Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Katla Sólnes hlýtur virtan Hollywood-styrk

Katla er fyrst Norður­landabúa til að hljóta viður­kenn­inguna

Katla Sólnes
Katla Sólnes Katla er einn efni­leg­asti hand­rita­höf­undur Norð­ur­land­anna Mynd: Alda Valentína Rós

Íslenski handrits­höfundurinn og leik­stjórinn Katla Sólnes hefur hlotið einn virtasta handrits­styrk heims, svonefndan Nicholl-styrk Bandarísku kvikmynda­akademíunnar, fyrir handrit að kvikmynd í fullri lengd.

Styrkurinn er veittur af Kvikmynda­akademíunni í Hollywood og felur í sér bæði viðurkenningu á hæfi­leikum höfundar, auk hand­leiðslu og aðgangs að víðtæku tengsla­neti innan kvikmynda­iðnaðarins.

Katla er jafnframt fyrsti handrits­höfundurinn frá Norður­löndunum sem hlýtur styrkinn frá upphafi, en hann hefur verið veittur frá árinu 1986.

Hún útskrifaðist með MFA-gráðu frá Columbia-háskóla í New York árið 2024 og hefur áður vakið athygli fyrir verk sín, meðal annars með viðurkenningum frá Alfred P. Sloan-sjóðnum. Þá var hún einnig valin í Sundance Screenwriters Lab, eina virtustu handrita­smiðju heims.

Nicholl-styrkirnir hafa í gegnum tíðina reynst mikil­vægur stökk­pallur fyrir handrits­höfunda. Meðal fyrri styrkþega er Susannah Grant, sem skrifaði síðar kvik­myndina Erin Brockovich og hlaut Óskars­verðlauna­tilnefningu fyrir handritið.

Í ár var nýtt alþjóðlegt valkerfi tekið upp, þar sem yfir 500 meðlimir Akademíunnar komu að mati handrita í samstarfi við 40 kvikmynda­skóla og fagstofnanir víðs vegar um heiminn. Aðeins tveir aðrir handrits­höfundar og tvö handrits­teymi hlutu styrkinn að þessu sinni.

Í tilkynningu Akademíunnar segir að hópur styrkþega sé „óvenju sterkur, fjöl­breyttur og alþjóð­legur hópur nýrra höfunda sem endur­spegli framtíð frásagnar­listar“.

Handrit Kötlu ber vinnu­titilinn Og jörðin klofnaði alelda (Eruption) og gerist á Íslandi snemma á áttunda áratugnum. Sagan fjallar um hjónaband tveggja jarð­fræðinga sem fer að reyna á þegar metnaðar­fullur starfs­nemi frá Banda­ríkjunum kemur inn í líf þeirra.

Fram­leiðsla myndarinnar verður í höndum Antons Mána Svans­sonar fyrir framleiðslu­fyrirtækið STILL VIVID. Anton hefur áður komið að fram­leiðslu á kvik­myndum á borð við Hvítur, hvítur dagur, Hjarta­steinn og Volaða land.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt