Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Of seint fyrir Arnar Eggert að skipta um stjórnmálaskoðun: „Kannastu við Stjörnustríðsmyndirnar?“

Arnar Eggert Thoroddsen
Arnar Eggert Thorodd­sen Mynd: Facebook

Arnar Eggert Thorodd­sen aðjúnkt og tón­list­ar­sér­fræð­ingur lýsir sím­tali sem hann átti við Sjálf­stæð­is­mann í dag.

Tón­list­ar­gúrú­inn Arnar Eggert Thorodd­sen er skemmti­legur maður, flestir geta sjálf­sagt kvittað undir það en í nýrri Facebook-færslu lýsir hann sím­tali sem hann átti við útsend­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins en nú um mundir hringja útsend­arar stjórn­mála­flokk­anna sem óðir séu í grun­lausa kjósa­endur og reyna að sann­færa þá um að skipta um skoðun, þegar stutt er orðið í kosn­ingar. Svona eins og gengur og ger­ist. Arnar Eggert er samt ekk­ert á því að skipta um skoðun, það sé orðið of seint.

Hér má lesa hina skemmti­legu frá­sögn tón­list­ar­gúrús­ins:

Óþekkt númer hringir.

A: Halló?

K: Halló. Ég heiti Kristinn og er að hringja fyrir Guðlaug Þór, Brynjar Níelsson og (heyrði ekki).

A: Jahá!?

K: Hvernig sæki ég að þér?

A: Bara ágæt­lega.

K: Ertu eitt­hvað far­inn að hugsa til kjör­dags?

A: Nei, en ég hef dálítið gaman af honum Brynjari á Fjas­bók­inni við­ur­kenni ég.

K: (Ungur maður auð­heyr­an­lega, hvumsa). Jaaá … (hlær).

A: En ég er sós­í­alisti þannig að ég færi nú seint að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. (Spila mig vit­lausan) Ertu ekki ann­ars að hringja fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn?

K: Uuu … jú.

A: Já já, og allt gott með það (ég er að verða eins og gam­all bóndi með aldr­inum!).

K: En það er þá ekk­ert sem ég get sagt þér sem myndi fá þig til að skipta um skoðun?

A: Nei. Ég er hræddur um ekki. Kannastu við Stjörnu­stríðs­mynd­irnar?

K: Já.

A: Þetta er bara eins og Svart­höfði sagði við Loga: „It’s too late for me son…“

Við tekur hlátur. Við báðir. Kristinn hlær glað­værum hlátri, bland­aður ákveðnum feg­in­leika og hreinni hissun. Ég hlæ bara með drengnum í e-u skemmti­legu kaffi­stuði.

Hvers­dags­leg mann­leg­heit á þriðju­degi.

Góðar stundir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið