Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Tökum snjónum fagnandi

Nú þegar snjórinn er farinn að falla er nauðsynlegt að láta hann ekki fara í taugarnar á sér heldur njóta þess besta sem hann hefur upp á að bjóða.

Minna stress
Við verðum að sætta okkur við þann veruleika að við búum á Íslandi og því fyrr sem við gerum það því betra. Ekkert getur komið í veg fyrir að snjónum kyngi niður og því um að gera að taka honum fagnandi. Þetta er tækifæri til að gíra sig niður og staldra við í núinu. Við þurfum ekki alltaf að flýta okkur svona mikið og það er allt í lagi að missa af einhverju. Förum fyrr af stað á morgnana, tökum góðan tíma í að skafa bílinn og njótum þess að fara ofurhægt í vinnuna, jafnvel í langri bílalest.

Farðu út með hund­inn.

Út að leika
Snjórinn er endalaus uppspretta skemmtilegra leikja, enda ekki að ástæðu­lausu sem flest börn elska snjóinn. Klæddu þig vel og skelltu þér út í snjóinn að leika hvort sem þú átt börn eða ekki. Krökkum finnst ekkert skemmtilegra en þegar mamma og pabbi gefa sér tíma til að leika við þau og því getur snjórinn leitt til hinna skemmtilegustu fjöl­skyldu­stunda. Það er hægt að búa til snjókarla, byggja snjóhús, renna sér á sleða, snjóþotum, rassa­þotum eða jafnvel plast­pokum, fara í snjókast, búa til snjóengla, moka bílinn upp, hreinsa stéttina og svo margt fleira. Þá er um að gera að kíkja til ömmu og afa, gamallar frænku eða hvaða vina og vanda­manna sem er og moka þau út. Þannig er nánast gull­tryggt að þið vinnið ykkur inn fyrir heitu súkkulaði og gómsætu bakkelsi.

Þegar allt er komið á kaf er ekk­ert eins hressandi og að fara út og moka snjó. Gott er að taka hraust­lega á því með því að moka vel frá dyrum, stétt­ina og bíla­stæðið.

Líkams­rækt og samkennd
Þegar allt er komið á kaf er ekkert eins hressandi og að fara út og moka snjó. Gott er að taka hraustlega á því með því að moka vel frá dyrum, stéttina og bíla­stæðið. Þannig hittir maður jafnvel nágrannana sem eru úti í sama tilgangi og getur loksins gefið sér tíma til að spjalla við þá og kynnast þeim aðeins. Ekki hika við að hjálpa nágrönnunum með því að moka fyrir þá líka. Ekki eru allir jafn­hraustir, og gömlu hjónin sem búa við hliðina á þér yrðu án efa ákaflega þakklát fyrir viðvikið.

Allir hjálpast að
Sérstök stemning myndast þegar náttúran tekur í taumana og setur allar samgöngur úr skorðum. Það er gaman að sjá hve margir eru tilbúnir til að hjálpa öðrum að ýta bílum sem eru fastir víða og í höfuð­borginni myndast svona „úti á landi“ stemning. Fólk er glatt og þakklátt fyrir aðstoðina og það er gaman að geta hjálpað öðrum. Ekki hika við að bjóða fram hjálp þína ef einhver er fastur í skafli, jafnvel þótt þú sért smágerður einstaklingur. Margar hendur vinna létt verk og þú munt án efa framkalla gleði í hjarta bæði hjá sjálfri/sjálfum þér og öðrum.

Mynda­tökur í ævintýra­heimi
Skellið ykkur í gönguferð og njótið þess ævintýra­lega umhverfis sem snjórinn hefur skapað. Endilega takið mynda­vélina með og festið dýrðina á „filmu“. Prófið ykkur áfram með alls kyns vinkla, og takið bæði nærmyndir og yfirlits­myndir. Ef þú átt börn er tilvalið að stilla þeim upp við þessar aðstæður og hver veit nema að þarna sé komin jólakorta­myndin í ár. Ekki verra að hafa klárað eitthvað áður en stressið sem oft vill fylgja undir­búningi jólanna tekur völdin. Á svona stundu eru líka allir slakir sem gefur von um einstak­lega góða mynd.

Takið mynda­vél­ina með og festið dýrð­ina á „filmu“.

Texti / Ragnhildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Á annatíma á flugvöllum geta tafir raskað ferðaáætlunum.

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul