Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Bæn okkar allra um frið á jörðu – Óhefðbundnir og glæsilegir jólatónleikar Söngfjelagsins

Frá tónleikum kórsins í fyrra.
Frá tón­leikum kórs­ins í fyrra. Mynd: Aðsend

Elleftu jóla­tónleikar Söngfjelagsins verða haldnir í Langholts­kirkju sunnu­daginn 11. desember.

Tónleikarnir eru fyrir löngu orðnir fastur liður í tilverunni á aðventunni fyrir fjölda manns. Þemað hefur alltaf verið að kynna tónlist frá ýmsum heims­hornum en í gegnum árin hafa þau til dæmis flutt klezmer, jiddíska, keltneska, rússneska og  suður-ameríska tónlist og núna síðast söngva og dansa frá Balkan­löndunum. Flest lögin eru flutt á frum­málinu. Fjöldi lista­manna hefur komið fram ásamt kórnum í gegnum tíðina, innlendir sem erlendir og sumir listamenn hafa ferðast langa leið erlendis frá til að taka þátt í þessari árlegu tónlistar­veislu Söngfjelagsins.

Undir friðarsól

Hilmar Örn Agnarsson kórstjóri Söngfjelagsins segir að þema tónleik­anna í ár sé bæn okkar allra um frið á jörðu og er yfir­skrift tónleik­anna Undir friðarsól. Sú tilvísun er fengin úr Helgi­ljóði Olgu Guðrúnar Árna­dóttur, sem var jólalag Söngfjelagsins árið 2016, en ár hvert frum­flytur Söngfjelagið nýtt jólalag á jóla­tónleikum sínum . „Á tónleikunum í ár er jólalagið eftir Hjörleif Hjartarson, en Hjörleifur hefur einnig þýtt og stílfært mörg erlendu laganna. Þá verður á dagskránni úkraínsk tónlist í bland við tónsmíðar frá Nýja Sjálandi, Afríku, Lapplandi og fleiri stöðum, ásamt Íslandi, sem öll fjalla um frið og kærleika til náttúru, Guðs og manns. Nokkrir gestir verða með okkur. Við erum mjög spennt að fá hina rússnesku Natöshu S til að fara með eigið ljóð á tónleikunum, en hún er fyrsta skáldið af erlendu bergi brotin til að hljóta verðlaun Tómasar Guðmunds­sonar. Þá hefur Snorri Helgason samið lag við ljóð hennar og verður það frumflutt á tónleikunum. Við verðum með einsöngvara frá Úkraínu og Rússlandi ásamt íslenskum leynigestum. Það getur líka vel verið að við flytjum eitt þekkt Bítlalag” bætir Hilmar við sposkur.

Eitt af einkennum tónleika Söngfjelagsins hefur verið samstarf við erlenda tónlistar­menn búsetta á Íslandi „Það er svo gaman að kynnast nýju tónlistar­fólki og jafnframt gefa fleirum tækifæri til að heyra þeirra flutning. Þau þekkja lögin betur en við gerum og hafa kennt okkur margt nýtt. Við höfum líka flutt inn listamenn, til dæmis fengum við sjö manna Suður – Amerískt band frá Noregi fyrir þremur árum, það er sennilega eitt það stærsta og metnaðar­fyllsta sem við höfum gert í þeim málum. Eða allavega enn sem komið er!” segir Jakob, formaður kórsins.

Kominn tími til að dansa!

Jafnframt tekur formaður Söngfjelagsins það fram að mikil áhersla sé lögð á að syngja lögin á frum­málinu, en það hafi ekki alltaf reynst einfalt í framkvæmd. „Það er sérstak­lega eftir­minnilegt þegar við þurftum að taka vikulega rússnesku­tíma fyrir tónleikana okkar fyrir þremur árum. Þannig var það aðeins erfiðara en við héldum, en á sama tíma ótrúlega gaman þegar við byrjuðum að ná meiri tökum á tungu­málinu! Markmiðið okkar er að fara alltaf meira útfyrir þægindarammann, svo nú fannst okkur vera kominn tími til að dansa! Nokkur laganna munu innihalda hreyfingar og dansspor og nutum við þar góðs af leiðsögn valkyrjunnar Sanna Valvane, kórstjóra frá Finnlandi, sem kenndi okkur þjóðlög og dansa nú á haust­dögum. Fimm manna hljómsveit leikur með á tónleikunum og hljóm­sveitar­stjórinn í ár er Sigrún Krist­björg Jóns­dóttir. Stjórn­andi að öllu saman er svo Hilmar Örn Agnarsson kórstjóri en sérlegur aðstoðar­maður hans er Iveta Licha.

Tónleikarnir fara fram sunnu­daginn 11. desember kl. 17 og 20.
Miðaverð er 4.500 kr. Hægt er að kaupa miða á tix.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt