Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Valur segir Leonard Cohen hafa séð fyrir endalok Bandaríkjanna

„Þetta hljóm­aði hálf-klikkað árið 2012 en virð­ist nú vera að raun­ger­ast“

Valur og Regnúlpurnar
Valur og Regnúlp­urnar Tón­leik­arnir fara fram í Tjarn­ar­bíói næst­kom­andi sunnu­dag Mynd: Art Bicnick

Næst­kom­andi sunnu­dag klukkan 20:00 verða haldnir tón­leikar í Tjarn­ar­bíói, þar sem Valur og Regnúlp­urnar flytja lög kanadíska söngvaskálds­ins Leonard Cohen á íslensku. Hljóm­sveit­ina skipa Valur Gunn­ars­son, Egill Við­ars­son, Elvar Geir Sæv­ars­son og Loftur Sigurður Loftsson.

Leonard CohenSnill­ing­ur­inn lést árið 2016

Valur Gunn­ars­son, blaða- og tón­list­ar­maður, er téður Valur en hann hefur lengi verið aðdá­andi Cohens. Mannlíf ræddi við hann um tón­leik­ana.

Segðu mér frá tón­leik­unum sem þú munt halda á sunnu­dag­inn. 

„Farið verður yfir lífs­hlaup Leonard Cohen í stórum dráttum, allt frá því hann yfir­gaf Montreal árið 1966 og þar til hann gekk í klaustur árið 1994. Þegar hann flutti til New York þótti hann hálf skrýt­inn, mið­aldra kanadískt ljóð­skáld sem vildi verða popp­stjarna. En Lou Reed hafði lesið bækur hans og tók honum fagn­andi og kynnti hann fyrir sen­unni, Andy Warhol og hinni þýsku Nico, sem hann varð bál­skot­inn í og samdi mörg lög um en sú var gef­inn fyrir yngri menn, meðal ann­ars Dylan. Svo verður haldið með honum út í eyði­mörk­ina og alla leið til Íslands og loks í klaustur. Inn á milli verða flutt lög eftir hann á íslensku, sem hann reyndar sjálfur veitti blessun fyrir meðan hann var enn í klaustr­inu.“

Þú sagðir mér að Cohen hefði verið sá eini sem hefði vitað hvað enda­lok kalda stríðs­ins þýddi og að hann hafi spáð fyrir um enda­lok Banda­ríkj­anna, get­urðu útskýrt það betur?

„Skömmu eftir fall múrs­ins, þegar allir bjugg­ust við betri tíð og jafn­vel enda­lokum sög­unnar, sá Cohen að nú væri allt að gliðna í sundur. Sjálfur hafði hann leitað eftir strúktur í eigin lífi sem hann fann loks í klaustr­inu, en þegar tví­póla­kerfi kalda stríðs­ins leið undir lok sá hann að fjand­inn var laus. Hann sendi frá sér spá­dóms­plöt­una The Future, þar sem segir meðal ann­ars: „I have seen the Future brother, it is murder.“ Morð­ingjar á háum stöðum fara með bænir en særa fram storm­inn, segir á öðrum stað. Þetta hefði til dæmis vel getað átt við inn­rás­ina í Írak, sem ég held að hafi verið nokk­urs konar erfða­synd 21. aldar og við erum enn að fást við afleið­ing­arnar af. Síðar sagði hann í ljóði: „And one more thing, you won‘t like what comes after America.“ Þetta hljóm­aði hálf-klikkað árið 2012 en virð­ist nú vera að raun­ger­ast. Og afleið­ing­arnar verða ekki endi­lega góðar.“

Hvað mega gestir eiga von á á sunnu­dag­inn?

„Nokkrum góðum stundum áður en allt hrynur.“

Hér má nálg­ast miða á tón­leik­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027