Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Úlfar Önundarson jarðsunginn í dag: „Sannarlega maður sem setti sinn svip á samfélagið“

Úlafr Önundarson og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, á góðri stundu. Titanic í baksýn.
Úlafr Önund­ar­son og Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, á góðri stundu. Titanic í bak­sýn. Mynd: Facebook.

Úlfar Önundarsson, verktaki og þúsund­þjalasmiður, verður borinn til grafar í dag frá Flat­eyrarkirkju. Hann var fæddur á Flateyri og starfaði þar mestan sinn starfs­aldur. Hann var ekki síst þekktur fyrir smíði vandaðra skips­líkana sem um árabil voru á lóninu við innkeyrsluna í þorpið. Þekktast þeirra er væntanlega Titanic.

„Ein af mínum fyrstu minningum um Úlla var að sjá hann skrúfa. Hann var að passa okkur bræður í Sandgerði, pabbi og mamma höfðu skotist eitthvað með Stínu og Önna foreldrum Úlfars. Við vorum að gera bíla úr mekkanói. Allar götur síðan man ég eftir Úlfari skrúfa og smíða, hann var ófeiminn við að láta vaða í hvað það sem honum datt í hug,“ skrifar Guðmundur Sigurðsson, félagi hans, að leiðar­lokum á Facebook.

„Flest snerist það með einhverjum hætti um vélar og tæki, skrúfur og bolta. Hefur líklega verið í genunum, Önundur faðir hans var rómaður vélstjóri og eftir­sóttur. Það fór líka þannig að Úlfar og bræður hans tveir Páll og Barði, hafa helgað dísel­vélinni allt sitt líf“.

Man að ungur bjó Úlli reið­hjólið sitt flautu og stefnu­ljósum sem stýrt var með járnsaga­blöðum rétt eins og flautunni í Fisk­borgar­vörubílnum og vafalaust fleiri bílum. Allt smíðað frá grunni og lóðað saman og vafið einangrunar­bandi.

Talandi um flautu á reiðhjóli, 1966 fór ég í sveit um skamma hríð hjá Halldóri á Kirkju­bóli í Bjarnadal á meðan foreldrarnir fóru suður að sækja sér nýjan Skoda bíl.

Pabbi fékk lánaðan Moskvich bíl Önna Páls til að keyra mig í sveitina. Úlli kom með og sat vinstramegin aftur í, hann var með reiðhjóla­flautu með sér og laumaðist til að gera rifu á gluggann og setja flautuna út og skrúfaði svo upp aftur þannig að flautan hékk á vírnum í rofann. Svo var byrjað að flauta og flauta. Pabbi skildi ekki neitt í neinu hvergi bíl að sjá en samt var sem einhver vildi komast fram úr.

Svo sprakk út hlátur í aftur­sætinu og málið þar með upplýst. Þetta er fyrsta sem ég man af stríðni Úlla en hann átti góðlát­lega stríðni í stærri skömmtum en gerist og gengur. Eins og flestir vita er fátt sem kryddar veröldina eins vel og skemmtileg stríðni.

Úlfar varð fyrsti lyftara­stjórinn á Flateyri þegar Hjálmur hf. keypti Hyster gaslyftara um eða laust eftir 1970. Það þótti virðinga­staða í frysti­húsinu enda um mikla tækni­byltingu að ræða.

Minnis­stæð er mér langferð sem Úlli fór á þessu hægfara tæki langt inn á Strönd til að sækja Broncojeppa Palla bróður síns. Eitthvað hafði bilað í jeppanum, brotnað undan honum afturhjól eða eitthvað slíkt. Úlli lyfti honum upp að aftan og ýtti bílnum þannig líklega innan úr Grísavík sem leið lá út á Flateyri. Þetta apparat var fjaðra­laust, húslaust og allslaust og vegurinn holóttur malar­vegur.

Þegar Úlli hafði aldur til fékk hann sér vörubíl og stofnaði í framhaldi af því verktaka­fyrirtækið Vestur­fell í Hnífsdal.

Þar starfaði ég hjá honum við vegargerð, snjó­ruðning og allan fjandann annan er til féll. Það var skemmtilegur tími og þar litaði stríðnin hans heldur betur hvers­daginn.

Þá bjó ég hjá honum, Steinunni konu hans og börnunum tveimur á Stekkjar­götunni. Þar var líka verkstæðis­húsið Milljón og var þar oft mikið líf, glens og gáski.

Um árabil rak hann verkstæði í Hafnar­firði og það hefur Kolbeinn Óskarsson gröfukall sagt mér að enginn hafi náð að skipta um stimpla í gröfunni hans á skemmri tíma en Úlli.

Í áranna rás hefur Kolli einlægt dáðst að lagni og færni Úlla í viðgerðum og reddingum. Á þessu verkstæði smíðaði kappinn sér öflugan og mikinn fjallabíl sem hann fór á um gjörvallt hálendi Íslands hvort heldur var að sumri eða vetri.

Síðar kom hann sér upp Lincoln Continental limósínu sem notuð hefur verið við hátíðleg tækifæri á Vestfjörðum og almennt þegar eitthvað stórt stendur til.

Úlfar var ekki alveg ókunnur Lincoln bílum, ungur átti hann Íburðar­mikinn Lincoln 1964 með sjálfsmorðs­hurðum og öllum íburðar­pakkanum sem Bandaríki norður Ameríku buðu uppá.

Einhverju sinni var ég hjá honum í garðinum við Sandgerði þegar hann var að bóna bílinn, hann var með ákveðnar skoðanir á því hvernig maður ætti að beita tvistinum en minnis­stæðust er mér einlægni Ásu Álfs­dóttur ömmu Úlla þegar hún var að spegla sig í lakkinu og hafði á orði hvort ætti að keyra brúðhjónum svo glansandi fínn fannst henni bíllinn.

Þekktast þess­ara skipa er vafa­laust far­þega­skipið fræga, Titanic

Úlli gerði sér upp snoturt hús á Flateyri með bílskúra sem ná yfir tvær götur. Þar hefur hann heldur betur verið iðinn við handverk. Líkast til er hann hvað þekktastur fyrir þann fjölda skips­líkana sem hann hefur smíðað í þessari skipasmíðastöð sinni.

Ófáir ferðamenn hafa komið við hjá honum til að dást að smíðinni auk þess sem hann hefur verið með fjölda þessara skipa á floti á sumrum fyrir fólk að dást að.

Þekktast þessara skipa er vafalaust farþega­skipið fræga, Titanic sem hvert mannsbarn kann deili á.

Fram til síðasta dags var Úlfar í véla- og bíla­útgerð ásamt því að smíða skip.

Þetta voru einstakir bræður, Úlli, Palli og Barði. Ljúfir í lunderni og skemmtilegir eins og þeir eiga kyn til. Stína Önna Páls móðir þeirra og Önni Páls voru mikið og kært sómafólk sem maður einhvern veginn þekkti alltaf og bara af ljúf­mennsku. Ásu ömmu þeirra kynntist í heim­sóknum með mömmu og ömmu svo hef ég hlustað á útvarps­þátt sem Illugi Jökulsson var með um Álf Magnússon langafa þeirra bræðra. Þannig að fjöl­skyldan er mér ekki ókunn.

Það var mikið áfall að frétta af andláti Úlfars fyrir aldur fram, mér var verulega brugðið og vil votta Steinunni, Einari og Kristínu, Palla og Barða og öllum ættingjum og vinum mínar bestu samúðar­kveðjur.

Úlfar Önundarson var sannarlega maður sem setti sinn svip á samfélagið og langt því frá að honum verði gerð skil í einni svona færslu. Hér vantar að vonum margt. Man meira að segja eftir honum spila á trommur á barna­balli í Samkomu­húsinu á Flateyri.

Til að fyrir­byggja allan misskilning þá er Sandgerði hús á Flateyri en ekki þorp á Suðurnesjum,“ skrifar Guðmundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað