Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Þetta var innanbúðarverk“

Ekkja mannsins sem lést í morð­tilræðinu við Trump telur að um samsæri sé að ræða.

Trump stuttu eftir tilræðið
Trump stuttu eftir til­ræðið Ekkjan telur brögð vera í tafli Mynd: REBECCA DROKE / AFP

Ekkja fyrr­verandi slökkviliðs­stjórans Corey Comperatore, sem lét lífið í misheppnaðri morð­tilraun á Donald Trump í Butler í Pennsylvaníu árið 2024, segist sannfærð um að víðtækt samsæri hafi legið að baki árásinni.

Helen Comperatore ræddi málið í viðtali við NewsNation og sagði að hún teldi stjórn­völd hafa átt einhvern þátt í atburðinum.

„Ég trúi því að þetta hafi verið innan­búðarverk, einhvers staðar innan stjórn­kerfisins,“ sagði hún. Þegar hún var spurð hvort hún teldi að um pólitískt samsæri hefði verið að ræða svaraði hún: „Já, algjör­lega.“

Viðmælandinn spurði hvort hún hefði séð einhver gögn sem bentu til víðtækara samsæris. Hún kvaðst ekki geta lagt fram sönnunar­gögn en sagðist hafa fengið upplýsingar sem hefðu styrkt grun sinn.

„Mér hefur verið sagt ýmislegt. Svo gerðist eitthvað hjá mér skömmu eftir árásina og þegar maður fer að púsla þessu saman þá meikar þetta allt full­kominn sens,“ sagði hún.

Helen segist einnig sannfærð um að árásar­maðurinn, hinn tvítugi Thomas Crooks, hafi ekki staðið einn að verki heldur verið hluti af stærra pólitísku samsæri sem hefði það markmið að ráða Donald Trump af dögum. Hún nefndi þó enga einstaklinga eða hópa sem hún teldi bera ábyrgð.

Engin staðfest gögn hafa hins vegar komið fram sem styðja full­yrðingar um samsæri að baki árásinni.

Í viðtalinu skoraði hún á Trump forseta að taka rannsókn málsins sjálfur í sínar hendur og sagði að hún myndi ekki finna frið fyrr en þeir sem bæru ábyrgð yrðu dregnir til ábyrgðar.

„Ekki gleyma okkur. Mundu hvað við gengum í gegnum þennan dag. Við erum enn hér og þurfum svör,“ sagði hún og lýsti þeim skila­boðum sem hún myndi senda forsetanum.

Nú eru tvö ár liðin frá því að byssukúla strauk eyra Donalds Trump á kosninga­fundi í Butler. Corey Comperatore varð fyrir skoti og lést þegar hann reyndi að verja fjöl­skyldu sína. Árásar­maðurinn, Thomas Crooks, var skotinn til bana af öryggis­sveitum á vettvangi.

Þrátt fyrir umfangs­mikla rannsókn hefur enn ekki tekist að skýra hver hvati Crooks var. Hann skildi hvorki eftir sig stefnu­yfirlýsingu né aðra skýringu á verknaðinum og takmörkuð umsvif hans á netinu hafa gert rann­sóknina erfiðari.

Í nýrri skýrslu eftirlits­aðila stjórn­valda kemur fram að megin­skýring mistak­anna hafi verið alvarlegir annmarkar í vinnu­brögðum bandarísku leyni­þjónustunnar. Samkvæmt skýrslunni bárust stofnuninni aldrei 102 tilkynningar sem sendar voru í gegnum talstöðva­kerfi lögreglu um grun­samlegan mann sem síðar reyndist vera Crooks.

Helen Comperatore segir óskiljanlegt að ekki hafi verið brugðist við strax.

„Af hverju? Af hverju hefði ekki átt að bregðast við eftir fyrstu tilkynninguna? Ef þeir hefðu einfald­lega haldið Trump frá sviðinu væri ég ekki hér að ræða þetta í dag,“ sagði hún.

Hún gagnrýndi jafnframt leyni­þjónustuna harðlega og sagði stofnunina hafa brugðist á öllum stigum.

„Þeir gerðu allt vitlaust. Þeir hlustuðu ekki á talstöðvarnar og samskiptin voru engin,“ sagði hún.

Ekkjan sagði einnig að enginn frá leyni­þjónustunni hefði haft samband við hana fyrr en sumarið 2025, tæpu ári eftir árásina, og að hún hefði enn ekki fengið fullnægjandi svör við spurningum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku