Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kærir vegna líkamsárása á geðdeild – Hrafn sendir lögmann á Landspítalann

Hrafn Jökulsson
Hrafn Jök­uls­son

Hrafn Jökulsson rithöfundur hefur kært stjórn­endur Land­spítalans vegna líkams­árása sem hann varð fyrir á geðdeild spítalans.

Rithöfundurinn og náttúru­verndar­sinninn Hrafn Jökulsson hefur nú kært stjórn­endur Land­spítalans vegna tveggja líkams­árása sem hann varð fyrir er hann var nauðungar­vistaður á geðdeild spítalans í fyrra. Mannlíf fjallaði um málið á sínum tíma. Þá sagði Hrafn frá árásunum en það var annar vistmaður deildarinnar sem réðist í tvígang á hann og rotaði í fyrra skiptið. „Hnefar hans voru eins og stunguskólfur. Ég hef aldrei séð slíka hnefa og þetta var enginn venju­legur beljaki sem var ákveðinn í því að drepa mig,“ sagði Hrafn í samtali við Mannlíf í desember 2021. Þá var hann hissa á að ekki hafi verið gripið fyrr inn í árásirnar, að ekki væru til einhverjir sérstakir verk­ferlar. „Hann fékk næði til að undirbúa sig fyrir báðar árásirnar. Ég furða mig á því að það virðast engir verk­ferlar til eða viðbragðs­áætlun til að bregðast við eftir fyrri árásina, sem var mjög alvarleg. Ég hef aldrei verið stein­rotaður áður og ég skil ekki hvers vegna maðurinn var ekki færður eitthvað annað. Það er guðs mildi að hann náði ekki að klára þriðju árásina, þar sem aumingjans maðurinn hafði bitið það í sig að koma mér af jörðinni.“

Sjá einnig: Hrafn Jökulsson tvívegis barinn alvarlega á Land­spítalanum: „Hann ætlaði að drepa mig“

Kærir stjórnendur LHS

Fyrir stundu birti Hrafn ljósmynd af honum og Reimari Péturs­syni lögmanni hans, fyrir utan lögregluna við Hverfsgötu og birti eftir­farandi texta með:

„1. ÉG ÁKÆRI… STJÓRNENDUR LANDSPÍTALANS

Við Reimar Pétursson, lögmaður minn, fórum að heilsa uppá vini okkar við Hverfis­götu í dag, þar sem ég gaf skýrslu hjá rannsóknar­lögreglunni. — Hinn 9. nóvember hið sögulega ár 2021 varð ég fyrir tveimur alvarlegum líkams­árásum á deild 32, LHS & lá eftir stein­rotaður.

Ekki erfi ég þetta við árásar­manninn — hann var í öðrum heimi — og ekki dettur mér í hug að kæra starfs­menn á vettvangi, en STJÓRNENDUR LHS skulu fá að svara fyrir lífs­hættulega atburða­rásina…“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið