Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Tori Spelling og fjögur börn hennar flutt á sjúkrahús eftir harðan árekstur

Talið er að annar öku­maður hafi ekið yfir á rauðu ljósi og á Spelling-fjöl­skyld­una

Tori Spelling
Tori Spelling Tori og börnin voru flutt á spít­ala í þremur sjúkra­bílum Mynd: PHILLIP FARAONE / GETTY IMAGES VIA AFP

Leik­konan Tori Spelling og börn hennar eru að jafna sig eftir nokkuð alvar­legt bílslys sem átti sér stað 2. apríl.

Spelling, sem er þekkt fyrir hlut­verk sitt í þátt­unum Beverly Hills, 90210, var flutt á sjúkra­hús ásamt fjórum af fimm börnum sínum og þremur öðrum eftir slysið. Hún á börnin Liam, Stella, Hattie, Finn og Beau með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, Dean McDermott.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni í Riverside-sýslu í Kali­forníu var til­kynnt um slysið í Temecula um klukkan 17:45. Þegar lög­regla kom á vett­vang fund­ust tvö skemmd öku­tæki.

Talið er að Spelling, 52 ára, hafi verið að keyra með fjögur barna sinna og þrjá vini þeirra þegar annar öku­maður ók yfir á rauðu ljósi og lenti á bif­reið­inni.

Allir sem voru í bílnum voru skoð­aðir á vett­vangi og síðar fluttir á sjúkra­hús með þremur sjúkra­bílum. Þar fengu þeir með­ferð vegna meiðsla á borð við heila­hrist­ing, mar, skurði og skrámur. Enginn hefur verið hand­tek­inn og slysið er enn til rann­sóknar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Spelling lendir í ógn­vekj­andi bílslysi með börnum sínum. Árið 2011 lenti hún í árekstri þegar hún var elt af ljós­mynd­urum á leið með börn sín í skól­ann.

Þá sagði hún að hún hefði reynt að kom­ast undan ljós­mynd­ara þegar slysið varð og að hann hefði haldið áfram að reyna að taka myndir eftir árekst­ur­inn. Hún gagn­rýndi þá harð­lega og spurði hvað þyrfti til að slíkt hætti.

Þrátt fyrir að eng­inn slas­að­ist alvar­lega í því slysi leit­aði hún lækn­is­að­stoðar í kjöl­farið, þar sem hún var þá ólétt og vildi ganga úr skugga um að allt væri í lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu