Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa hækkað laun formanns bæjarráðs Árborgar um 210 prósent

Tómas Ellert Tómasson
Tómas Ellert Tómasson

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­verandi bæjar­fulltrúi í Árborg segir að bæjar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins hafi í lok síðasta kjör­tímabils í sveitar­félaginu, kosið gegn því að bæjar­stjórnin gengi til samstarfs við KPMG um árangurs­stjórnun í fjármálum Árborgar.

Sjá einnig: Selfoss er á barmi gjald­þrots: „Ég geri ráð fyrir að það verði einhver hagræðing“

Pistill sem Tómas Ellert Tómasson skrifaði, birtist í gær í sunnlenska.is en þar bendir hann á tvískinn­ungs­hátt Sjálfstæðis­flokksins sem sagði frá slæmri fjárhags­stöðu sveitar­félagsins í fréttum í gær. Í pistlinum bendir Tómas einnig á að í stað þess að ráðast strax í þá vinnu sem búið var að samþykkja í bæjar­stjórn, eftir samstarfið við KPMG, hafi það verið fyrsta verk nýs bæjar­stjórnar­meirihluta Sjálfstæðis­flokksins að hækka laun formanns bæjarráðs um heil 210 prósent, ofan á önnu laun og þóknanir.

Pistilinn má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Falskur tónn sleginn í Árborg

Fyrir ári síðan eða í lok sl. kjör­tímabils var samþykkt á bæjar­stjórnar­fundi að ganga til samstarfs við KPMG um árangur­stjórnun í fjármálum sveitar­félagsins. Bæjar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins kusu gegn tillög­unni og óskuðu eftir frestun málsins. Nú kveður við annan tón, sem betur fer.

Sveitar­félagið Árborg hefur vaxið mikið á undan­förnum árum og stefnir í áfram­haldandi vöxt vegna eftir­spurnar frá nýjum íbúum og áforma land­eigenda um uppbyggingu.

Miklum vexti fylgja ýmsar áskoranir fyrir sveitar­félagið í fjármálum. Víðtæk uppbygging á nauðsyn­legum fjár­frekum innviðum og marg­vísleg þjónusta og vaxandi umsvif er allt hluti af þeim áskorunum sem takast þarf á við stjórn fjármála hjá sveitar­félaginu.

Þáverandi og núverandi efnahags­ástand með mikilli og vaxandi verðbólgu gerir enn flóknari þá áskorun að stýra fjármálum sveitar­félags á borð við Árborg með sem farsæ­lustum hætti. Af þeim sökum gékk þáverandi bæjar­stjórnar­meirihluti Svf. Árborgar til samstarfs við KPMG um árangur­stjórnun í fjármálum sveitar­félagsins.

Í stað þess að ráðast strax í þá vinnu sem að búið var að samþykkja í bæjar­stjórn að þá var fyrsta verk nýs bæjar­stjórnar­meirihluta Sjálfstæðis­flokksins að hækka laun formanns bæjarráðs um 210%, ofan á föst bæjar­fulltrúa­laun og þóknanir fyrir formennsku í fasta­nefnd og nefndum byggða­samlaganna. Laun og þóknanir sem skila formanni bæjarráðs yfir einni og hálfri milljón króna á mánuði eða 18mkr. á ári.

Vonandi fá íbúar að sjá á íbúafundi á morgun að ein sparnaðar­tillagan feli í sér að formaður bæjarráðs dragi til baka sjálf­tökuna og endur­greiði íbúum sveitar­félagsins oftökuna. Annað er að slá falskan tón í ráðdeildinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp