InnlentMikilvægt að geta talað opið um kvíðann9. febrúar 2019 Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttakona greindist með kvíðaröskun þegar hún við 25 ára aldurinn og segir mikilvægt að fela hana ekki. Hún opnar sig um kvíðann í forsíðuviðtali við Mannlíf sem kom út á föstudaginn.
Innlent„Hélt að kommentakerfin gengju af göflunum“8. febrúar 2019 Kristjana Arnarsdóttir er nýr spyrill Gettu betur, fjórða konan sem gegnir því hlutverki á löngum ferli keppninnar. Kristjana hefur getið sér gott orð sem íþróttafréttamaður á RÚV, sem hún segir hafa verið æskudrauminn, henni hafi bara ekki dottið í hug fyrr en fyrir nokkrum árum að kona gæti fengið vinnu við að segja fréttir af íþróttum. Hún hafi þó ekki orðið vör við gagnrýni á störf sín vegna þess að hún sé kona, þvert á móti hafi fólk keppst við að hrósa henni fyrir að vinna vinnuna sína vel.
InnlentGlímir enn við reiðina3. febrúar 2019 Sveini Rúnari Einarssyni var nauðgað af hópi karlmanna á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sumarið 2012. Hann leitaði til gæsluliða á svæðinu eftir nauðgunina og segir að þeir hafi tekið honum vel og verið hjálplegir en lögreglan var aldrei kvödd til og honum bent á að fara að sofa og leita til neyðarmóttöku daginn eftir. Sveinn Rúnar sagði aðeins sínum allra nánustu vinum frá atvikinu, bældi niður tilfinningar sínar og byrjaði ekki að vinna í afleiðingunum fyrr en mörgum árum síðar.
InnlentKarlar eiga alltaf að vera til í kynlíf1. febrúar 2019 Gunnari Karli Ólafssyni var nauðgað ítrekað af fjórum karlmönnum í desember 2017. Hann segir það hafa tekið langan tíma að játa það fyrir sjálfum sér að um nauðgun hafi verið að ræða, til að byrja með hafi hann kennt sjálfum sér um. Gunnar kærði ekki mennina, segist ekki treysta sér til að þurfa að mæta þeim í réttarsal.
Innlent„Það kom aldrei annað til greina en að gefa henni þetta frelsi“25. janúar 2019 Ronja Sif Magnúsdóttir er átta ára lífsglöð trans stelpa sem var fullviss um sitt rétta kyn um svipað leyti og hún fór að tala. Hún fékk nýtt nafn þegar hún var fjögurra ára og hefur blómstrað síðan sem er ekki síst að þakka víðsýni foreldranna og frábærum viðtökum samfélagsins í kringum þau. Hindranirnar eru samt æði margar fyrir trans fólk og ein þeirra er þátttaka þeirra í íþróttum og sundi.
InnlentVar kallaður útfararstjóri Samfylkingarinnar18. janúar 2019 Það hvarflaði ekki að Loga Einarssyni þegar hann gekk inn á landsfund Samfylkingarinnar snemma sumars 2016 að fimm mánuðum síðar yrði hann orðinn formaður flokksins. Hann var þá óbreyttur bæjarfulltrúi á Akureyri og nánast enginn utan hans heimabyggðar þekkti deili á honum. Logi tók við Samfylkingunni í molum, hún hafði naumlega sloppið við að þurrkast út af þingi og var uppfull af innanmeinum. Því var jafnvel spáð að Logi yrði síðasti formaður Samfylkingarinnar.
InnlentSannleikurinn hefur margar hliðar11. janúar 2019 Valdimar Örn Flygenring hvarf að mestu úr sviðsljósinu fyrir rúmum áratug eftir að hafa verið einn vinsælasti leikari þjóðarinnar í áraraðir. Nú er hann kominn aftur inn á sviðið sem Ólafur í Ófærð 2 og talað er um magnaða endurkomu. En hvers vegna hætti hann að leika og hvað hefur hann verið að gera í millitíðinni?
InnlentSlysaðist á heimsmeistaramót4. janúar 2019 Ólafía Kvaran byrjaði að hlaupa hindrunarhlaup fyrir rúmu ári og hefur síðan tekið þátt í fjölmörgum keppnum í Spartan-hlaupi í Bandaríkjunum. Hún er komin í fremstu röð, varð fjórða í sínum aldursflokki á heimsmeistaramótinu í sumar, en hún er rétt að byrja.
InnlentValinn af Andrew Lloyd Webber í hlutverk Óperudraugsins28. desember 2018 Garðar Thór Cortes hefur ekki verið mikið í fréttum á Íslandi undanfarin ár en það þýðir þó engan veginn að hann hafi setið auðum höndum. Hann hefur verið að syngja aðalhlutverkið í söngleik Andrews Lloyd Webber, Love Never Dies, víða um Evrópu og túrað með söngleiknum um Bandaríkin. Og það sem meira er, Lloyd Webber handvaldi hann sjálfur í hlutverkið.
InnlentEftirlæti Andrews Lloyd Webber27. desember 2018 Andrew Lloyd Webber heyrði Garðar Thór Cortes syngja í fyrsta sinn fyrir rúmum þremur árum og bókaði hann á staðnum til að fara með hlutverk Óperudraugsins í Love Never Dies. Garðar prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Mannlífs sem kemur út á morgun.
Innlent„Ég var einn í tvo mánuði en aldrei einmana“20. desember 2018 Pálmar Ragnarsson, körfuboltaþjálfari og fyrirlesari, ferðaðist einn um Mexíkó síðasta sumar. Það veitti honum innblástur til þess að gefa eina milljón króna í hjálparstarf til barna þar í landi eftir að heim var komið. Pálmar prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Mannlífs sem kemur út á morgun.
InnlentVilltist inn í leiklistina7. desember 2018 Lára Jóhanna Jónsdóttir er skyndilega á allra vörum eftir frábæra frammistöðu í hlutverkum sínum í Lof mér að falla og Flateyjargátu. Hún segist þó aldrei hafa ætlað sér að verða leikkona, var búin með eitt ár í læknisfræði þegar hún komst inn í Listaháskólann, enda segist hún hafa verið raungreinanörd á yngri árum og ekkert sérstaklega gefin fyrir það að draga að sér athyglina.