Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Dagur Kristjáns Eldjárns haldinn hátíðlegur á morgun – Skrautbúningur eiginkonunnar til sýnis

Forsetahjónin.
For­seta­hjónin. Mynd: Pétur Thomsen-Friðriksson

Til heið­urs Krist­jáns Eldjárns á fæð­ing­ar­degi hans á morgun 6. Desember mun Félag forn­leifa­fræð­inga og Þjóð­minja­safnið standa fyrir hátíð­ar­dag­skrá. Börn Krist­jáns munu afhenda skaut­bún­ing móður sinnar, Halldóru Eldjárn. Bún­ing­ur­inn verður upp­settur á gínu meðan á við­burð­inum stendur.

Dag­skráin hefst kl. 12 í fyr­ir­lestr­ar­sal Þjóð­minja­safns­ins. Harpa Þórs­dóttir Þjóð­minja­vörður ávarpar gesti og Guðrún Hildur Ros­enkjær og Ragn­heiður Trausta­dóttir flytja erindi.

Af yðar mynd er Ísland kallað fjallkonan fríð

Í erindi sínu fjallar Guðrún Hildur Ros­enkjær um hug­mynd Sigurðar ”mál­ara” Guð­munds­sonar um nýjan þjóð­bún­ing kvenna. Skaut­bún­ingur var fyrst bor­inn 1859 en náði fljótt miklum vin­sældum um land allt. Í ljósi þess er áhuga­vert að skoða sam­starf Sigurðar og kvenn­anna sem hann hvatti til dáða. Hverjar voru kon­urnar og hvernig leystu þær verk­efnið að skapa þjóð­bún­ing á fjall­konur Íslands?

Guðrún Hildur Ros­enkjær

Skaut­bún­ingar bera í sér marglaga heim­ildir um fram­úr­skar­andi þekk­ingu, magnað hand­verk og list­ræn til­brigði. Hver bún­ingur er með sínu lagi eftir efnum og ástæðum, tísku og tíð­ar­anda. Konur nutu tæki­fær­is­ins að skapa magn­aða bún­inga sem þær unnu af alúð, báru með stolti og gáfu af ástúð, þakk­læti og virð­ingu. Hver og einn skaut­bún­ingur er sjálf­stætt lista­verk sem erf­ist á milli kyn­slóða, gjöf frá konum til kvenna, tákn um vin­áttu.

Guðrún Hildur Ros­enkjær er klæð­skeri/kjóla­meist­ari og sagn­fræð­ingur. Hún hefur unnið við þjóð­bún­inga­gerð og kennslu frá 1997 og rekið fyr­ir­tækið Annríki – Þjóð­bún­ingar og skart frá árinu 2011.

Spegill fortíðar: Höfðingjakonan í Firði og hlutverk kvenna

Ragn­heiður Trausta­dóttir fjallar um forn­leifa­upp­gröft­inn í Firði, þar sem fund­ist hafa minjar sem varpa ljósi á líf og hlut­verk kvenna á fyrri öldum. Sérstök áhersla verður lögð á kuml höfð­ingja­kon­unnar, haugfé hennar og ein­stakar textíl­leifar sem hafa varð­veist. Auk þess verður rætt um gripi sem fund­ust í skál­anum og tengj­ast vinnu og dag­legu lífi kvenna í þessu mik­il­væga sam­fé­lagi for­tíðar.

Ragn­heiður Trausta­dóttir.

Ragn­heiður Trausta­dóttir er forn­leifa­fræð­ingur og stjórn­andi hjá Antikva ehf. Við­burð­ur­inn er hald­inn í sam­starfi við Félag forn­leifa­fræð­inga.

Mynd: Pétur Thomsen-Frið­riks­son (1910-1988). Lpr/2003-243-3 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið