Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Kristinn hæðist að Páli og Páleyju:„Umfangsmesta lögreglurannsókn á símahvarfi í sögu Lýðveldisins“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafns­son

Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson skrifaði í gærkvöldi færslu á Facebook þar sem hann dregur Pál Steingrímsson og Páleyju Borgþórs­dóttur sundur og saman í háði.

Við færsluna birtir Kristinn skjáskot af ljósmynd sem Páll Steingrímsson, skip­stjóri og meðlimur í „skæruliða­deild“ Samherja, setur í athugasemd á Facebook en myndin sýnir skotvopn sem Páll segist nota á „hælbíta“ og á þá við blaðamenn sem fjallað hafa um mál Samherja.

„Páll Steingrímsson skip­stjóri og skæru­liðsforingi Samherja segist vilja nota þetta vopn á myndinni á þá sem fjalla með gagnrýnum hætti um Samherja, blaðamenn og aðra (kallar þá „hælbíta“ og „meindýr“). Ég efast um að það sé varúðar­merking á þessu volduga vopni Páls sem segir NOTIST EKKI Á BLAÐAMENN en það myndi hann líkegast hunsa.

Nú tapaði þessi Páll símanum sínum. Fullyrt er að gögn úr honum hafi komist í hendur blaða­manna sem hafa birt fréttir á grunni þeirra. Páll kærði símastuld til Páleyjar Borgþórs­dóttur, lögreglu­stjóra á Akureyri og hófst þá umfangs­mesta lögreglu­rannsókn á síma­hvarfi í sögu Lýðveldisins.“

Því næst talar Kristinn um grúsk Páleyju og segir hana hafa fundið lög sem hægt væri að nota gegn blaða­mönnunum. Nema hvað að lögin undan­skilja einmitt beitingu þeirra gegn blaða­mönnum.

„Embætti Páleyjar fann mögulega sökudólga, sum sé blaða­mennina sem eitruðu orðin hans Páls og skot­vopnið beindust að. Þegar Páley ákveður að skjóta blaða­mönnum skelk í bringu finnur hún eftir nokkuð grúsk lög sem sett voru til að verja konur fyrir stafrænu kynferðis­ofbeldi. Þau eru tiltölu­lega ný og áttu að vera vopn til að verja fólk, aðallega konur, fyrir hefndar­klámi og annari óhæfu eins og að pósta nektar­myndum í óleyfi. Löggjafinn treysti að vísu lögreglunni ekki sérstak­lega vel fyrir þessum vopnum og því var sett í lögin skýrt undanþágu­ákvæði. Þau segja að ekki megi beita þeim gegn fjölmiðla­mönnum sem birta efni sem á erindi við almenning. Í lögunum er sum sé varúðar­merking: NOTIST EKKI Á BLAÐAMENN. Þessa varúðar­merkingu hunsar embætti lögreglu­stýrunnar.“

Í lokaorðum sínum veltir Kristinn því fyrir sér hvort hann teljist vera að brjóta „kynferðisleg friðhelgis­mörk“ Páls Steingríms­sonar með birtingu byssu­myndarinnar.

„Nú er spurning hvort ég teljist vera að brjóta „kynferðisleg friðhelgis­mörk“ Páls Steingríms­sonar skip­stjóra með því að birta þessa byssumynd. Að sumu leyti er þetta jú nektar­mynd því hún sýnir nakinn sann­leikann um innræti skæru­liðs­foringjans. Páll getur hóað í skæruliða­fund til að ræða þetta lögfræði­lega álitamál með Páleyju og Örnu McClure, lögmanni Samherja – þessari sem sagðist vilja „stinga, snúa og strá salti í sárin“.“

Sjá einnig: Páll Steingrímsson í óhugnanlegu samtali um „hælbíta“: „Ok hvaða cal er best að nota“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur