Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Morð Ísraela halda áfram á Vesturbakkanum – Yfir 20 íbúðir sprengdar í Jenin-flóttamannabúðunum

Ísraelar hafa eyði­lagt fjöl­margar bygg­ingar í hernumdu flótta­manna­búð­unum í Jenin á Vest­ur­bakk­anum, nokkrum klukku­stundum eftir að her­menn þeirra drápu 73 ára gamlan mann, að sögn palest­ínska heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins.

Tals­maður ísra­elska hers­ins sagði að 23 bygg­ingar hafi verið eyði­lagðar á sunnu­dag í Jenín „til að koma í veg fyrir að hryðju­verka­mann­virki verði komið á þar“. Herinn sagð­ist einnig hafa drepið 50 palest­ínska bar­daga­menn á Vest­ur­bakk­anum síðan um miðjan jan­úar.

Frétta­menn Al Jazeera sögðu að spreng­ing­arnar hafi sprengt íbúð­ar­hús í ad-Damj hverf­inu í búð­unum. Þá greindi palest­ínska frétta­stofan Wafa frá því að spreng­ing­arnar hafi verið svo öfl­ugar að þær heyrð­ust víðs vegar um borg­ina og í nær­liggj­andi bæjum.

Palest­ínska utan­rík­is­ráðu­neytið for­dæmdi eyði­legg­ingu hers­ins á bygg­ingum í Jenin og lýsti því sem „grimmi­legu“. Mahmoud Abbas for­seti óskaði eftir brýnum fundi í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna til að stöðva eyði­legg­ingu heilu íbúð­ar­blokk­anna í Jenin og Tulkarm búð­unum.

Í öðru atviki í Arroub, á suð­ur­hluta Vest­ur­bakk­ans, drap ísra­elski her­inn 27 ára gamlan mann, að nafni Mohammed Amjad Hadoush, að sögn palest­ínska heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og palest­ínska Rauða hálf­mán­ans.

Ísra­elski her­inn hóf stór­sókn á hernumdu Vest­ur­bakk­anum í síð­asta mán­uði, sem hann kallar „Járn­múr­inn“, sem beind­ist fyrst og fremst að því að ráð­ast á palest­ínska vopn­aða hópa frá Jenin-svæð­inu, að þeirra sögn, rétt eftir að vopna­hlé við palest­ínsku Hamas-sam­tökin á Gaza gengu í garð 19. jan­úar.

Stigmögnun árása

Spreng­ing­arnar í gær marka stig­mögnun þar sem Ísraelar fremja í auknum mæli óheftar árásir á palest­ínska inn­viði.

„Hljóðin eru skelfi­leg,“ sagði Henna al-Haj Hassan, íbúi Jenin, við Al Jazeera í síma um spreng­ing­arnar. Hassan sagði að hún og aðrir íbúar Jenin hafi staðið frammi fyrir gengd­ar­lausum árásum síð­ustu tvær vikur. Hún bætti við að útgöngu­bann væri í gildi, versl­anir og önnur fyr­ir­tæki lokuð.

For­stjóri rík­is­sjúkra­húss­ins í Jenin, Wisam Baker, sagði Wafa að sumir hlutar sjúkra­húss­ins hafi skemmst vegna spreng­ing­anna, en ekki er vitað um mann­tjón. Margar fjöl­skyldur eru nú á ver­gangi vegna nið­ur­rifs­ins, sagði frétta­stofan.

Ahmed Tobasi, annar íbúi í Jenín, sagði að húsin í Jenin-búð­unum séu „ekki lengur íbúð­ar­hæf“ vegna eyði­legg­ingar Ísrael á inn­viði. „Ísra­elski her­inn þarf enga afsökun til að eyði­leggja húsin okkar og flytja okkur burt,“ sagði Tobasi, sem hefur búið ævi­langt í Jenín við Al Jazeera. „Þetta er mjög löng, gömul áætlun ísra­elska hers­ins, sér­stak­lega fyrir [flótta­manna­búð­irnar] vegna þess að þeir vilja drepa og láta mál­stað Palest­ínu deyja.“

Hann bætti við: „Þannig að þetta snýst ekki um hryðju­verk; þetta eru venju­legt heim­ili, þar sem fólk býr, og þegar þú talar um eitt hús, þá er það í raun­inni ekki ein fjöl­skylda sem býr þar. Í Jenin búð­unum finnur þú eitt hús með þremur til fjórum fjöl­skyldum.“

Eldri maður og tveggja ára stúlka skotin til bana

Spreng­ing­arnar áttu sér stað skömmu eftir að 73 ára gam­all maður var drep­inn í skotárás Ísra­els­hers í Jenin-flótta­manna­búð­unum, að sögn palest­ínska heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í gær, en um er að ræða nýjasta mann­fallið í yfir­grips­miklum árásum Ísraela.

„Ísra­elski her­inn hefur sett upp marga vega­tálma og aðrar eft­ir­lits­stöðvar yfir hernumdum Vest­ur­bakk­anum og það hafa að minnsta kosti 27 Palest­ínu­menn verið drepnir,“ sagði Hamdah Salhut hjá Al Jazeera. „Margir þeirra eru óbreyttir borg­arar, þar á meðal tveggja ára stúlka sem var skotin í höf­uðið þegar hún borð­aði kvöld­mat heima með fjöl­skyldu sinni, og 73 ára gam­all maður skot­inn af ísra­elskum her­mönnum í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Ingvar Þóroddsson hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og segist nú munu starfa í stjórnarandstöðu.
Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Heimur

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Í rannsókn sem birtist í JAMA Pediatrics var könnuð reynsla fólks sem hóf hormónameðferð á unga aldri. Langflestir töldu meðferðina rétta ákvörðun.
Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni