Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Sema Erla opnar sig upp á gátt um líflátshótanir og rasísk skilaboð: „Þið munuð ekki sigra mig!“

Baráttu­konan kraft­mikla, Sema Erla Serdar, hefur orðið fyrir miklum kynþátta­fordómum hér á landi í mörg ár.

Hún er orðin þreytt á ástandinu og skrifaði pistil um það, sem byrjar svona:

„Mikið rosalega er svona áreiti alveg gjör­samlega óþolandi. Það er ógeðslegt hvernig fullorðið fólk leyfir sér endalaust að ráðast inn í líf mitt til þess að áreita mig og níðast á mér og uppruna mínum í þeim tilgangi að niður­lægja mig, brjóta mig niður og bara ganga frá mér!“

Sema Erla Serdar.

Hún segir að „í um áratug hef ég þurft að sitja undir fordómum, menningar­legum rasisma, íslamó­fóbíu, haturs­orðræðu, hótunum og ofbeldi. Um mig eru skrifuð fjöldi ummæla á netið í hverri viku. Mér eru send skilaboð, ég fæ tölvu­pósta, það er hringt í mig. Mér er óskað dauða, mér er hótað ofbeldi og lífláti, það er hvatt til þess að ég sé myrt, mér er hótað kynferðis­ofbeldi, það er hótað að drepa fjöl­skylduna mína. Það er ráðist á mig úti á götu.“

Sema Erla segir að „þetta endalausa áreiti og ofbeldi er afleiðing af áratuga­löngu skipulögðu persónu­níði, ærumeiðingum, lygum og áróðri um mig af hálfu einstaklinga, hópa og fjöl­miðils sem eiga það sameiginlegt að vera þjóðernis­sinnar, rasistar og ný-nasistar.“

Hún færir í tal að henni séu „gerðar upp annarlegar hvatir, óheilindi og alls konar rugl og það er fullt af fólki sem trúir því. Ástæðan? Ég er kona af blönduðum uppruna sem vill að við tökum á móti fólki á flótta með mannúð og mann­réttindi að leiðar­ljósi. Það er glæpurinn sem réttlætir ofbeldi gagnvart mér.“

Sema Erla hafði betur gegn Margréti Frið­riks­dóttur í dóm­sal, eins og Mannlíf fjall­aði um.

Sema Erla segir að hún sé í raun varnar­laus gagnvart slíkum hatursáróðri og hötunum:

„Það á enginn að þurfa að lifa við svona ofbeldi árum saman en við sem það gerum erum algjör­lega varnalaus gagnvart þessu! Að einhverju leyti er þessi hegðun enn samfélags­lega samþykkt. Það birtist meðal annars í því að kerfið verndar ekki þolendur fyrir svona áreiti og þetta ofbeldi hefur ekki neinar raun­verulega afleiðingar fyrir gerendur. Afleiðingarnar geta hins vegar verið miklar og alvarlegar fyrir þolendur. Það er ekkert að grín að lifa með haturs­orðræðu, áreiti og menningar­legan rasisma sem hluta af þínu daglega lífi!“

Fyrir sjö árum tók Sema Erla „upp á því að birta skjáskot af skila­boðum og ummælum sem skrifuð eru um mig. Það gerði ég í leit minni að réttlæti og til þess að skila skömminni. Síðan þá hef ég birt margt af því sem ég fæ sent. Ekki allt, því sumt er þess eðlis að ég bara get það ekki. Þetta er það eina sem ég get gert. Þetta er mín leið til þess að skila skömminni. Í stað þess að sitja á henni, gera hana að minni, og láta hana brjóta mig niður. Því skömmin er svo sannarlega ekki mín.“

Hún nefnir að endingu að „svona ógeðsleg ummæli segja auðvitað ekkert um mig en mjög mikið um þann sem finnst í lagi að stunda svona áreiti. Við ykkur sem hagið ykkur svona vil ég segja að á meðan þið getið ekki látið mig í friði mun ég halda áfram að skila skömminni, opinbera ykkur og birta viðbjóðinn og hatrið sem þið sendið mér. Ég mun halda áfram að kæra ykkur sem beitið mig ofbeldi. Megið þið hafa ævarandi skömm fyrir hegðun ykkar.

Þið munuð ekki sigra mig!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto