Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Slátrari fékk tíu ár fyrir að selja svínakjöt sem nautakjöt

„Við urðum mjög hissa þegar hann var hand­tek­inn fyrir að selja svína­kjöt“

Svín
Svín Mynd: Joshua Lutz

Slátrari í írösku borg­inni Najaf hefur verið dæmdur í tíu ára fang­elsi fyrir að selja svína­kjöt sem nauta­kjöt. Málið hefur vakið mikla athygli í Írak, enda er Najaf ein helg­asta borg sjía-múslima.

Æðsta dóms­mála­ráð Íraks greindi frá því á mánu­dag að mað­ur­inn hefði verið stað­inn að því að selja 75 kíló af svína­kjöti undir því yfir­skini að um nauta­kjöt væri að ræða.

„Dómstóll Najaf hefur dæmt ein­stak­ling í tíu ára fang­elsi fyrir sölu á kjöti sem ekki var hæft til mann­eldis,“ sagði í til­kynn­ingu ráðs­ins.

Neysla svína­kjöts er bönnuð sam­kvæmt íslam þar sem kjötið er talið óhreint. Írösk lög banna þó ekki sér­stak­lega sölu þess, en krist­inn minni­hluti býr í land­inu.

Dómurinn byggði á lögum frá árinu 1998 sem gera það refsi­vert að selja hunda-, asna- eða annað kjöt sem talið er óhæft til mann­eldis.

Najaf hefur sér­staka trú­ar­lega þýð­ingu fyrir sjía-múslima og heim­sækja millj­ónir píla­gríma borg­ina árlega. Þar er graf­hýsi Imam Ali, tengda­sonar Múhameðs spá­manns, fjórða kalífans og fyrsta imams sjía-múslima.

Málið hefur vakið mikla umræðu á sam­fé­lags­miðlum. Sumir hafa kallað eftir auknu mat­væla­eft­ir­liti en aðrir gert grín að mál­inu.

Íbúinn Ahmad al-Mansouri var meðal við­skipta­vina slátr­ar­ans. Hann sagð­ist hafa keypt hakkað kjöt hjá honum og talið það vera bæði óvenju gott og ódýrt. Hann fór því að versla þar reglu­lega.

„Við urðum mjög hissa þegar hann var hand­tek­inn fyrir að selja svína­kjöt,“ sagði Mansouri, sem grín­að­ist með að hann hefði lík­lega borðað meira svína­kjöt en nauta­kjöt eða lamba­kjöt und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Aðeins um 150 þúsund af tveimur milljónum ólífutrjáa sem stóðu á Gaza fyrir stríðið eru enn eftir, samkvæmt gögnum landbúnaðarráðuneytisins þar.
Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Maðurinn fannst látinn á laugardagsmorgun eftir að bíll hans hafði fundist nærri kapellu. Dánarorsök er óstaðfest.

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Kushner semur um frið en græðir á stríði

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum