Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Katrín 2016 tekur Katrínu 2022 til bæna: „Við viljum vera samfélag sem tekur á móti meðbræðrum “

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jak­obs­dóttir.

„65 milljónir manna eru á flótta. Helmingur þeirra er börn sem hafa ekkert til þess unnið að vera svipt framtíð sinni. Þetta gætu verið börnin okkar.“

Þetta sagði Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra og formaður VG, fyrir ekki svo löngu síðan eða á Eldhúsdags­umræðum á Alþingi 2016. Í dag hlær hún mögulega að þessu bernsku­breki og veltir því fyrir sér hvernig hún gat trúað þessu. Í það minnsta mætti ætla það miðað við ákvarðanir hennar í dag.

Myndband af ræðunni má sjá hér fyrir neðan en því hefur verið deilt á samfélgasmiðlum og sett í samhengi við brott­vísun flótta­manna í nótt. Sú aðgerð hefur verið harðlega fordæmd frá mörgum hliðum í dag.

Það má teljast næstum öruggt að Katrín árið 2016 hefði fordæmt aðgerðir sínar í dag, sex árum síðar. Katrín sagði að á Íslandi væri vel hægt að byggja betra samfélga sem tæki vel á móti flótta­mönnum og einnig hlúði vel að þeim sem fyrir væru.

„Ég held að við viljum vera samfélag sem tekur á móti meðbræðrum og -systrum okkar sem flýja hörmuleg stríð. Það er nefnilega hægt að hjálpa, það er hægt að hjálpa okkar fólki án þess að loka dyrunum fyrir öðrum.

Það er hægt að velja stjórnmálaöfl sem eru tilbúin í það verkefni,“ sagði Katrín og vafalaust héldu flestir að hún væri að tala um eigin flokk. Mögulega var hún með annan flokk í huga, því hún nefnir engan flokk á nafn.

Svo talaði Katrín um að kærleikur ætti að vera kjarni okkar samfélags. „Þetta er flótta­fólkið sem við erum að tala um, fólkið sem flýr sprengjur og óhugnað sem við getum sem betur fer fæst ímyndað okkur, fólkið sem einhverjir eru svo hræddir við að þeir tala um að loka landa­mærum og afnema mannúð og kærleika sem okkur finnst mörgum að eigi að vera kjarni okkar samfélags, kjarni þess sem við erum,“ sagði Katrín þá. En menn mega nú skipta um skoðun.

Ræðan er nokkuð löng en flótta­menn hafa greini­lega verið henni ofarlega í huga árið 2016. Oftar en einu sinni fordæmir hún þáverandi stefnu, sem er í raun núverandi stefna einnig. Mál þeirra virðast eitt mikil­vægasta mál flokksins og því viðsnúningur flokksins stór­undarlegur. Eins og ef Framsókn færi að hata bændur.

Til marks um þetta þá byrjar Katrín ræðuna svo:

„Kæru landsmenn. Ég held að við viljum ekki vera samfélag þar sem nokkur þúsund börn líða einhvers konar skort í landi sem telst hið ellefta ríkasta í heiminum. Og, já, ég held að við viljum vera samfélag sem tekur á móti meðbræðrum og -systrum okkar sem flýja hörmuleg stríð. Það er nefnilega hægt að hjálpa, það er hægt að hjálpa okkar fólki án þess að loka dyrunum fyrir öðrum.“

En lokorð ræðunnar hljóma helst eins og bölvun í dag: „Það held ég að sé góð framtíð. Við eigum ekki að láta segja okkur að sú framtíð sé óraunhæf. Við getum einmitt látið hana verða ef við gerum það saman. — Góðar stundir.“

Svo reyndist ekki.

Ræðan hefst á mínútu 28 og hætti mynd­bandið að byrja þar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning