Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Marinó kemur Herði Torfassyni til varnar: „Hans góði orðstír mun ekki deyja“

Marinó G. Njálsson hafnar því alfarið að Búsáhaldarbyltingin hafi verið til einskis líkt og Bragi Halldórsson hefur haldið fram. DV fjallaði um færslu Braga fyrr í dag en líkt og fyrr segir telur hann að byltingin hafi verið til einskis. Marinó bendir á að þökk sé henni hafi Davíð Oddsson verið rekin úr starfi og að ríkis­stjórn Geirs H. Haarde hafi farið frá völdum tveimur árum fyrr en hefði þurft.

Pistill Marinós í heild sinni:

Í færslu á Facebook er því haldið fram að Búsáhalda­byltingin hafi verið til einskis og þætti Harðar Torfa­sonar í henni sé ekki gert nægilega hátt undir höfði.  Fjallað er um þessa færslu á dv.is.

Búsáhalda­byltingin skilaði kannski ekki öllu því sem fólk vonaðist til, en hún var ekki til einskis.  Búsáhalda­byltingin varð til þess að ríkis­stjórn Geirs H. Haarde fór frá völdum tveimur árum fyrr en hefði þurft.  Búsáhalda­byltingin varð til þess að Davíð Oddsson var rekinn úr starfi seðla­bankastjóra.  Búsáhalda­byltingin varð til þess að Stjórnlagaráð skrifaði drög að nýrri stjórnar­skrá, þó fjór­flokkurinn komi enn í veg fyrir að þjóðin fái hana.  Búsáhalda­byltingin varð til þess að spilling fyrir­hrunsár­anna var rannsökuð.  Búsáhalda­byltingin varð upphafið að siðbót, sem ekki sér fyrir endann á, þó hún mætti ganga hraðar og vera meiri.  Búsáhalda­byltingin hratt af stað viðhorfs­breytingu hjá stórum hluta­þjóðarinnar, þó svo að ákveðinn hluti hafi forherst í sinni skoðun.

Nei, Búsáhalda­byltingin varð ekki til einskis, en hún hefði mátt leiða til meira afgerandi breytinga og við verðum að passa okkur á því að gefa ekki eftir með kröfur okkar til breytinga og siðbótar.

Höfundur færslunnar, sem ég vísaði til, telur Hörður Torfason ekki njóta þeirrar virðingar og viðurkenningar sem hann á skilið vegna hans framlags til Búsáhalda­byltingarinnar.  Ég vona innilega, að Hörður hafi ekki farið af stað með útifundina til að öðlast virðingu og viðurkenningu, heldur vegna þess að honum misbauð óréttlætið.  Hann þurfti a.m.k. ekki frekari virðingar eða viðurkenningar hjá mér.  Hann hafði fyrir löngu áunnið sér hana með óeigingjarnri baráttu sinni fyrir sjálfsögðum réttindum samkyn­hneigðra.  Hans þáttur í Búsáhalda­byltingunni er kominn á spjöld sögunnar.  Hans góði orðstír mun ekki deyja.

Margir tóku þátt í Búsáhalda­byltingunni og fóru fyrir hinum ýmsum hersveitum hennar.  Því miður var ekki þáttataka allra af sömu óeigingirni og Harðar.  Það var kannski þess vegna sem vatnaði undan henni.  Fólkið sem var þarna vegna byltingar almúgans gafst upp á fólkinu sem var þarna til að ota sínu tota.  Talaði við mann um daginn, sem var mjög ötull í barátt­unni, en gafst upp, þegar egóið varð ofan á.  Fyrir kosningarnar árið 2013 náði þessi sjálf­hverfa hámarki, þegar umbóta­öflin gengu hvert af öðru dauðu með því að hafna samvinnu.

Að þessu leyti át byltingin börnin sín, en hún skildi eftir kartöflur víða í samfélaginu, sem sést í óþoli stórra hópa fyrir fúskinu í Íslands­banka­sölunni, viðskipta­háttum Samherja í Namibíu, auðsöfnuninni hjá kvóta­greifum, óréttlætinu sem tekju­lágir búa við og svona mætti lengi telja.  Allt eru þetta málefni sem hefðu ekki farið hátt fyrir 20-30 árum.

Búsáhalda­byltingin var ekki til einskis og góður orðstír Harðar Torfa­sonar mun lifa á spjöldum sögunnar.

—

Ég tók á ýmsan hátt þátt í Búsáhalda­byltingunni.  Það var með skrifum á Mogga-blogginu, þátttöku í starfi Hagsmuna­samtaka heimil­anna, mætti á fundi hjá Herði (var einu sinni ræðumaður), hef veitt erlendum fjöl­miðlum fleiri viðtöl en tölu verður á komið (það síðasta var núna í sumar) og skrifað óteljandi pistla með ábendingum um það sem betur má fara, kröfu um réttlæti, sanngirni og jöfnuð.  Hjá mér er baráttan enn í gangi og hún mun ekki hætta meðan breytinga er þörf, enda holar dropinn steininn.  Auðvitað hefði ég viljað að breytingarnar hefðu verið meiri og gengi hraðar, en ég ætla heldur ekki að vanmeta þær sem hafa orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning