Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Nærmynd af Gylfa Sigurðssyni – Gulldrengurinn frá Hafnarfirði

Hafnfirðingurinn Gylfi Þór Sigurðsson er einn af fremstu knattspyrnu­mönnum Íslands og sann­kölluð þjóðhetja fyrir árangur sinn. Síðustu vikur hafa þó verið honum erfiðar. Lögreglu­rannsókn stendur yfir og hann er sakaður um að hafa misnotað stúlku undir lögaldri. Honum hefur verið vikið tíma­bundið úr liði sínu, Everton, á meðan rannsókn stendur. Sjálfur mun hann halda fram sakleysi sín. Mannlíf fer yfir glæsi­legan feril Gylfa.

Foreldrar hans eru þau Sigurður Aðal­steinsson og Margrét Guðmunds­dóttir. Hann á einn bróður, Ólaf Má og eina systur, Fjólu Rún.

Gylfi þótti strax sem smápatti afar efnilegur knattspyrnu­maður. Hann hóf ferilinn hjá FH, og er reyndar uppalinn FH-ingur.

Árið 2003 gekk Gylfi í raðir Breiða­bliks, en sagt hefur verið að faðir hans hafi viljað það fyrst og fremst vegna þess að í þá daga var aðstaðan hjá Breiða­blik mun betri en í Kapla­krika.

Þegar Gylfi var sextán ár samdi hann við lið Reading og á árunum 2005 til 2008 lék hann með U-21 árs liði félagsins.

Árið 2008 og til ársins 2010 lék Gylfi með Reading í ensku meistara­deildinni; og var lánaður í skamman tíma til Crewe Alexandra og Shrewsbury Town í neðri deildum.

Árið 2010 fékk Gylfi stóra tækifærið er hann var keyptur til þýska úrvals­deildar­liðsins Hoffen­heim og lék með félaginu í tvö ár og kom sér á kortið sem meira en bara efnilegur knattspyrnu­maður.

Eftir það lék hann með Swansea City, Tottenham Hotspur, Swansea aftur og er Gylfi marka­hæsti leikmaður Swansea í úrvals­deildinni frá upphafi; skoraði 34 mörk. Árið 2017 var Gylfi seldur frá Swansea City til Everton fyrir 45 milljónir punda, og er hann enn þann dag í dag dýrasti leikmaður Everton frá upphafi.

Gylfi er þekktur fyrir auka­spyrnur sínar; hefur skorað úr flestum auka­spyrnum í ensku úrvals­deildinni frá því hann hóf að spila þar.

Hann hóf leik með A-landsliði karla árið 2010 og sá ferill er líklega sá glæsilegasti í sögu íslenska karla­lands­liðsins; hefur leitt Ísland á tvö stórmót, EM 2016 og HM 2018.

Gylfi var valinn Íþrótta­maður ársins árin 2013 og 2016. Hann er marka­hæsti Íslend­ingur í ensku úrvals­deildinni með tæp 70 mörk og einnig með flestar stoð­sendingar, 50 talsins.

Líf Gylfa hefur þó ekki alltaf verið dans á rósum. Faðir Gylfa, Sigurður, hefur margoft rekið fyrirtæki sín í þrot og eru gjald­þrotin um tuttugu talsins, flest ef ekki öll tengd fyrir­tækjum í sjávar­útvegi. Gylfi hefur sagt frá því í viðtölum að faðir hans sé skap­mikill og hafi hvatt hann og nánast rekið hann áfram í að æfa á degi hverjum frá því að hann var gutti.

Svona til gamans má geta þess að faðir Gylfa gengur undir gælu­nafninu Siggi Frekja, í Hafnar­firði, þar sem allir þekkja alla aðeins betur en annars staðar á landinu; alveg óhætt að segja að Sigurður sé mjög umdeildur.

Það hafa því ekki alltaf verið jólin hjá Gylfa og fjöl­skyldu. Sárindi hafa verið í fjöl­skyldu hans vegna misheppnaðra fjárhags­gjörninga föður hans. Líklegt er talið að vegna þessara fjárhags­örðugleika fjöl­skyldunnar, vegna allra gjald­þrotanna, hafi Gylfi alltaf verið með fæturnar á jörðinni, þrátt fyrir að hafa efnast gríðar­lega á knattspyrnu­ferli sínum; hann þykir afar klókur og skynsamur þegar kemur að fjár­festingum og þrátt fyrir að hann hafi ungur fjárfest fyrir föður sinn í sjávar­útvegi hefur hann aldrei látið einn né neinn vaða yfir sig þegar að peningum kemur. Enda aldrei verið kallaður Gylfi Frekja.

Gylfi vann aldrei hefð­bundna sumar­vinnu sem unglingur, heldur lét faðir hans hann æfa allt sem viðkemur knatt­spyrnu á hverjum degi á meðan vinirnir voru að reita arfa í unglinga­vinnunni í Hafnar­firði. Gylfi æfði sem barn, unglingur og ungur maður á hverjum degi, klukku­tímum saman. Þetta skilaði sér í því að hann varð sann­kallaður snillingur á sviði knatt­spyrnu.

Gylfi lauk grunn­skólanámi en stundaði ekki framhaldsnám. Hann hefur sagt frá því að honum langi að mennta sig eftir að ferlinum lýkur, en einnig að hann sjái ekki fyrir sér að flytja alfarið til Íslands þegar hann leggur skóna á hilluna. Gylfi stefnir á að ljúka knattspyrnu­ferlinum í Banda­ríkjunum – spila þar í eitt eða tvö ár, og hugnast honum vel að setjast að í Banda­ríkjunum til frambúðar.

Einu íslensku félögin sem Gylfi hefur æft með og leikið fyrir eru FH og Breiða­blik, en hann hefur aldrei spilað deildar­leik í meistara­flokki hér á landi. Hann hefur sagt frá því að þótt hann eigi góðar minningar frá þeim tíma sem hann lék með Breiða­blik sé hjarta hans ávallt svart­hvítt.

Gylfi er kvæntur Alexöndru Helgu Ívars­dóttur, sem kjörin var Ungfrú Ísland árið 2008. Þau gengu í heilagt hjónaband í fyrra og á þessu ári eignuðust þau sitt fyrsta barn. Gylfi er stakur reglu­maður og hefur aldrei drukkið áfengi eða neitt annarra eitur­lyfja.

Gylfi er ekki mikið fyrir athygli, allavega ef miðað er við margar skærar, myndarlegar og moldríkar knattspyrnu­stjörnur; er lítill áhuga­maður um viðtöl.

Gylfi er nokkuð trúaður og fer með bænir og í viðtali við DV árið 2018 lýsti hann þessu:

„Ég er alveg trúaður. Ég er ekki alveg á sama stalli og Emil Hallfreðsson. Ég er trúaður, ég fer ekki með bænir fyrir leiki en geri það á kvöldin.“

Óhætt er með öllu að fullyrða að Gylfi er einn besti knattspyrnu­maður Íslands fyrr og síðar; hann hefur alla tíð verið rólegur, yfir­vegaður og kurteis í framkomu og hreinlega fyrirmynd í alla staði. Ímynd hans hefur verið fáguð og „elegant“ og lítið verið um slúður eða orðróm um að hann tengist einhverju vafasömu.

Það kom því eins og blaut tuska framan í íslensku þjóðina að Gylfi hefði verið hand­tekinn nýlega grunaður um barnaníð. Þetta eru einhverjar óvæntustu og verstu fréttir sem landsmenn hafa fengið í langan tíma.

Gull­drengurinn Gylfi er um þessar mundir fallinn af stalli sem konungur íslenskra knattspyrnu­manna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun um hræðilegt athæfi en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að Gylfi Sigurðsson sé saklaus af því sem á hann er borið.

Hér má sjá helstu viðurkenningar Gylfa á ferli hans:

Leikmaður mánaðarins, enska úrvals­deildin, mars 2012.

Leikmaður mánaðarins, enska meistara­deildin, mars 2010.

Leikmaður tíma­bilsins, Reading FC: 2009–10.

Leikmaður tíma­bilsins, Hoffen­heim: 2010–11.

Knattspyrnu­maður ársins, Ísland: 2010, 2012, 2013, 2014, 2015, 2016, 2017.

Íþrótta­maður ársins: 2013 og 2016.

Leikmaður tíma­bilsins, Swansea City: 2015–16 og 2016–17.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra