem honum fannst góð og verið svarað af konu sem vildi meina að þetta væri ekki nógu fjöl­skyldu­vænt og að ung­ling­ur­inn á heim­il­inu hefði lít­inn áhuga á Johnny King, svar­aði Óli Palli:

„Ég er nú bara neyt­andi eins og þú – finnst sjón­varpið yfir­leitt það gott að ég myndi ekki vilja vera án þess – held hrein­lega að það væri verra að búa á RÚV-lausu landi. Hér erum við að tala um línu­lega dag­skrá og veit að fólkið sem starfar við að stilla upp dag­skrá gerir það af góðum hug og vandar sig mikið. Rúv býður einmitt upp á þannig dag­skrá yfir­leitt að maður veit ekki hvort maður hefur gaman af þáttum eða myndum – fyrr en maður er búinn að horfa. Myndin um Johnny King er ný íslensk mynd sem hefur vakið athygli og hlotið verð­laun. Með því að sýna hana akkúrat í kvöld er RÚV að standa sig í stykk­inu og “tikka” í mörg box-

a) Leggja áherslu á Íslenska menn­ingu.b) Sýna nýja íslenska kvik­mynd.c) Styðja við íslenska kvik­mynda­gerð.d) Segja sögur af íslend­ingum.Og svo fram­vegis.

Ef þú nennir alls ekki að horfa á mynd­ina um Johnny King hlýtur þú að geta fundið eitt­hvað annað í spil­ara RÚV. Eða hvað?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið