Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

„Getur virkilega verið að yfirmaður tæknimála hjá RÚV sé á mála hjá samkeppnisaðilanum?“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns­dóttir grunar tækni­deild RÚV um græsku því netútsendingar eru áberandi verri hjá Ríkis­útvarpinu en hjá helstu samkeppnis­aðilum. Hún segir að það gerist aftur og aftur að Rás 1 og Rás 2 frjósa. Líklega kannast fleiri við þetta.

Anna skrifar á Facebook: „Um daginn sendi ég inn kvörtun til tækni­deildar RÚV vegna lélegs netsambands. Netútsendingin fyrir Rás 1 og Rás 2 er að frjósa hvað eftir annað án ástæðu, en þeir hafa ekki svarað mér. Ég var að hlusta á fréttirnar og það var eitthvað áhugavert í fréttum og allt í einu fraus netið og ég þurfti að fara inn á mbl.is til að lesa restina af fréttinni. Þetta er að gerast nokkrum sinnum á dag.“

Hún veltir því fyrir sér hvað veldur þessu. Ekki er hægt að afsaka þetta með því að RÚV sé fjársvelt í saman­burði við Bylgjuna, nú eða Útvarp Sögu. „Það fór að læðast að mér grunur. Getur virkilega verið að yfirmaður tæknimála hjá RÚV sé á mála hjá samkeppnis­aðilanum? Þegar ég hlusta á Bylgjuna er hún venjulega án þessara vandamála og eins K100. Ég get því miður ekki sagt til um ástandið á netútsendingu Útvarps Sögu, en það hljóta einhverjir aðdáendur þeirrar stöðvar að geta sagt til um netútsendingu þeirra. Sömuleiðis veit ég ekki um Lindina, en ég stend mig að því oftar og oftar að skipta yfir á Bylgjuna til að losna við þessar truflanir. Reyndar er Gull­bylgjan ein af mínum uppáhalds­stöðvum og þar eru sjaldnast neinar truflanir. Hvað sjónvarp snertir, viðurkenni ég alveg að RÚV stendur sig mun betur en Norður-Kórea,“ skrifar Anna.

Hún segist vilja taka þetta upp á næsta fundi Útvarps­ráðs. „Þekki ég ekki einhverja í Útvarps­ráði sem getur tekið þetta upp á næsta fundi og í versta falli gefið netstjóranum áminningu ef hann bætir sig ekki í starfi? Ég veit að einhverjir vilja benda á einhverjar flóknar leiðir til að ná þessu ótrufluðu og þakka kærlega fyrir þau góðu ráð, en það breytir ekki því að RÚV vill bjóða upp á beina netútsendingu í gegnum venjulegar tölvur, en gerir það ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Húsið var reist árið 1922
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Maðurinn er grunaður um kynferðisbrot

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið