Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jón komst í klappfæri við ísbjörn: „Við vorum með byssuna inni hjá okkur en skotin fyrir utan“

Ísbjörninn allur
Ísbjörn­inn allur

Dýralíf á Íslandi er ekkert sérstak­lega spennandi þannig séð. Við erum með falleg dýr eins og hreindýr, refi og seli svo nokkur séu nefnd en ekkert þeirra er sérstak­lega hættulegt. Sem betur fer auðvitað. Helsti skelfirinn er sennilega minnkurinn eða þá bölvað lúsmýið. En annað slagið flækist hingað ansi hreint hættulegt dýr, ísbjörninn.

Árið 1974 komust nokkrir einstaklingar í hann krappann þegar ísbjörn gerði sig gest­kominn við slysavarnar­skýli við Fljótavík. Komst bjarndýrið svo nálægt þeim að það hefði verið hægt að klappa honum. Sem betur fer gerðu þau það ekki. Árið 1988 rifjaði Jón Gunnarsson, einn af einstaklingunum, upp þessa ótrúlegu sögu. Hér fyrir neðan má lesa um þessa hættulegu heimsókn:

Dýrið lá fyrir framan dyrnar og át nestið mitt -segir Jón Gunnarsson, smiður á Ísafirði, sem komist hefur í klappfæri við bjarndýr

„Við vorum fjögur fullorðin, ég, Helgi Guðmundsson, Ingólfur Eggertsson, sonur hans, Hörður, og Bogga Vernharðs auk þriggja krakka, á leið norður í Fljótavík með jeppavél sem verið hafði í endur­hæfingu hjá okkur. Þetta var seinni­partinn í maí árið 1974,“ sagði Ísfirðingurinn Jón Gunnarsson í samtali við DV um aðdrag­andann að fyrstu kynnum hans af bjamdýri. „Við fórum í land í norðan­verðri Fljótavík, á stað sem kallaður er Atla­staðir en þar eigum við sumar­bústað. Þegar allir voru komnir í land og við höfðum borið bílvélina upp að slysavarna­skýli, sem þarna er, urðum við vör við björninn sem var alveg við hliðina á okkur. Það má segja að hann hafi verið í klappfæri við okkur.“ – Var dýrið alveg meinlaust? „Ja, við vorum ekkert að athuga það. Við flúðum öll inn í slysavarna­skýlið og gengum þar um á tánum. Þar nötruðum við af hræðslu því við héldum að hann bryti upp hurðina og æti okkur öll. Það sem gerði okkur líka skelkaða var að Magnús sonur minn og sonur Helga Guðmunds­sonar voru í sumar­bústaðnum okkar og voru á leið yfir í skýlið til að kalla á okkur í matinn. Dren­girnir, sem voru tíu ára, höfðu ekki hugmynd um bjarndýrið. Þeir hefðu getað gengið beint í flasið á dýrinu þannig að þetta var mikil spenna hjá okkur.“ – Hvað tókuð þið til bragðs? „Við fórum nátt­úrlega að spekúlera í hlutunum, hvað væri nú best að gera því við vorum með byssuna inni hjá okkur en skotin fyrir utan og þar var björninn. Það komu ýmsar uppástungur um hvernig best væri að góma björninn, m.a. sú að reyna að nota net sem við höfðum utan um bílvélina, komast með það upp á þakið og kasta yfir björninn. Við kölluðum líka í Ísafjarðar­radíó en þar fengum við bara skammir. Okkur var sagt að bannað væri að nota stöðina nema í neyðar­tilfellum og þetta teldist ekki neyðar­tilfelli að þeirra mati.“ – Var björninn alltaf í færi við ykkur? „Nei, hann var lengst af fyrir framan dymar hjá okkur að éta nestið mitt. Endirinn var sá að við komumst út til að ná í skotin, brutum síðan rúðu á skýlinu og skutum björninn. Þannig fór betur en á horfðist.“ – Var þetta stórt dýr? „Hann var tveir og hálfur metri á lengd og um 150 kíló á þyngd. Sennilega hefur hann verið tveggja ára.“ – Hvað varð um björninn? „Hann fór á íslenska dýra­safnið í Reykjavík þar sem hann var stoppaöur upp og núna er hann á safni á Selfossi. Það var ekki mikið fjallað um þessa lífs­reynslu okkar á þessum tíma. Þó man ég eftir því að einhver,jóla­kálfur“ úr Háskólanum skrifaði grein og skammaði okkur fyrir að hafa skotið greyið. Þessum manni var aldrei svarað því ég held að það sé enginn svo vitlaus að klappa bjarndýri til að vita hvort það bíti. Ég hafði heyrt að bjarndýr gætu brotið niður hús og étið menn þannig að það var ekkert sérlega geðslegt að vera norður í Fljótavík með bjarndýr fyrir framan dyrnar og börnin sín í nálægð við það,“ sagði Jón Gunnarsson.

Ísbjörn­inn allur
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning