Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Óttast að morðingi Rachel Morin láti aftur til skara skríða: „Ber enga virðingu fyrir mannslífum“

Blessuð sé minning Rachel Morin
Blessuð sé minn­ing Rachel Morin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Maðurinn sem myrti fimm barna móðurina Rachel Morin í Maryland á hrotta­legan hátt, mun líklegast drepa aftur, verði hann ekki handsamaður fljótlega, varar lögreglan við.

Morðinginn gæti orðið frakkari nú þegar hann hefur verið á flótta á þriðja viku, að sögn lögreglu­stjóri Harford-sýslu, Jeff Gagler. „Þessi manneskja ber enga virðingu fyrir manns­lífum og þar til hann verður handsamaður, er hætta á að hann harmi aðra manneskju,“ sagði Gahler við Fox News.

Lögreglu­yfirvöld hafa leitað hins óþekkta morðinga frá því að lík Rachel Morin fannst 6. ágúst síðastliðinn í Ma & Pa göngu­leiðinni í Bel Air, aðeins sólar­hringi eftir að kærasti hennar tilkynnti um hvarf hennar. DNA-sýni sem fannst á vettvangi morðsins, passaði við DNA manns sem braust inn á heimili í Los Angeles borg og braut á ungri stúlku. Sést maðurinn yfirgefa heimlið í myndbandi úr öryggis­myndavél hússins en þar sést ekki í andlit mannsins. Þrátt fyrir DNA-sýnin veit lögreglan engin deili á honum.

„Þessi einstaklingur er hættu­legur öllum samfélögum milli Bel Air og Los Angeles því við vitum ekki hvar hann hvílir höfuðið á nóttunni,“ sagði Gahler en hann segir leitina vera „algjört forgangs­verkefni“.

Vegna þess hversu ofbeldis­fullar báðar árásirnar voru og vegna þess hve stuttur tími leið á milli þeirra, þrátt fyrir gríðar­lega vegalengd á milli þeirra, telja rann­sakendur að árásirnar séu einungis toppurinn af ísjakanum. „Ég bara trúi því ekki að þú gerir eitthvað tvennt sem er svo alvarlegt, og að það sé það fyrsta sem þú hefur gert. Það er mjög líklegt að maðurinn sé tengdur öðrum glæpum,“ sagði Gahler.

Þrátt fyrir að ekki sé vitað hver morðinginn er, telur lögreglan að hann hafi tengsl við bæði Los Angeles og Bel Air. Gahler lögreglu­stjóri biðlaði til íbúa beggja svæða að stíga fram ef þeir kannast við manninn á mynd­bandinu sem birt var opinber­lega á dögunum. Telur lögreglan að um sé að ræða mann á þrítugsaldri, af rómönskum ættum, um 175 sentimetri á hæð og um 75 kíló á þyngd. „Það er mjög líklegt að einhvern kannist við hann þar um slóðir og að einhver kannist við hann hér.“

Fréttin er unnin upp úr frétt The New York Post.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár