Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Tímasetning brotthvarfs Eggerts vekur furðu – Kynnir árshlutauppgjör

Eggert Þór Kristófersson
Eggert Þór Krist­ó­fers­son Mynd: n1.is

Líkt og fjallað hefur verið um síðustu daga hefur Eggerti Þór Krist­óferssyni verið sagt upp starfi sem forstjóri Festi. Athygli vekur að hann mun hætta fjórum dögum eftir kynningu árshluta­uppgjörs vegna 2. ársfjórðungs og mun því kynna uppgjörið. Viðskipta­blaðið greinir frá þessu.

Eggert Þór hefur starfað hjá N1 og Festi í 11 ár. Hann var fjármála­stjóri N1 en tók við sem forstjóri fyrir­tækisins árið 2015. Fyrir fjórum árum keypti N1 Festi undir stjórn Eggerts. Á þeim tíma var markaðs­virði N1 18 milljarðar króna. Á því tímabili sem Eggert hefur gegnt starfi forstjóra hjá Festi hefur félagið skilað miklum hagnaði. Festi er í dag móður­félag N1, Krónunnar, Elko og fleiri fyrir­tækja.

Festi hagnaðist um 5 milljarða króna á síðasta ári. Í dag er markaðs­virði félagsins 66 milljarðar króna.

Í Viðskipta­blaðinu segir að þegar skipt var um forstjóra hjá N1 árið 2015, hafi verið greint frá því að fráfar­andi forstjórinn, Eggert Benedikt, myndi hætta strax í starfi sínu og Eggert Þór taka við. Líkt og kom fram í tilkynningu frá Festi til Kaup­hallarinnar í síðustu viku, þá mun Eggert Þór ekki hætta fyrr en eftir 31. júlí. Það rennir sterkum stoðum undir það að Eggert Þór hafi sannarlega ekki haft það í hyggju að hætta, að eigin frumkvæði. Það þykir athyglis­vert hvenær hann kemur til með að hætta, en það er fjórum dögum eftir að árshluta­uppgjör verður kynnt.

Eins og áður hefur komið fram hélt Festi því fram í tilkynningu til Kaup­hallarinnar að Eggert Þór hefði sjálfur sagt upp. Samkvæmt heimildum Mannlífs er það þó ekki svo, heldur var honum sagt upp. Skýringin sem Festi og Eggert Þór gaf út virðist ekki heldur hafa sannfært marga, þar á meðal hluthafa í félaginu, sem margir eru sagðir afar ósáttir vegna uppsagnarinnar. Eggert Þór hefur verið vel liðinn í starfi og með gott orðspor.

Samkvæmt heimildum var það fyrir tilstilli ákveðinna hluthafa að stjórn félagsins ákvað að segja Eggerti Þór upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá