Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Lilja hjólar í háar arðgreiðslur fyrirtækja: „Kemur alltaf verst niður á tekjulægstu heimilunum“

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. Samsett mynd.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Samsett mynd.

Lilja Alfreðs­dóttir, viðskipta­ráðherra, tekur undir gagnrýni verkalýðs­hreyfingarinnar á háar arðgreiðslur fyrir­tækja á sama tíma og verð fer ört hækkandi. Hún segir mikilvægt að allir leggist á eitt til þess að draga megi úr verðbólgu­þrýstingi. Vísir greinir frá þessu.

„Það er alveg ljóst að verð­bólgan kemur alltaf verst niður á tekju­lægstu heimilunum og því þurfum við að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að draga úr verð­þrýstingi,“ segir Lilja í samtali við Vísi og segir stjórn­völd þurfa að vera vakandi fyrir þróuninni.

Verðbólga mælist nú 8,8 prósent og hefur ekki verið hærri í þrettán ár. Spár gera þó ráð fyrir því að verðbólga nái jafnvel tveggja stafa tölu í sumar.

Lilja segir stjórn­völd hafa lagt sitt af mörkum til þess að minnka verðbólgu­þrýstinginn, til að mynda með því að draga úr útgjalda­svigrúmi stjórn­valda og lækka afslátt á áfengi og tóbak í fríhöfninni.

Mynd/skjá­skot RÚV

Á meðan verð í samfélaginu fer hækkandi hafa ýmis fyrirtæki greitt sér háan arð, til að mynda Hagar, sem högnuðust um fjóra milljarða króna á síðasta ári og greiða út ríflega tvo milljarða króna í arð. Festi, sem rekur Krónuna og N1, greiðir út 1,6 milljarða króna arð á árinu. Háar arðgreiðslur fyrir­tækja hafa víða verið gagn­rýndar, til að mynda af verkalýðs­félögum, Alþýðu­sambandinu og Neytenda­samtökunum.

Breki Karlsson, formaður Neytenda­samtakanna, sagði til að mynda í samtali við Mannlíf í febrúar að nú sem aldrei fyrr væri þörf á því að bæði bankar og önnur fyrirtæki drægu úr arðsemis­kröfum sínum.

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

„Nú er bara komið að því að atvinnu­lífið sýni þá stillingu sem atvinnu­lífið krefst alltaf af launþegum þegar launþegar eru að semja um laun og kjör,“ sagði Breki. „Það er það sem við getum gert; að krefja fyrirtæki um ráðdeild og að þau rói sig aðeins í arðsemis­kröfum.“

Lilja Alfreðs­dóttir er sammála gagnrýni Neytenda­samtakanna og verkalýðs­félaga.

„Vegna þess að þetta er þannig að við þurfum öll að líta í eigin barm og leggja okkar að mörkum til að stuðla að því að það dragi úr verðbólgu­þrýstingi og styðja við seðla­bankann, þannig að hann þurfi ekki að fara í mjög umfangs­miklar stýri­vaxta­hækkanir,“ segir hún í samtali við Vísi. „Vegna þess að þær þýða eitt; það er minni neysla, það er minni fjár­festing, minni hagvöxtur og minni kaup­máttur og það kemur illa við okkur öll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá