Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Robert C. Clark í viðtali við Hampfélagið: „Íslendingar þurfa eigið afbrigði af kannabis“

Mynd / Robert C. Clark
Mynd / Robert C. Clark

„Í sannleika sagt þá er þetta ekki réttur staður á jarð­kringlunni. Þið eruð of nálægt pólnum,“ segir bandaríski rithöfundurinn og fræði­maðurinn Robert C. Clark í nýjasta þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­félagsins, um ræktun kannabis­plöntunnar á Íslandi. Robert hefur rannsakað kannabis frá því snemma á áttunda áratug síðustu aldar og fylgt eftir gríðar­legum breytingum á lands­laginu þegar kemur að kannabis í Banda­ríkjunum en einnig í Evrópu þar sem hann var búsettur lengi í Amsterdam.

Robert C. Clark: „Íslend­ingar þurfa eigið afbrigði af kanna­bis“

Robert er borin og barn­fæddur í Kaliforníu­ríki í Banda­ríkjunum og útskrifaðist frá Háskólanum í Santa Cruz í sama ríki. Áhugi hans á kannabis­plöntunni kviknaði í háskóla­náminu og leiddi hann út í fræði­störf sem enn sér ekki fyrir endann á. Eftir námið flutti hann til Amsterdam þar sem hann fór til starfa hjá Hortopharm B.V. en það er rann­sóknar- og þróunar­fyrirtæki og það fyrsta sem fékk leyfi frá hollenskum stjórn­völdum til rannsókna á kannabis. Hann segist enn sífellt fá meiri og breiðari áhuga á plöntunni og nú síðast á sambandi kannabis­plöntunnar og mannsins í gegnum aldirnar. „Þetta er planta sem ég sá að var mikilvæg og því meira sem ég rannsaka hana því meira sé ég hversu mikilvæg hún er. […] Það er ekki til önnur planta til í heiminum sem hefur haft jafn mikil áhrif á mannkynið.“

Robert hefur einnig skrifað bækur um kannabis sem hafa haft mikil áhrif þegar kemur að fræðslu til almennings. Meðal bóka Roberts eru Marijuana Botany. An Advanced Study: The Propagation and Breeding of Distinctive Cannabis, Hashish!, Hemp Diseases and Pests og Cannabis: Evolution and Ethobotany.

Þarf lengra ræktunartímabil á Íslandi

Á ferðalagi sínu um Ísland hefur Robert heimsótt akra þar sem ræktaður er iðnaðar­hampur. Kalt sumar framan af hefur haft mikið að segja um ræktunina á sunnan- og vestan­verðu landinu og Robert var ekki vongóður um framtíð íslenskra ræktenda. „Það er hægt að rækta háar plöntur en þar með er ekki öll sagan sögð. Það þarf að þurrka þær, verka þær, ná trefjunum og ég held að það þurfi lengra ræktunar­tímabil. Ég er ekki sann­færður um að ræktun gangi hér á landi þrátt fyrir yrki á borð við Finola og önnur sem vaxa mjög hratt.“

Hann segir að það séu að sjálfsögðu tækifæri hér á landi en þau virðist þá bundin við góð ár veðurfars­lega séð. Aðspurður um yrki sem hentugast væri að rækta á norðlægum svæðum sagði Robert aðeins eitt koma til greina: „Það sem þið Íslendingar þurfið að gera er að rækta upp ykkar eigið afbrigði. Það er svarið. […] Það getið þið gert með því að rækta áfram út frá þeim plöntum sem vaxa og dafna vel. […] Það getur verið ein af hundrað eða ein af þúsund og krefst þraut­seigju og einbeitingar.“

Afglæpavæðing besta skrefið

Robert fer í viðtalinu einnig yfir stöðuna í Banda­ríkjunum en verulega breytingar hafa orðið vestanhafs á viðhorfi til kannabis­efna á undan­förnum árum og áratugum eða frá því að opinber­lega var lýst yfir stríði gegn vímuefnum og efnt til sérstakrar herferðar gegn kannabis­efnum. Nú er svo komið að kannabis­efni eru ólögleg að fullu í eingöngu tíu ríkjum. Þau eru lögleg í 23 ríkjum, lögleg í læknis­fræðilegum tilgangi í fimmtán til viðbótar og afglæpa­vædd í tveimur. Aðspurður um áhrif á samfélagið segir Robert: „Breytingarnar snúa helst að því að taka glæpinn út úr jöfnunni. Ég veit að það hljómar heimsku­lega því það er verið að leyfa notkunina en fólk getur núna nálgast plöntuna án þess að hafa áhyggjur af almennings­álitinu, af lögbrotum, af því að missa forsjá yfir börnum sínum, missa vinnuna eða fara í fangelsi. Þá fyrst nær þetta sama fólk að skilja plöntuna. […] Það opnar sömu landamæri og við rann­sóknir og gerir okkur öll jafn sett.“

Hann segir að langt sé í það að notkun á kannabis­efnum verði afglæpa­vædd á heimsvísu þrátt fyrir að það muni gerast á endanum. Enn séu lönd að herða á lögum og reglum þegar kemur að kannabis og þrátt fyrir að mikið sé talað fyrir afglæpa­væðingu í Evrópu þá gerist hlutirnir afskaplega hægt. Hann tekur sem dæmi Þýskaland þar sem afglæpa­væðing er á umræðu­stigi hjá stjórn­völdum. „Fyrsta sem þar á að gera er að afglæpa­væða kannabis­efni og það er besta skrefið,“ segir Robert og bætir við að þrátt fyrir að enn eigi eftir að útfæra regluverk eigi að stefna að því að minnka gróða­vonina og þar með sleppa markaðnum lausum. Stjórn­völd vilji halda um taumana, settir verði upp klúbbar þar sem meðlimir greiði mánaðar­gjald en ekki verði greitt fyrir kannabis­efni með peningum. En hann tekur fram að enn sé ekkert fast í hendi.

Sprengja í rannsóknum á kannabis

Robert segir að enn sé of lítil almenn þekking um kannabis­plöntuna og gagnsemi hennar. Rann­sóknir fyrri ára hafi allar verið því marki brenndar að niður­staðan var gefin fyrir fram, þ.e. að kannabis sé neikvætt á allan hátt. Þegar ekki hafi tekist að fá fram það svar hafi fjármagn ekki lengur fengist til rannsókna. „Fólk í dag talar um CBD en allar rann­sóknir sem gerðar voru þar til fyrir nokkrum árum sneru að THC. […] Það voru fleiri rann­sóknir gerðar á kannabis á fyrstu þremur mánuðum þessa árs en öllu árinu í fyrra,“ segir Robert og tekur þá ekki inn í töluna rann­sóknir í læknis­fræðilegum tilgangi því þær séu of margar og það sé ekki hans sérsvið. „Bandarískir háskólar hræðast ekki lengur að leyfa nemendum sínum að rannsaka það sem þeir hafa áhuga á og áhuginn á rann­sóknum á kannabis hefur aukist stórkost­lega enda er plantan sífellt í fréttum og er orðin stór hluti af lífi okkar.“

Spurður um það hvar lyfja­fyrirtækin voldugu standi þegar kemur að kannabis segist Robert telja að þeim sé nokk sama um plöntuna og afurðir hennar. Hann segir þau kannski líta á kannabis sem ógnun og hafa áhyggjur af því að fólk lækni sig sjálft en í raun hafi lyfja­fyrirtækin ekki áhuga á kannabis. Lyfja­fyrirtækin hafi áhuga á einka­leyfum og þau vilja geta stýrt neyslunni og fram­leiðslunni. Þau vilji alla kökuna. En það geti þau ekki þegar kemur að kannabis. Þau fái ekki einka­leyfi á plöntuna. „Í raun eru það ekki lyfja­fyrirtækin sem eru hrædd heldur áfengis­fram­leiðendur. […] Fólk drekkur minni bjór ef það notar kannabis­efni. Ég veit ekki hvort það sé til bein tölfræði um það en það er þetta sem áfengis­iðnaðurinn hræðist.“

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­aranum hér að neðan, Gunnar Dan Wiium, stjórnar­maður í Hamp­félaginu, tók viðtalið við Robert, Mickael Omar Lakhlifi sá um tæknimál og Andri Karel sá um frétta­skrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt