Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rakel Þorbergsdóttir hættir á RÚV: „Það er óvægni í umræðunni og stutt í heykvíslar“

Rakel Þorbergsdóttir hættir á RÚV: „Það er óvægni í umræðunni og stutt í heykvíslar“
Rakel Þor­bergs­dóttir

„Það lá alltaf fyrir af minni hálfu að ég yrði ekki frétta­stjóri lengur en  8-10 ár. Það er í takt við þá skoðun mína að stjórn­endur eigi ekki að ílengj­ast of lengi í krefj­andi stöðu sem þess­ari. Þetta er sól­ar­hrings skuld­bind­ing allt árið um kring og oftar en ekki í ólgu­sjó. Frétta­stofan stendur sterk núna og er öflug sam­kvæmt öllum mæli­kvörðum sem gerði ákvörð­un­ina auð­veld­ari,“ segir Rakel Þor­bergs­dóttir sem hefur ákveðið að sækja á önnur mið eftir að hafa staðið vakt­ina sem frétta­stjóri RÚV und­an­farin ár. Hún við­ur­kennir að þessu fylgi blendnar til­finn­ingar.

Það þarf að hafa sterk bein í þessu starfi

„Já, tví­mæla­laust. Frétta­stofur RÚV hafa verið svo stór hluti af mínu lífi sam­fellt í 22 ár og hér hef ég eign­ast mjög góða vini. Það eru ótrú­lega skemmti­legir félagar sem hafa gert þetta ferða­lag svo eft­ir­minni­legt. Það verður erfitt að kveðja þá.“

Starfinu fylgir ýmiss konar lærdómur

„Mesti lær­dóm­ur­inn hefur komið í gegnum stór og erfið verk­efni. Hvort sem um ræðir stór mál sem við höfum verið með til umfjöll­unar sem fram­kallað hafa átök af ein­hverjum toga eða erf­iðar ákvarð­anir sem ég hef þurft að taka. Það þarf að hafa sterk bein í þessu starfi, en ég hef líka lært að það er ekki veik­leika­merki að bogna í mestum átök­unum og að þroska­ferlið er mest þegar mót­vind­ur­inn er sterkastur. Maður lærir líka ýmis­legt um mann­legt eðli og einnig að hávaði fárra í berg­máls­hellum end­ur­speglar ekki almenna skoðun.“

Hún er sem frétta­stjóri búin að vera með putt­ana á púls­inum og er spurð hvernig henni finn­ist sam­fé­lagið hafa breyst á þessum árum.

„Það hefur orðið gríð­ar­leg tækni­þróun á þessum tveimur ára­tugum sem hefur ger­bylt frétta­öflun, vinnslu og fram­setn­ingu. Beinar útsend­ingar eru tækni­lega marg­falt auð­veld­ari, við eigum auð­veld­ara með að fá ábend­ingar og efni frá almenn­ingi og hlut­irnir ger­ast hraðar en áður. Sam­fé­lags­miðlar og sítengdur almenn­ingur hefur breytt öllu umhverf­inu; það er margt jákvætt við það en líka skugga­hliðar. Það er óvægni í umræð­unni og stutt í heykvíslar en líka ýmiss konar árásir og áreitni gagn­vart blaða- og frétta­mönnum sem hefur ekk­ert með mál­efna­lega rök­studda gagn­rýna að gera.“

Aðspurð hvað sé eft­ir­minni­leg­ast, hvað standi upp úr og hvert sé eft­ir­minni­leg­asta skúbbið, segir Rakel:

„Það hefur ótal margt gerst á þessum árum en auð­vitað standa stór mál eins og Panama­skjölin og Sam­herj­a­málið upp úr í þeirri yfir­ferð. Pana­ma­þátt­ur­inn fór í loftið í 3. apríl 2016 og sá sunnu­dagur var raf­magn­aður hér í Efsta­leit­inu. Tveimur dögum síðar rit­stýrði ég auka­frétta­tíma sem átti að vera hálf­tími en við vorum í loft­inu í  fimm og hálfan klukku­tíma. Þetta var mögnuð útsend­ing þar sem sögu­legri, póli­tískri atburða­rás var sjón­varpað í beinni útsend­ingu. Kveiks­þátt­ur­inn um Sam­herj­a­málið 12. nóv­em­ber, sem 65% þjóð­ar­innar horfðu á, mark­aði einnig tíma­mót sem flestir þekkja. Ég var rit­stjóri Kveiks á þessum tíma og er gríð­ar­lega stolt af þrí­eyk­inu sem vann það erf­iða mál sem enn sér ekki fyrir end­ann á.“

Þetta var mögnuð útsend­ing þar sem sögu­legri, póli­tískri atburða­rás var sjón­varpað í beinni útsend­ingu.

Blaða- og frétta­menn flytja stundum til­finn­inga­þrungnar sögur. Hafa við­töl grætt Rakel?

„Ekki við­töl sem ég hef sjálf tekið, en ég hef tár­ast yfir mörgum við­tölum ann­arra sem hafa snert mig.“

Hvernig er hún svo sem yfir­maður?

„Það er ómögu­legt að dæma um það sjálf. Ég er mjög hrein­skilin, stundum of að sumra mati, og heið­ar­leiki skiptir mig miklu máli. Ég er kröfu­hörð þegar kemur að fag­mennsku og vönd­uðum vinnu­brögðum og sumum finnst ég smá­muna­söm í gagn­rýni um það sem betur má fara. Við erum frekar dug­leg að hrósa því sem vel er gert og hvetja okkar fólk til góðra verka.“

Rakel sagði að frétta­stjóra­starfið væri sól­ar­hrings­skuld­bind­ing allt árið um kring og oftar en ekki í ólgu­sjó. Hvað tekur núna við? „Ekkert sem liggur fyrir á þess­ari stundu annað en gott upp­safnað orlof. Það er ýmis­legt sem kemur til greina, en ekki tíma­bært að ræða það,“ segir Rakel sem fór upp­haf­lega í fjöl­miðla þar sem henni fannst blaða- og frétta­manns­starfið mjög áhuga­vert. „Ég fór eftir mennta­skóla í stjórn­mála­fræði sem und­ir­bún­ing fyrir það. Fyrsta starfið var á Morg­un­blað­inu þegar ég var 26 ára og þaðan fór ég í nám í Broadcast Journalism í Boston, því ljós­vaka­miðl­arnir heill­uðu. Ég fór á vinna á RÚV á meðan ég var enn í námi og hef verið hér sam­fellt síðan. Frétta­manns­starfið er fjöl­breytt, skemmti­legt og lif­andi. Það snýst um að rýna sam­fé­lagið, spegla það og veita aðhald. Þegar vel gengur og frétta­flutn­ingur er upp á sitt besta þá líður manni vel við dags­lok.“ Starfið hefur gefið Rakel mikið, en hefur það tekið eitt­hvað frá henni? „Álagið er mikið og við­var­andi átök eru lýj­andi til lengdar.“

Ég er mjög hrein­skilin, stundum of að sumra mati, og heið­ar­leiki skiptir mig miklu máli.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi