Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Lenti í sjávarháska ásamt föður sínum og bróður: „Hann var orðinn marinn og blár og allur blóðugur“

Gestur Sjóarans að þessu sinni er Guðmundur Guðmundsson sjómaður sem fæddur er og uppalinn í Ólafsvík en árið 1990 flutti hann til Hafnar­fjarðar.

Í viðtalinu rifjar Guðmundur upp sjóslys sem hann lenti í með föður sínum og bróður. „Þar lentum við í sjóslysi. Við fórum út á sjó 18. nóvember 1983 og það var haldið bara beint suður á miðin, við Öndverðanes. Það var helvítis vestanátt og élja­gangur. Og við erum að sigla í land. Ég var þá kokkur, bróðir minn var stýri­maður, pabbi skips­stjóri og svo vinur minn. Og þegar við erum á leið í land þá keyrum við að sker við Hellis­sand. Og það er alveg magnað að við höfum bara sloppið. Það var svoleiðis að ég var að vaska upp en á þessum litlu pungum þá var maður bara í galla niðri í messanum og fram í og ég var að vaska upp. bróðir minn og Ómar að spila. Svo kemur bara höggið og vaskurinn hvarf. Og ég skil ekki enn þann daginn í dag hvernig ég slapp því ég náði að skutla mér upp stigann og komst upp á dekk og báturinn var nátt­úrlega mölbrotinn að framan. Og þegar ég er kominn upp á dekkið reyni ég að fara úr gallanum en það tók, að mér fannst langan tíma. Ég sá að brúin var komin í kaf og ég hljóp að lunninginni en það var alveg ótrúlegt að maður hafi ekki dottið í sjóinn þá. Ég reyndi að kíkja til pabba en sá hann hvergi. Ég hljóp til baka og var þá kominn aftur fram eftir. Þá kemur bróðir minn upp og Ómar. En þetta var svo skrítið því maður vissi ekki hvernig maður ætti að komast upp á skerið, það var mikill öldu­gangur þarna og mikið sog. Ég fór að telja þegar báturinn small á skerið, með mastrið. Svo taldi ég og tók svo bara sjensinn og hljóp á mastrinu og komst upp á skerið. Þetta var alveg með ólíkindum og ég blotnaði ekki. Svo dettur bróðir minn í sjóinn. Hann dettur réttu meginn sem betur fer þvi ef hann hefði farið í sjóinn bakborðsmeginn, maður veit ekkert hvað hefði gerst þá, þá hefði hann verið fjær skerinu. Nema hvað, hann er hraustur og klifrar upp skerið, bara á þaranum. Og kemst upp. Þá dettur félagi minn í sjóinn en bróðir minn nær í hárið á honum og dró hann bara upp. Og þá var bara einn eftir og það var pabbi. Loksins þegar hann kemst út úr stýris­húsinu þá er hann orðinn örmagna og dettur beint í sjóinn. Og netið í skipinu flækist í mastrinu og pabbi flækist í netinu. Og það var alveg ótrúlegt að horfa upp á þetta. Hann skall svona að ég held 10 sinnum í klettinn. Hann var orðinn marinn og blár og allur blóðugur þegar slitnar allt í einu frá nótinni og hann fer með soginu undir hann og fer hinum megin við skipið. Og við héldum bara að hann væri farinn. En þá allt í einu kemur hann þar sem stefnið er og bróðir minn sér hann, nær taki á honum og dregur hann upp. Sirka 10 mínútum síðar þá kemur björgunar­báturinn fljúgandi upp skerið. Og ég held að það hafi bjargað okkur því þegar björgunar­sveitar­mennirnir komu og skutu til okkar línu, gátum við blásið upp bátinn og þeir drógu okkur einn og einn yfir. Þetta var algjört krafta­verk, að enginn hafi farist því þarna var kolniðamyrkur og hríða­veður.“

Hægt er að hlusta á allt viðtalið hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning