Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Halldóra segir stríðið gegn fíkniefnum ýta undir ofbeldi og ójöfnuð

„Það væri gæfuspor fyrir okkur Íslendinga að læra af mistökum Svía“

Halldóra Mogensen
Halldóra Mogensen Halldóra vill að íslensk yfir­völd læri af mis­tökum Svía Mynd: Facebook

Halldóra Mogensen, fyrr­verandi þingmaður Pírata, segir að þróun í Svíþjóð sýni afleiðingar strangrar refsi- og bann­stefnu í vímuefna­málum. Þetta kemur fram í færslu sem hún birti á Facebook þar sem hún vísar til fréttar um 15 ára stúlku sem framdi morð fyrir Foxtrot-glæpa­gengið í Svíþjóð.

Í færslunni bendir Halldóra á að lönd með slíka stefnu glími við alvarlegri glæpa­vanda en þau sem beita skaða­minnkandi nálgun. „Svíþjóð og önnur lönd með stranga refsi- og bann­stefnu í vímuefna­málum eru að sjá meiri og verri glæpi en lönd sem taka upp skaða­minnkandi nálgun. Svíþjóð, með eina ströngustu vímuefna­stefnu í vestur Evrópu, hefur nú lang versta gengja­vandann á Norður­löndunum.“

Hún segir rann­sóknir sýna að glæpa­gengi sækist sérstak­lega eftir viðkvæmum hópum. „Í sænskum rann­sóknum hafa sérfræðingar í afbrota­fræði og félags­fræði bent á að glæpa­gengi sæki sérstak­lega í ungmenni sem búa í vanræktum hverfum í jaðar­settum samfélögum sem treysta síður hinu opinbera og stofnunum þess. Glæpa­hópar nýta sér einstaklinga í félags­lega veikri stöðu.“

Að hennar mati er lykil­atriði að bjóða ungu fólki raun­verulega valkosti. „Ef við viljum koma í veg fyrir þessa þróun þurfum við að tryggja að ungt fólk eigi raun­verulega valkosti. Við gerum þetta með því að byggja upp samfélag þar sem þau finna til öryggis, samfélag sem þau tilheyra og finna tilgang í að taka þátt í.“

Halldóra gagnrýnir jafnframt bann­stefnu í fíkniefna­málum harðlega og segir hana ýta undir skipulagða glæpa­starfsemi. „Refsi- og bann­stefnan í fíkniefna­málum eflir skipulagða glæpa­starfsemi og stuðlar að gengja­myndun. Með því að setja vímuefna­markaðinn algjör­lega utan laganna, gefur ríkið glæpa­gengjum einokun á þessum arðbæra markaði.“

Hún bætir við að slík stefna hafi víðtækar neikvæðar afleiðingar. „Sala á vímuefnum færir gríðarlegt fjármagn í hendur hættulegra glæpa­manna sem nota gróðann til að fjármagna aðra glæpi. Stríðið gegn vímuefnum ýtir beinlínis undir ofbeldi, ójöfnuð og fleiri samfélags­vandamál.“

Að lokum segir Halldóra að Ísland ætti að draga lærdóm af stöðunni í Svíþjóð. „Það væri gæfuspor fyrir okkur Íslendinga að læra af mistökum Svía og segja skilið við þessa skaðlegu stefnu. Að heyja áfram þetta tapaða stríð gegn vímuefnum kostar okkur háar upphæðir sem hægt væri að beina frekar í að efla félags­lega stöðu og andlega heilsu ungs fólks. Og leggja þannig grunninn að öruggara samfélagi til framtíðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum