Tónlistarmaðurinn Morrissey fékk nóg af áhorfendum í Dallas um helgina en þegar söngvarinn var að syngja síðasta lag kvöldsins réðust að minnsta kosti sex áhorfendur upp á svið og reyndu að snerta hann á einn eða annan hátt. Morrissey reyndi eins og kostur var að halda áfram að syngja en á endanum gafst hann upp á frekju áhorfenda og hætti í miðju lagi og yfirgaf sviðið við litla gleði fólksins í salnum.
Morrissey virðist ekki hafa orðið meint af miðað við myndband sem náðist af atvikinu en öryggisvörður á tónleikunum sést haltra í burtu af sviðinu eftir að hafa þurfa að koma áhorfanda þaðan.
Morrissey er einn ef þekktustu tónlistarmönnum Bretlands en hann söng með The Smiths á 9. áratug síðustu aldar og sló í gegn með lögum á borð við This Charming Man og Heaven Knows I’m Miserable Now. Frægðarsól hans hefur einnig verið hátt á lofti síðan hljómsveitin hætti en hann hefur meðal annars gefið út lögin Suedehead og Tomorrow sem margir kannast við.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir