Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Forstöðumaður sakar Reykjavíkurborg um vanhugsaðar breytingar

„Á endanum bitna þessar ákvarðanir á börnum okkar“

„Frístundamiðstöðvar lagðar af með einu pennastriki“
„Frí­stunda­mið­stöðvar lagðar af með einu penna­striki“ Mynd: Reykjavíkurborg

Mikil ólga er á vettvangi frístunda­heimila og félags­miðstöðva í Reykjavík eftir að umfangs­miklar skipulags­breytingar voru knúnar í gegn í skjóli borgar­ráðs. Hafsteinn Bjarnason, forstöðu­maður félags­miðstöðvarinnar 105, segir starfsemi í þágu barna og ungmenna í alvarlegri óvissu og sakar borgar­yfirvöld um skeytingar­leysi og samráðs­leysi.

„Í vikunni varð starf mitt flóknara og erfiðara,“ segir Hafsteinn í upphafi færslu sinnar. Hann lýsir því hvernig næsti yfirmaður hans, deildar­stjóri, hafi verið sagt upp og boðið annað, illa skilgreint starf, auk þess sem fjármála­stjóri hafi verið rekinn. „Þetta eru tvær manneskjur sem að ég leita hvað mest til í mínu starfi, sem forstöðu­maður félags­miðstöðvar, eftir aðstoð.“

Frístundamiðstöðvar lagðar af með einu pennastriki

Breytingarnar fela í sér að frístunda­miðstöðvar borgarinnar hafa verið lagðar niður, en Hafsteinn hefur starfað hjá sinni miðstöð í níu ár. Hann bendir á að þessar miðstöðvar hafi staðið að gríðar­lega mikil­vægum verkefnum í þágu almennings. Nefnir hann sérstak­lega stofnun Flotans – vettvangs­starfs félags­miðstöðva, sem sinnir m.a. gæslu­hlutverki á menningar­nótt, auk Hinsegin félags­miðstöðvarinnar og annarra mikil­vægra verkefna fyrir börn og unglinga. Aðrar frístunda­miðstöðvar borgarinnar, sem státa af svipuðum störfum, voru sömuleiðis lagðar niður og nýtt fyrir­komulag tekur nú við. Hafsteinn gefur lítið fyrir undir­búninginn:

„Allt var þetta gert að því er virðist að illa ígrunduðu máli og ekki áttað sig á afleiðingum.“

Óttast lakari þjónustu og meira álag

Hafsteinn óttast að þegar verkefnum fjármála­stjóra og deildar­stjóra er dreift á færri hendur muni vinnuálag á forstöðu­menn og aðra starfs­menn aukast óhóflega, sem muni á endanum bitna á gæðum þjónustunnar. „Hver tekur þeirra bolta? Þeir fara á hendur færri aðila sem verður til þess að einstaklingar falla á milli hluta. Þjónusta verður lakari fyrir vikið. Fólk á að hlaupa hraðar og vinna verkefni sem að er ekki í þeirra starfs­lýsingu. Forstöðu­menn eru þar á meðal,“ varar hann við.

Þótt hann skilji að stundum þurfi að endurmóta skipurit, segir hann vinnu­brögðin algjör­lega óásættanleg. „Ekkert samtal var haft við vettvanginn. Ekki neitt! Hlutir gerðir í skjóli borgar­ráðs sem hefur rétt til að hrinda svona breytingum án umræðu í framkvæmd í ljósi ákvæðis um framkvæmdar­rétt innan sumar­tímabils.“

„Á bak við tölur er fólk“

Hafsteinn segist blöskra að svona starfs­hættir líðist hjá jafn stórum vinnustað og Reykja­víkurborg er. Hann minnir stjórn­málamenn á að mannlegi þátturinn gleymist oft í hagræðingar­aðgerðum. „Á bak við tölur er fólk. Það að breyta mínus í plús gerist ekki á einni nóttu og það þarf að vanda til verka. Hér var það ekki gert.“

Að lokum gagnrýnir hann málflutning pólitíkusa í fjöl­miðlum sem fullyrða að breytingarnar muni ekki leiða til þjónustu­skerðingar.

„Pólitíkusar sem standa fyrir þessum breytingum voga sér svo að mæta í viðtöl og segja að engin þjónustu­skerðing muni verða vegna þessara breytinga. Á endanum bitna þessar ákvarðanir á börnum okkar og ungmennum.“

Að sögn Hafsteins er staðan á vettvangi þung og einkennist af óvissu: „Eftir situr svo skelkaður vettvangur frístunda­heimila og félags­miðstöðva sem að vill ekkert nema gott gera fyrir sína þjónustuþega, íbúa Reykja­víkurborgar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning