InnlentElín Aradóttir byrjaði á að framleiða 100 púða: „Stefni á að selja 50 þúsund stykki fyrir árslok“12. nóvember 2021 Ævintýraheimur þar sem ýmsir nytjahlutir sem flestir eru skreyttir myndum tengdum íslenskri náttúru er að finna í lítilli verslun á jörðinni Hólabaki um 22 km fyrir vestan Blönduós. Þar eru til sölu vörur fyrirtækisins Tundru sem Elín Aradóttir rekur en hún og eiginmaður hennar, Ingvar Björnsson, eru bændur á bænum, þar sem rekið er kúabú, auk þess sem tengdaforeldrar hennar...
ViðtalGeir um heillandi heimsálfu: „Nýleg dæmi á Íslandi áminning um vandann“11. nóvember 2021 „Það hefur alltaf verið erfitt að kynnast margvíslegum birtingarmyndum fátæktar og þá sérstaklega dauðsföllum kvenna vegna barnsburðar og ungra barna sem auðveldlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir með betri þjónustu. Hár mæðra- og barnadauði í Afríku og víðar í lágtekjulöndum er óásættanlegur þar sem við höfum þekkinguna til að koma í veg fyrir hann. Það er háð...
InnlentRakel Þorbergsdóttir hættir á RÚV: „Það er óvægni í umræðunni og stutt í heykvíslar“10. nóvember 2021 „Það lá alltaf fyrir af minni hálfu að ég yrði ekki fréttastjóri lengur en 8-10 ár. Það er í takt við þá skoðun mína að stjórnendur eigi ekki að ílengjast of lengi í krefjandi stöðu sem þessari. Þetta er sólarhrings skuldbinding allt árið um kring og oftar en ekki í ólgusjó. Fréttastofan stendur sterk núna og er öflug samkvæmt öllum...
InnlentLára Garðars teiknaði Jesú með brjóst: „Árið þar sem ég teiknaði allt sem „ekki“ mátti, á strætó“9. nóvember 2021 Lára Garðarsdóttir er fædd í Reykjavík 21. ágúst 1982. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 2001, diplómunámi í klassískri teikningu og BA í kvikun (Character Animation) frá háskólanum í Viborg, Danmörku, árið 2008. Henni er margt til lista lagt og ein af þeim sem er oft með marga bolta á lofti í einu. Hún er teiknari, rithöfundur og ýmislegt...
InnlentJón Baldvin Hannibalsson sýknaður: „Á sama tíma er ég með óbragð í munninum“8. nóvember 2021 „Þetta er auðvitað léttir. Á sama tíma er ég með óbragð í munninum yfir því að þetta skuli yfirleitt hafa þótt vera tilefni til formlegrar kæru. Það er svo fáránlegt. En allavega; réttlætinu var fullnægt að lokum. Þetta er búið að taka þrjú og hálft ár,“ segir Jón Baldvin Hannialsson í viðtali við Mannlíf en Fréttablaðið greindi frá því að...
ViðtalOpinská Þórunn Jarla: „Léttir að amma var með sífílis en ekki heilarýrnun, geðveiki eða alzheimer“.5. nóvember 2021 „Bærinn brennur“ er nýjasta bók Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur og hún segist ekkert vera að slást í jólabókaslagnum. „Hún er aðra vikuna í röð í 3. sæti á metsölulista yfir allar bækur. Ég veit eftir 26 bækur að bækur ganga allavegana,“ segir rithöfundurinn sem segist vera með átta bækur í legvatninu; ekki farvatninu. Hún ver almennt um fjórum tímum á dag...
InnlentCat atvinnuljósmyndari: „Mér líður svo vel á Íslandi – það er eins og ég sé komin heim“4. nóvember 2021 „Ég hafði heyrt svo góða hluti um Ísland; mjög falleg náttúra, skapandi fólk, gott tónlistarlíf og mikil menning og nýsköpun. Ég hafði aldrei komið til Íslands, en innsæi mitt var að segja mér að prófa það svo ég flutti hingað árið 2018. Ég þekkti engan, ég var ekki með vinnu og ég átti ekki neinn samastað, svo það var rosalega...
Innlent„Ég svelti mig stundum og kastaði upp eftir að ég borðaði“ – Guðrún Hulda, ofþyngdin og eineltið:3. nóvember 2021 Hún er 46 ára. Þriggja barna móðir. Öryrki. Guðrún Hulda Fossdal hefur á lífsleiðinni gengið í um dimma dali og leiðin hefur oft verið grýtt en hún segist vera Pollýanna í sér og tekur þetta á jákvæðninni: Einelti alla grunnskólagönguna, neysla, nauðganir, meðferð, ofþyngd og átröskun, ADHD og sjálfsofnæmissjúkdómurinn rauðir úlfar. „Ég man ekki eftir því að ég hafi ekki...
InnlentListakonan Miriam lifir draumalífi í Ölpunum: „Ísland er ljósið mitt. Mitt time out“2. nóvember 2021 Miriam Fissers er kona margra heima. Hún ólst upp í Belgíu og á Íslandi en býr nú í svissnesku Ölpunum þar sem hún annast börn sín og eldri borgara af alúð en dansar nakin þess á milli og málar og teiknar fallegar myndir. Mannlíf sló á þráðinn. Þegar Miriam er spurð um það hver hún sé og hvar hennar rætur...
InnlentOfbeldismál verðlaunaknapans: „Stelpur innan hestabransans forðast Jóhann eins og heitan eldinn“1. nóvember 2021 Eftir að upp komst að besti knapi Íslands, líklega frá upphafi, Jóhann Rúnar Skúlason eigi að baki hrottalegan ofbeldisferil hefur heimur hestamanna hreinlega snúist á hvolf. Eftir tvær greinar sem Mannlíf birti um voðaverk Jóhanns Rúnars Skúlassonar var hann rekinn úr hestalandsliði Íslands.Fyrir suma í hestaheiminum koma þessar fregnir eins og þruma úr heiðskýru lofti enda Jóhann Rúnar einfaldlega stórstjarna...
InnlentLárus er fjölelskandi í opnu hjónabandi: „Ég held að þetta hafi bætt hjónabandið ef eitthvað er“29. október 2021 Fjölástir, eða „polyamory“ á ensku, er tegund af sambandsformi þar sem meginatriðið er að fólk á í einhvers konar rómantískum samböndum við fleiri en einn einstakling í einu. Í almennu tali er sagt að fólk sé „pólý“, en poly er stytting á „polyamorous“, sem hefur verið þýtt sem fjölelskandi á íslensku. Mannlíf ræddi við mann sem er fjölelskandi. Hann og...
InnlentJón dáleiðari: „Dáleiðsla virkar – fólk hefur fengið hjálp við að léttast og við kvíða“28. október 2021 „Öll dáleiðsla er sjálfsdáleiðsla og við hjálpum fólki við að taka sín fyrstu skref í dáleiðslunni. Dáleiðsla sem meðferð er samtalsform þar sem dáleiðari og dáleiðsluþegi vinna saman að því markmiði sem dáleiðsluþeginn vill ná.“ Draumurinn er að efla dáleiðsluna þannig að það verði jafn eðlilegt að fara til dáleiðara eins og annarra meðferðaraðila og að dáleiðsla verði jafn eðlilegt...